Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2003, Page 18

Læknablaðið - 15.06.2003, Page 18
FRÆÐIGREINAR / REYKINGAVENJUR Inngangur Rannsóknarstöð Hjartaverndar hefur um rúmlega þriggja áratuga skeið staðið fyrir umfangsmiklum hóprannsóknum á fullorðnu fólki hér á landi með tilliti til hjarta- og æðasjúkdóma og áhættuþátta þeirra. Mikilvægur þáttur í þessum rannsóknum hef- ur verið könnun á reykingavenjum fólks en eins og kunnugt er hefur fyrir löngu verið sýnt fram á að reykingar, einkum sígarettureykingar, eru einn mikil- vægasti áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma, og reyndar fjölda annarra sjúkdóma (1). í hóprannsóknum Hjartaverndar hafa reykinga- venjur verið kannaðar með stöðluðum spurningalista hjá stórum hópum fólks og hafa þannig fengist ítar- legar upplýsingar um reykingavenjur Islendinga und- anfarna áratugi. í þessari grein verður í fyrsta lagi gerð grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á reykingavenjum, í öðru lagi hverjar eru helstu orsakir þessara breytinga og í þriðja lagi hversu áreiðanlegar þær upplýsingar eru sem fengnar eru með þeim aðferðum sem hér er beitt. Upplýsingar af þessu tagi eru augljóslega nauð- synlegar til þess að hægt sé að beita árangursríkum forvörnum á sviði reykinga og draga þannig úr tíðni reykingatengdra sjúkdóma. Áður hafa verið birtar niðurstöður kannana á reyk- ingavenjum í einstökum hópum í rannsóknum Hjarta- verndar á ákveðnum tímabilum (2-9) en hér verður gefið heildaryfirlit yfir reykingar frá því um 1970 til um 2000 sem byggist á öllum helstu hóprannsóknum Hjartaverndar og ætti að gefa góða mynd af reykinga- venjum allrar þjóðarinnar á aldrinum 30-90 ára. I síðari grein verður reynt að leggja mat á hvaða þýðingu breytingar á reykingavenjum hafa haft á tíðni hjarta- og æðasjúkdóma meðal þjóðarinnar. Efniviöur og aöferöir Þýði Hóprannsóknir Hjartaverndar hófust síðla árs 1967 og hafa staðið yfir síðan. í þessari grein voru notaðar nið- urstöður úr nokkrum stærstu hóprannsóknum Hjarta- verndar sem hér verður gerð stuttlega grein fýrir. 1. Hóprannsókn Hjartaverndar á Revkjavíkur- svæðinu. Þessi rannsókn hófst í nóvember 1967 og lauk í apríl 1996. Úrtakið voru allir karlar sem fæddir voru árin 1907-1934 og allar konur fæddar 1908-1935 með lögheimili á Stór-Reykja- víkursvæðinu 1. desember 1966. Alls voru þetta 14.923 karlar og 15.872 konur og varð mæting í karlahópi 70,9% en 70,1 % í kvennahópi. Þessi rannsókn fór fram í sex áföngum og hefur henni verið lýst ítarlega áður (9-11). 2. Rannsókn á ..IJngu fólki“ í Revkiavík. Þessi rannsókn fór fram í tveimur áföngum. Fyrsti áfanginn hófst í september 1973 og lauk í júní 490 Læknablaðið 2003/89 1974. í rannsóknina var boðið öllum körlum og konum sem fædd voru árin 1940, 1944, 1945, 1949,1950 og 1954 og áttu lögheimili í Reykja- vík 1. desember 1972. Alls voru þetta 2781 manns en af þeim mættu 1570 (742 karlar og 828 konur), eða 56%. Annar áfangi hófst í nóv- ember 1983 og lauk í mars 1985. Sömu einstak- lingum og í fyrsta áfanganum var boðið en þeir voru 2691 er þessi áfangi hófst. Alls mættu 1797 (864 karlar og 933 konur), eða 67%. 3. MONICA rannsóknin á íslandi. Þetta var fjöl- þjóða rannsókn undir yfirumsjón Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar sem hafði það megin- markmið að kanna tíðni kransæðastíflu og slags og samband við ýmsa áhættuþætti (12, 13). 1 tengslum við rannsóknina fóru fram þrjár kann- anir áhættuþátta, sú fyrsta 1983, önnur 1988- 1989 og sú þriðja 1993-1994. í þessar kannanir var boðið tilviljunarúrtaki einstaklinga á aldrin- um 25-74 ára frá Reykjavík, 750 körlum og 750 konum. í fyrstu áhættuþáttakönnunina var mæt- ing 70% meðal karla og 74% meðal kvenna. í aðra könnunina mættu 69% karla og 73% kvenna og í þá þriðju 74% karla og 78% kvenna. 4. Afkomendarannsókn Hjartaverndar hófst í júní 1997 og lauk í ágúst 2001.1 þessa rannsókn voru valin börn þeirra þátttakenda í Hóprann- sókn Hjartaverndar á Reykjavíkursvæðinu sem fengið höfðu kransæðastíflu frá því sú rannsókn hófst árið 1967.1 viðmiðunarhóp voru valin börn þátttakenda sem ekki höfðu fengið kransæða- stíflu. Fjöldi boðaðra var alls 7872, karlar 3969 en konur 3903 (8). I karlahópi varð mæting 2938, eða 74%, en í kvennahópi 3087, eða 79%. 5. í úrvinnslu var þeim sem voru yngri en 30 ára sleppt vegna takmarkaðs fjölda. Spumingalisti Öllum þátttakendum rannsóknarinnar sem þekktust boð um rannsókn var sendur spurningalisti. Spurn- ingarnar sem fjallað er um í þessari grein eru birtar í viðauka (bls. 498). Flestar eru spurningarnar orðrétt þýðing á spurn- ingum í spurningalista G. Rose (14) nema hvað sleppt var spumingu um það hvort þátttakandi reykti handvafðar sígarettur því samkvæmt upplýsingum frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur sala á sígarettupappír verið mjög lítil hérlendis. Auk þess voru þeir sem höfðu hætt að reykja spurðir um ástæðu þess að þeir hættu reykingum. Þátttakendum var sendur spumingalistinn ásamt boðunarbréfi heim og skyldu þeir koma með listann útfylltan á Rannsóknarstöðina en þar fór ritari yfir listann með viðkomandi, leiðrétti misskilning og gætti þess að listinn væri rétt útfylltur. Yfirleitt var spurning orðuð á þann veg að þátttakandi svaraði með því að setja x í viðeigandi reit merktan jái eða neii.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.