Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2003, Page 30

Læknablaðið - 15.06.2003, Page 30
FRÆÐIGREINAR / STOFNFRUMUR a. Það er ekki réttlætanlegt að nota stofnfrumur fóst- urvísa til lœkninga undir neinum kringumstœðum. b. Það er réttlœtanlegt að nota stofnfrumur til lœkn- inga úr þeim fósturvísum sem verða afgangs við glasafrjóvganir og er ann- ars eytt eftir tiltekinn tíma. c. Það er réttlœtanlegt að nota stofnfrumur til lœkn- inga úrfóstrum í tengslum við fóstureyðingar/fósturlát. d. Bœði (b) og (c). e. Það er réttlœtanlegt að framleiða fósturvísa í þeim tilgangi einum að nota stofnfrumur þeirra til lœkninga. 7,7 | 11,6 Mynd 3. Afstaða þátttakenda í heild tilþess hvort notkun á stofnfrumum úr fósturvísum/fóstrum til lœkninga sé réttlœtanleg. a. Það er alltaf réttlœtan- legt að nota stofnfrumur fósturvísa til lœkninga óháð því hvað reynt er að lœkna hverju sinni. b. Það er réttlœtanlegt að nota stofnfrumur fóstur- vísa aðeins efreynt er að lœkna lífshœttulega eða erftða sjúkdóma sem engin önnur lœkning hefurfund- ist við. c. Það er rangt að nota stofnfrumur fósturvísa hver svo sem tilgangurinn er. 1 26,4 65,1 8,5 I 10 20 30 40 50 60 70 Mynd 4. Afstaða þátttakenda í heild til þess hvort eðli sjúkdómsins skipti málL Tafla II. Forgangsrööun stétta á vægi mismunandi þátta í ákvöröuninni um leyfi á notkun stofnfrumna úr fósturvísum tii lækninga (hundraöstölur innan sviga). Vægi þátta Læknar Lögfræöingar Prestar Siðferðisréttur fósturvísis 4 (34,5%) 5 (29,0%) 2 (67,1%) Mögulegur læknisfræðilegur ávinningur 1 (88,6%) 1 (93,5%) 3 (63,4%) Möguleg þekking á sjúkdómum 2 (68,4%) 2 (84,9%) 4 (51,9%) Efnahagslegir þættir 5 (19,3%) 3 (40,9%) 5 (15,9%) Hætta á aö virðing fyrir mannslffinu minnki 3 (41,4%) 4 (31,9%) 1 (67,9%) Þegar niðurstöður voru skoðaðar út frá viðhorfi til siðferðisstöðu fósturvísis kom í ljós að 23% lífvernd- unarsinna töldu aldrei réttlætanlegt að nota stofn- frumur fósturvísa/fóstra til lækninga meðan aðeins 2% persónusinna og 4% sérstöðusinna tóku þá af- stöðu. Persónusinnar voru skiljanlega frjálslyndastir í garð framleiðslu á fósturvísum, 46% þeirra álitu slíkt réttlætanlegt til samanburðar við 40% sérstöðusinna og 11% lífverndunarsinna. Lífverndunarsinnar töldu í 67% tiivika réttlætanlegt að nota stofnfrumur úr afgangs fósturvísum og/eða fóstrum til lækninga sem gefur til kynna nokkurt frjálslyndi í garð glasafrjóvg- ana og jafnvel fóstureyðinga í þessum hópi. Þó er vert að minna á að viðkomandi þurfa hvorugu að vera fylgjandi þó svo þau samþykki jákvæðar hliðarverk- anir (3). Fimmtíu og tveir af hundraði persónusinna töldu notkun á stofnfrumum afgangsvísa og/eða fóstra réttlætanlega og 59% sérstöðusinna. Skiptir eðli sjúkdómsins máli? Spurt var hvort eðli sjúkdómsins sem verið væri að reyna að lækna með stofnfrumum fósturvísa skipti máli (mynd 4). Af þeim sem töldu notkun stofn- frumna úr fósturvísum réttlætanlega (a og b iiður) fannst meirihluta (71%) að aðeins mætti grípa til þess úrræðis þegar verið væri að fást við lífshættulega eða erfiða sjúkdóma sem engin önnur lækning hefur fundist við. Ekki var marktækur munur á milli stétta. Almennt fannst konum eðli sjúkdómsins skipta máli (b liður, mynd 3), 74% til samanburðar við 58% karla (M-H: p<0,01). Sem fyrr voru persónusinnar frjáls- lyndastir í garð notkunar á fósturvísastofnfrumum til lækninga því 54% fannst eðli sjúkdómsins ekki skipta máli. Þessa afstöðu tóku 19% lífverndunarsinna. Af sérstöðusinnum fannst 73% eðli sjúkdómsins sem verið er að lækna hveiju sinni skipta máli. Aðeins tæp 9% settu sig alfarið á móti notkun stofnfrumna úr fósturvísum til lækninga, hver svo sem sjúkdómurinn er sem verið er að reyna að lækna. Það er til samræm- is við þann fjölda (8%) sem tók sömu afstöðu í spurn- ingunni að ofan. Er munur á afstöðu stétta til mismunandi þátta í ákvörðuninni um leyfi á notkun stofnfrumna úrfóst- urvísum til lœkninga? Þátttakendur voru beðnir um að tiltaka hversu mikið vægi mismunandi þættir ættu að hafa í ákvörðuninni um hvort leyfa ætti notkun á stofnfrumum fósturvísa til lækninga. Gefinn var upp kvarði frá 1-5 þar sem 1 táknaði mjög lítið vægi og 5 mjög mikið. Við úr- vinnslu gagna var þáttunum forgangsraðað eftir því hversu mikið vægi viðkomandi stétt gaf þeim (tafla II). Innan sviga eru samanlögð prósentustig fyrir val- möguleika 4 og 5 á kvarðanum sem jafngilda því að eftirfarandi þáttur eigi að hafa mikið eða mjög mikið vægi. Á að leyfa einrœktun í lœkningaskyni? Sögð var saga sjúklings með Parkinsonssjúkdóm. Sjúklingurinn vill kanna möguleikann á því að nota einræktun til að búa til fósturvísi með sama erfðaefni og hann sjálfur. Þannig má forðast að ónæmiskerfi mannsins hafni ígræðslunni. Fósturvísinum yrði síðan eytt en fyrst teknar úr honum stofnfrumur og þær ræktaðar. Stofnfrumurnar yrðu svo græddar í heila sjúklingsins þar sem þær myndu þroskast í starfhæfar taugafrumur. Spurt var hvort einræktun af þessu tagi væri réttlætanleg. Um 64% þátttakenda fannst einræktun í lækn- ingaskyni réttlætanleg, en 36% voru því andvígir. Af þeim sem voru mótfallnir báru 64% við hættu „hinn- ar hálu brautar“ til einræktunar í æxlunarskyni (3). 502 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.