Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 37
FRÆÐIGREINAR / UNGLINGAR I VANDA
aðsetur. Upplýsingar um neyslu tóbaks, áfengis og
vímuefna síðustu þrjá til sex mánuði eru skráðar,
ástæður komu og loks almennar upplýsingar við
brottför, það er fjöldi gistinátta, dagsetning brottfar-
ar, næsti dvalarstaður og með hvaða hætti unglingur
yfirgefur athvarfið.
Starfsmenn öfluðu ofangreindra upplýsinga og
skráðu þær að unglingi ásjáandi. Þeim upplýsingum
sem komu fram síðar var þá bætt við skráningu.
Munur milli hópa var metinn með kí-kvaðrat prófi.
Tölfræðilega marktækur munur var talinn við p<0,05.
Niðurstöður
A bak við 686 færslur voru 318 ungmenni (206 heim-
anfarnir, 84 heimanreknir og 28 heimilislausir) sem
komu einu sinni á tímabilinu. I 368 færslum var um
endurkomu að ræða. Á bak við þær færslur voru 281
ungmenni (156 heimanfarnir, 45 heimanreknir og 80
heimilislausir) sem komu tvisvar eða oftar á tímabil-
inu, eða höfðu komið til dvalar í athvarfinu fyrir árið
1996. Þegar allar færslur eru taldar og fjöldi endur-
kvæmra borinn saman við fjölda frumkvæmra eftir
hópum, sést að hlutfall endurkvæmra er langhæst,
eða 74% af skráðum komum, í hópi heimililausra
(tafla I).
í hópi heimanfarinna sem komu einu sinni í. at-
hvarfið var kynskipting jöfn, en meðal endurkvæmra
voru 103 piltar og 53 stúlkur. Meðal frumkvæmra í
hópi heimanrekinna voru 45 piltar og 39 stúlkur og
endurkvæmir töldust 29 piltar á móti 16 stúlkum. í
hópi frumkvæmra heimilislausra voru 16 piltar og 12
stúlkur. Endurkvæmir í þessum hópi skiptust í 50
pilta og 30 stúlkur (tafla I).
Meðalaldur heimanfarinna sem komu einu sinni á
tímabilinu var 16,2 ár en þeirra sem komu oftar 16,7
ár. Hjá heimanreknum var meðalaldur frumkvæmra
16,4 ár en endurkvæmra 16,8 ár. Meðalaldur heimilis-
lausra unglinga sem komu einu sinni var 17,9 ár en
hinna sem komu oftar 17,1 ár.
Flestir gesta neyðarathvarfsins komu af höfuð-
borgarsvæðinu, en hæst var hlutfall þeirra í hópi
heimanrekinna (tafla I).
Foreldrar unglinganna sem gistu Rauðakrosshús-
ið voru í fæstum tilfellum í sambúð (tafla II). Heimil-
islausir skera sig úr þar sem einungis 11% þeirra áttu
foreldra í sambúð.
Rúmur þriðjungur heimanfarinna og heimanrek-
inna ungmenna, en yfir 70% heimilislausra, var iðju-
laus við komu í athvarfið (tafla II). Meðal heimilis-
lausra var ekki marktækur munur milli kynja, en í
hópi heimanfarinna voru um 54% pilta iðjulausir og
um 30% stúlkna (x2 (2,206) = 22,5; p<0,0001). Meðal
heimanrekinna var munur milli kynja í sömu átt, rúm
60% pilta voru iðjulausir en sama hlutfall stúlkna var
um 27% (X2 (2,84) = 10,4; p<0,001).
Iðjuleysi var algengara meðal endurkvæmra en
Tafla I. Frumkvæmir og endurkvæmir unglingar innan hópanna og skipting frum-
kvæmra eftir kyni og uppruna.
Heimanfarnir Heimanreknir Heimilislausir
N % N % N %
Frumkvæmir 206 (57) 84 (65) 28 (26)
Endurkvæmir 156 (43) 45 (35) 80 (74)
Piltar 103 (50) 39 (46) 16 (57)
Stúlkur 103 (50) 45 (54) 12 (43)
Höfuöborgarsvæöiö 140 (69) 73 (88) 19 (76)
Landsbyggöin 64 (31) 10 (12) 6 (24)
Tafla II. Hlutfall unglinga með tilliti til sambúöar-
mynsturs foreldra, iðju og skólagöngu.
Heiman- farnir % Heiman- reknir % Heimilis- lausir %
Samband foreldra
I sambúö 30 36 ii*
Ekki í sambúö 64 57 71
Annaö eða bæði látin 6 7 18*
löja
Ekkert 37 39 72**
í skóla 43 34 7**
í vinnu 20 27 21
Skólaganga
1 skyldunámi 37 30 8**
Skyldunámi lokið 43 52 88**
Skyldunámi hætt 8 11 4
í framhaldsnámi 12 6 -
*p<0,05 **p<0,001
frumkvæmra í hópum heimanfarinna (X2 (1,362) =
23,6; p<0,001) og heimanrekinna (X2 (1,129) = 8,5;
p<0,005). Munur frum- og endurkvæmra í hópi heim-
ilislausra var ekki metinn þar sem væntigildi var und-
ir mörkum í yfir 20% tilvika.
Munur á skólagöngu milli heimilislausra annars
vegar og heimanfarinna og -rekinna hins vegar (tafla
II) skýrist líklega helst með aldursmuni milli hóp-
anna (F(l,315) = 32,2; p<0,0001) þar sem meðalaldur
heimilislausra er 17,2 ár en hinna hópanna 16,3 ár.
Þegar borin var saman námsstaða milli kynja innan
hópanna kom fram munur í hópi heimanfarinna. Um
helmingi fleiri stúlkur en piltar voru í skyldunámi eða
framhaldsskóla en tæp 12% pilta á móti tæpum 4%
stúlkna höfðu hætt skyldunámi (X2 (4,206) = 23,4;
p<0,0001).
Munur var á frum og endurkvæmum í öllum hóp-
unum þegar skoðað var hve margir hættu skyldu-
námi. í hópi heimanfarinna höfðu tæp 20% endur-
kvæmra hætt skyldunámi en meðal frumkvæmra var
hlutfallið 7,8% (X2 (4,206) = 23,3;p<0,001). Hjá heim-
anreknum var þetta hlutfall um 11 % frumkvæmra og
rúm 16% endurkvæmra (X2 (1,129) = 4,3; p<0,005).
Meðal heimilislausra höfðu tæp 4% frumkvæmra, en
rúmur fjórðungur endurkvæmra hætt skyldunámi (X2
(1,108) = 6,4; p<0,005).
Læknablaðið 2003/89 509