Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 48

Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÚNAÐUR VIÐ HABL Mynd 1. Fjöldi tilfella í fjórum löndum. Fjöldi tilfella Dagsetning tilkynningar til Alþjóöaheilbrigöismálastofnunarinnar. lýsingu um heilsufar sitt við brottför og víða eru not- aðar hitamyndavélar sem greina hækkaðan líkams- hita. Ef ferðamaður er með einkenni HABL við brottför frá útsettum svæðum ber honum að fresta för sinni. Víða er einnig fylgst með heilsu þeirra sem eru að koma frá svæðum þar sem HABL hefur greinst. Þann 15. maí birti WHO tilmæli um fjöldasam- komur með einstaklingum frá landsvæðum með ný- legt HABL-smit (6). Mælst er til að að þeir sem hafa átt samskipti við HABL-sjúkling yfirgefi ekki landið fyrr en 10 dagar eru liðnir frá hugsanlegu smiti. Ef viðkomandi fer þrátt fyrir þessi tilmæli skal hann vera undir nákvæmu eftiriiti í 10 daga eftir að hugsanlegt smit álti sér stað (7). Aðgerðir á landsvæðum með HABL-tilfelli Með ofantöldum aðgerðum sem eru ein tegund sótt- kvíar er reynt að koma í veg fyrir að smit berist til annarra landsvæða. Ef sá grunur vaknar að HABL hafi borist til annarra landsvæða þrátt fyrir ofan- nefndar aðgerðir eru tafarlausar ráðstafanir með sóttkví, einangrun sjúkdómstilfella og rakningu smit- leiða grundvallaratriði í baráttunni við sjúkdóminn. Þegar rakning smitleiða er framkvæmd er haft uppi á öllum sem hugsanlega hafa smitast og dvelja þeir í sóttkví í 10 daga á heimilum sínum eftir hugsan- legt smit. Samtals hafa tugir þúsunda einstaklinga dvalið í sóttkví á heimilum. Einangrun HABL-sjúklinga á sjúkrahúsum hefur borið árangur eins og sjá má af því að sjúkdómurinn hefur ekki náð útbreiðslu í vestrænum löndum þegar einstaka tilfelli hafa borist frá svæðum þar sem smit á sér stað. Einnig hefur samfélagslegum aðgerðum eins og tímabundinni lokun skóla verið beitt. Með ofangreindum aðgerðum hefur tekist að stöðva faraldurinn á tveimur landsvæðum (sjá mynd 1); fyrst í Hanoi, Víetnam, en þangað barst aðstoð frá sérfræðingum WHO sem komu á vettvang í upphaft faraldursins, því næst í Toronto í Kanada (8). Einnig fer nýjum tilfellum í Hong Kong og Singapore fækk- andi. Hins vegar er sjúkdómurinn mikið vandamál í Kína og óvíst hvort unnt verður að ráða niðurlögum hans. Ekki er séð fyrir hvað gerist ef hann nær út- breiðslu í Afríku og Indlandi. Viðbúnaður á íslandi - heilbrigöisþjónusta Sóttvarnalæknir hóf skipulagningu viðbúnaðar á ís- landi 16. mars, daginn eftir að WHO gaf út alheims- viðvörun um sjúkdóminn (9). Fyrstu viðbrögð voru í megindráttum að tilkynna stjórnvöldum um sjúk- dóminn og að hafa samband við yfirlækni smitsjúk- dóma- og sýkingavarnadeildar og vakthafandi smit- sjúkdómalækni á Landspítala. Flugfélög sem annast millilandaflug til og frá Islandi voru upplýst um sjúk- dóminn. Ennfremur var birt frétt um sjúkdóminn á heimasíðu Landlæknisembættisins. Gefin var út skil- greining á HABL sem byggðist á skilgreiningu WHO. í kjölfar þessara viðbragða hefur verið unnið að undirbúningi þess að sinna HABL-sjúklingum ef þeir greinast hér á landi. Þann 4. apríl 2003 undirritaði heibrigðis- og trygg- ingamálaráðherra að höfðu samráði við sóttvarnaráð breytningu á reglugerð nr. 129 /1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. Snemma í ferlinu var ákveðið að allir hugsanlegir HABL-sjúklingar skyldu einangraðir á Landspítala. Sýkingavarnadeild og yfirlæknir smitsjúkdómadeild- ar hafa skrifað einangrunarleiðbeiningar og einangr- unaraðstaða á Landspítala hefur verið yfirfarin og endurbætt. Þverfagleg samstarfsnefnd var skipuð af lækningaforstjóra. Er henni ætlað að leggja til nauð- synlegar umbætur á einangrunaraðstöðu. Unnt á að vera að taka á móti allt að 80 sjúklingum í einangrun á Landspítala án þess að öryggi starfsfólks og sjúk- 520 Læknablaðið 2003/89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.