Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2003, Qupperneq 59

Læknablaðið - 15.06.2003, Qupperneq 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ Ráðgjöf, eftirlit, úttektir... „Hlutverk embættisins er margþætt en það er í fyrsta lagi að vera ráðgjafi heilbrigðisstjórnarinnar, Alþingis og ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum. Pau sam- skipti eru bæði formleg og óformleg, við ráðherra hittumst til dæmis vikulega til óformlegra viðræðna en einnig veitum við formlegar og skriflegar um- sóknir um ýmis mál. I öðru lagi erum við umboðsmenn sjúklinga og tökum við kvörtunum og kærum frá almenningi vegna meintra mistaka eða vandamála sem koma upp í ssamskiptum almennings við heilbrigðisþjón- ustuna. Hingað berast hátt í 400 kvartanir á hverju ári og hefur farið fjölgandi, þær hafa líklega tvöfald- ast á tíu árum. I þriðja lagi eigum við að hafa eftirlit með starfi og starfsaðstæðum heilbrigðisstétta og -stofnana. Við eigum með öðrum orðum að taka í lurginn á fólki sem skrensar í lausamölinni og fylgjast með því að heilbrigðisstarfsfólk kunni það sem það á að kunna. Við veitum umsögn um leyfisveitingar og reynum með því að vernda fólk fyrir falsspámönnum, skottu- læknum og öðrum slíkum. Þetta felur einnig í sér að Landlœknisembœttið er til húsa íþessari byggingu við Austurströnd á Seltjarnar- nesi. Kvartanir og lyfjaeftirlit Haukur Valdimarsson er settur aðstoðarlandlæknir og hef- ur gegnt því embætti í tæp tvö ár. Samkvæmt lögum um heil- brigðisþjónustu er aðstoðarlandlæknir ráðinn af ráðherra og skal vera landlækni til aðstoðar og staðgengill hans. Aðstoð- arlandlæknir veitir forstöðu kvartana- og kærusviði embættis- ins. Auk þess sem nafnið felur í sér heyra klínískar leiðbein- ingar undir sviðið en fyrir þeim fer Sigurður Helgason rit- stjóri. Þess utan starfar einn ritari við sviðið og er á Hauki að heyra að ekki veiti af meiri mannskap. Ástæðan er fyrst og fremst sú að aukning hefur orðið á kvörtunum og kærum frá almenningi vegna meintra mistaka sem fólk telur sig verða fyrir af hendi heilbrigðisstarfsmanna. Árlega berst á fjórða hundrað kvartana til embættisins og seg- ir Haukur að þær krefjist mismikillar rannsóknar, sumar sé hægt að afgreiða fljótlega en aðrar geti verið mjög tímafrekar. „Kvartanir berast okkur eftir ýmsum leiðum. Flestar þeirra berast skriflega en talsvert er einnig um að við fáum ábending- ar í gegnum síma eða með tölvupósti að einhverju sé ábóta- vant og þá þurfum við að bregðast við. Loks er dálítið um að fólk panti tíma og komi í viðtal. Við meðferð þessara mála þurfum við að gæta þess að rétt sé farið með þau og í samræmi við stjórnsýslulög og rannsóknarreglur en ýmis lagasetning undanfarinna ára hefur hert á þeim kröfum. Við skrifum þeim sem kvörtunin beinist að og biðjum um skýringar og þegar þær liggja fyrir semjum við drög að álitsgerð sem send er báðum aðilum málsins. Þeir fá frest til að gera athugasemdir við drögin en að því loknu göngum við frá endan- legu áliti embættisins. Þetta getur tekið sinn tíma og því miður erum við enn með nokkurn fjölda mála sem bárust okkur á árinu 2002. Það myndi bæta stöðu okkar og auka hraðann á af- greiðslunni ef við fengjum fleira fólk til starfa,“ segir Haukur. Landlæknisembættinu ber einnig að fylgjast með lyfjaávís- unum lækna og það eftirlit heyrir undir kvartana- og kæru- svið. Nú eru í augsýn verulegar breytingar á því eftirliti en Al- þingi samþykkti nú í vetur að koma upp lyfjagagnagrunni sem vera skal í umsjá landlæknis. Sá gagnagrunnur á að vera kom- inn í gagnið í byrjun árs 2005. „Þá sjáum við fram á að þurfa að ráða lækni til starfa, auk tölvu- og tæknimanna. Læknirinn þarf að sinna eftirlitinu sem verður töluvert meira en nú er en auk þess gæti þetta starf tengst klínísku leiðbeiningunum á þann hátt að viðkomandi læknir gæti fylgst með því hvort læknar fara eftir leiðbeiningunum. Ef ein- hver misbrestur virðist vera á því gæti hann farið út og rætt við þá sem hlut eiga að máli og veitt þeim aðstoð við að fara að leið- beiningunum. Með þessu móti getum við tengt saman eftirlit og ráðgjöf sem við teljum að fari mjög vel saman,“ segir Haukur. Þess má í lokin geta að Haukur lætur af störfum 1. septem- ber næstkomandi þegar Matthías Halldórsson aðstoðarland- læknir kemur úr leyfi. Þá hverfur Haukur til starfa við upp- byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í Salahverfi í Kópavogi en rekstur hennar var boðinn út á dögunum. Læknablaðið 2003/89 531
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.