Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 63

Læknablaðið - 15.06.2003, Síða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SÉRLYFJASKRÁ Lyfjastofnun Sérlyfjaskrá gefin út á bók og á netinu Sérlyfjaskráin er gamall kunningi lækna sem situr víða á borðshornum og er flett upp í oft á dag. Nú sakna margir vinar í raun því skráin hefur ekki kom- ið út síðan 2001. Þá er hægt að hugga með því að skráin er væntanleg úr prentun í þessum mánuði og það sem meira er: um svipað leyti verður opnaður nýhannaður og aðgengilegur vefur á heimasíðu Lyfjastofnunar www.lyfjastofnun.is þar sem hægt verður að nálgast alla sérlyfjatexta og raunar mun ítarlegri upplýsingar um öll lyf sem eru á íslenskum markaði. Þau Guðrún Edda Guðmundsdóttir ritstjóri Sér- lyfjaskrár og Pétur S. Gunnarsson deildarstjóri upp- lýsingadeildar Lyfjastofnunar greindu blaðamanni Læknablaðsins frá því að þau væru nú að leggja loka- hönd á endurskipulagningu þessarar nauðsynlegu út- gáfu. Þegar því verki verður lokið mun útgáfan byggjast á svonefndum SPC-textum (Summary of Product Characteristics) sem eiga að fylgja öllum lyfjum. Textarnir hafa hlotið samþykki Lyfjastofnun- ar og oft einnig annarra lyfjastofnana í Evrópu. Þessir SPC-textar eru mjög ítarlegir og hafa verið að lengjast talsvert á síðustu árum. Þess eru dæmi að texti með einu lyfi fylli 20 síður í bók. Þeir verða geymdir í heild sinni á heimasíðu Lyfjastofnunar á íslensku en úr þeim verða síðan teknir viðeigandi kaflar og birtir í bókarformi Sérlyfjaskrár. Reglu- gerðir kveða á um að ákveðnir óstyttir hlutar SPC- texta eigi að fylgja öllum auglýsingum en auk þess er SPC-textinn notaður sem grunnur fyrir upplýsingar til neytenda í fylgiseðlum fyrir lyf sem eiga að vera í öllum lyfjapakkningum. Með þessu móti verður öll birting og notkun textanna samræmdari og þægilegri í vinnslu, en hingað til hefur Lyfjastofnun unnið sér- stakan texta fyrir Sérlyfjaskrána. Slíkt býður heim hættu á ósamræmi en mikil áhersla er lögð á það á vettvangi Evrópusambandsins að samræma þessa upplýsingagjöf og við tökum þátt í því verki vegna aðildar okkar að Evrópska efnahagssvæðinu. Sérlyfjaskrá 2002-2003 sem kemur út á næstu dög- um verður því um margt frábrugðin þeirri eldri. Hún verður í minna broti og upplýsingarnar verða tak- markaðri. Það sem upp á vantar verður hins vegar að finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Þess má geta að framvegis verður verð lyfjanna eins og það var í árs- byrjun birt með lyfjatextanum. Grunntextarnir eru að sjálfsögðu í sífelldri endur- skoðun og taka örum breytingum við það að ný lyf koma til sögunnar, eldri lyf hverfa af markaði og var- úðarreglur eða annað breytist í ljósi nýrra rann- sókna. Á heimasíðunni geta læknar og aðrir sem á þurfa að halda skráð sig á póstlista og fengið tölvu- póst mánaðarlega þar sem greint er frá nýjum sér- lyfjatextum, hvað hefur breyst og hvaða lyf eiga að hverfa af markaði. Guðrún Edda og Pétur sögðu að stofnunin von- aðist til að með þessum hætti væri hægt að koma þessum upplýsingum hratt og vel til notenda. Enn er þó talin ástæða til að gefa Sérlyfjaskrána út á bók því læknar og aðrir notendur hennar væru mislangt komnir í tölvutækninni. Oft hagaði líka þannig til á deildum sjúkrahúsa eða heilsugæslustöðvum að þar væru fáar tölvur til almennrar notkunar og ef þær væru uppteknar væri gott að grípa til bókarinnar. Guðrún Edda Guðmunds- dóttir ritstjóri Sérlyfjaskrár og Pétur S. Gunnarsson deildarstjóri upplýsinga- deildar Lyfjastofnunar. Forsíða heimasíðu Lyfjaslofmmar. Hún mun ekki breytast en aðgangur að sérlyfjatextum verður allur annar og betri ÞrÖStur eftir að nýju síðurnar koma ígagnið sent verður fijótlega. Haraldsson Læknablaðið 2003/89 535
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.