Læknablaðið - 15.06.2004, Page 8
RITSTJÓRNARGREINAR
Fyrstu opinberu ráðleggingarnar um daglega hreyf-
ingu fyrir Islendinga birtust fyrr á þessu ári og þá
sem hluti af nýjum og endurskoðuðum ráðleggingum
Manneldisráðs um mataræði (8). Gömlu manneld-
ismarkmiðin sem margir kannast væntanlega við
hafa þar með verið leyst af hólmi. Mörgum hefur
hugsanlega brugðið í brún við ráðleggingarnar sem
hljóða upp á hvorki meira né minna en 45-60 mín-
útna hreyfingu á dag við meðalálag, ekki síst þar sem
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun og fleiri hafa nefnt 30
mínútur á dag sem ákjósanlegt viðmið. íslensku ráð-
leggingarnar eru hins vegar samhljóða þeim norrænu
sem taka mið af rannsóknum á vægi hreyfingar fyrir
líkamsþyngd ekki síður en fyrir einstök líffærakerfi
(9). Hálfrar klukkustundar áreynsla á dag kemur
hjarta- og æðakerfinu vel, styrkir og stælir, en þegar
holdafarið er annars vegar þarf einfaldlega meira til.
Daglegar athafnir skipta þar líka meginmáli, svo sem
göngur og heimilisstörf, ekki síður en heimsóknir í
líkamsræktina.
Sú mikla fjölgun fólks sem á við offitu að stríða
um víða veröld endurspeglar breytingar á lífsháttum
þar sem kyrrsetur fyrir framan tölvur og sjónvarp
haldast í hendur við ofneyslu og ofgnótt. Orsakirnar
eru Ijósar, það er tími til kominn að bregðast við.
Þar skipta aðstæður barna og unglinga mestu máli
og jafnir möguleikar þeirra til að lifa heilsusamlegu
lífi. Nýstofnuð Lýðheilsustöð hefur því hafið undir-
búning að metnaðarfullu verkefni, í samvinnu við
sveitarfélög í landinu, þar sem sjónum er beint að
næringu og hreyfingu barna. Holl fæða í skóla og
aukin tækifæri til leikja og hreyfingar í frístundum og
á skólatíma fyrir öll börn er sú heilsuefling sern helst
getur orðið hér að liði. Heilsugæslan hefur ekki síður
mikilvægu hlutverki að gegna, meðal annars við að
styrkja, fræða og hlúa að fjölskyldum barna og hvetja
þær til heilsusamlegri lífshátta.
Heimildir
1. Guömundsdóttir SL, Óskarsdóttir D, Franzson L, Indriðason
ÓS, Sigurðsson G. Samband líkamlegrar þjálfunar við þyngd-
arstuðul, fitumassa og gripstyrk í íslensku þýði. Læknablaðið
2004; 90: 479-86.
2. Food and health in Europe: a new basis for action. ed: Robert-
son A, Tirado C, Lobstein T, Jermini M, Knai C, Jensen JH,
Ferro-Luzzi A & James WPT. WHO Regional Publications,
European series, No 96,2004.
3. Þorgeirsdóttir H, Steingrímsdóttir L, Ólafsson Ö, Guðnason
V. Þróun ofþyngdar og offitu meðal 45-64 ára Reykvíkinga á
árunum 1975-1994. Læknablaðið 2001; 87: 699-704.
4. Briem B. Hæð og þyngd 9 ára skólabarna í Reykjavfk 1919-
1998. Reykjavík: Háskóli fslands 1999.
5. Jóhannsson E, Amgrímsson SÁ, Briem B, Sveinsson Þ, Þór-
lindsson Þ. Lifestyle and BMI Among Nine Year Olds in Ice-
land. Int J Obes 2003; 27: T5 (abstract).
6. Astrup A. Healthy lifestyles in Europe; prevention of obesity
and type II diabetes by diet and physical activity. Public Health
Nutr 2001; 4: 499-515.
7. Murray CJL, Lopez AD. Global burden of disease study.
Lancet 1997; 349: 1436-42.
8. Steingrímsdóttir L. Þorgeirsdóttir H, Ólafsdóttir AS. Könnun
á mataræði íslendinga 2002. Helstu niðurstöður. Rannsóknir
Manneldisráðs íslands V. Lýðheilsustöð 2003.
9. Saris WH, Blair SN, van Baak MA, Eaton SB, Davies PS,
Di Pietro L, et al. How much physical activity is enough to
prevent unhealthy weight gain? Outcome of the IASO lst
Stock Conference and consensus statement. Obes Rev 2003; 4:
101-14.
464 Læknablaðið 2004/90