Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2004, Page 17

Læknablaðið - 15.06.2004, Page 17
FRÆÐIGREINAR / NOTKUN TÍÐAHVARFAHORMÓNA % 100 *i 80- ---i_=a------,------— -------1------1---1-----1 1931-35 1936-40 1941-45 Fæöingarár Mynd 1. Hlutfall 55 ára og eldri sem höfðu einhvern tíma notað tíðahvarfahormón. á um það bil 10 ára fresti. Nú hafa 98.000 íslenskar konur gefið upplýsingar einu sinni eða oftar. Allt að 97% af ákveðnum fæðingarhópum kvenna hafa tekið þátt (21). Spurningarnar hafa tekið talsverðum breytingum frá því upplýsingasöfnun hófst (1964) en árið 1979 komu fyrst inn spurningar um tíðahvarfa- hormón (8,9). I þessari rannsókn eru notuð gögn sem safnað var á árunum 1996 til 2001. Skoðaðar voru spurningarnar um notkun tíðahvarfahormóna. Spurt var hvort við- komandi hefði notað hormón, um aldur við upphaf notkunar, tegund sem lengst hefur verið notuð og tímalengd notkunar. Einnig voru athuguð svör við spurningum varðandi reykingasögu. Notuð voru gögn úr fyrri rannsókn og niðurstöð- ur bornar saman við þær niðurstöður frá tímabilinu 1979-1995 (1). Notaðar voru tölur úr Arsskýrslum Tóbaksvarnamefndar frá árunum 1996-2001 til saman- burðar við niðurstöður um reykingavenjur (22-27). Til að athuga hvort notkun tíðahvarfahormóna væri vaxandi var athuguð notkun eftir mismunandi fæðingarhópum og þar sem svörin ná yfir stutt tíma- bil, eða fimm ár, sýnir það í raun notkun mismunandi aldurshópa. Til að athuga hve hratt tímalengd hormónanotk- unar væri að aukast var tímabilinu skipt í tvennt og athugað hlutfall þeirra sem notuðu tíðahvarfahormón lengur en í fimm ár á hvoru límabili fyrir sig. Við útreikninga á hve algeng notkun væri voru athugaðir þrír algengustu flokkar hormónameðferð- ar, estrógen eingöngu, estrógen og gestagen kaflaskipt meðferð og estrógen og gestagen samfelld meðferð. Við athugun á reykingavenjum voru bornar saman konur sem höfðu notað hormón og konur sem aldrei höfðu notað hormón eftir reykingavenjum. Til að kanna hversu vel hegðun rannsóknarhóps- ins endurspeglaði hegðun íslenskra kvenna almennt var athugað hvort reykingavenjur kvenna sem koma í krabbameinsleit og svara spurningum Heilsusögubankans væru sambærilegar við reykinga- venjur íslenskra kvenna samkvæmt ársskýrslum % Aldur tóbaksvarnarnefndar (22-27) og borið saman hlutfall kvenna sem reyktu, sem voru hættar að reykja og sem aldrei höfðu reykt á ákveðnum aldursbilum. Við úrvinnslu gagnanna voru notuð tölvuforritin Microsoft Access og Stata 6.0 en gröf og myndir voru unnar í Microsoft Excel. Til að kanna hvort tölfræði- lega marktækur munur væri milli hópa var athugað hvort 95% öryggisbil sköruðust. Skráning upplýsinga í Heilsusögubankann er gerð með samþykki Persónuverndar og Vísindasiðanefnd- ar og þarf ekki að afla frekari leyfa fyrir tölfræðilegri samantekt úr upplýsingunum. Unnið var með gögnin án persónuauðkenna. Mynd 2. Hlutfall kvenna 40-69 ára sem notuðu hormón við komu í Leitarstöð. Niðurstöður Þýði rannsóknarinnar samanstóð af öllum konum á aldrinum 40-69 ára sem mættu í Leitarstöð Krabba- meinsfélags íslands 1996-2001 og svöruðu spurningum um notkun á tíðahvarfahormónum. A þessum árum mættu 18.422 konur á þessum aldri í Leitarstöðina, af þeim svöruðu 16.649 konur spurningum um notkun tíðahvarfahormóna. I heildina var þó um 17.516 svör að ræða því hluti kvennanna kom oftar en einu sinni og svaraði spurningalistanum því einnig oftar. Mismunurinn er 867 svör sem skiptust þannig að 847 konur svöruðu tvisvar og 10 konur svöruðu þrisvar sinnum. í ljós kom að af konum á aldrinum 55-70 ára sögð- ust 55% einhvern tíma hafa notað tíðahvarfahormón. Þetta hlutfall var breytilegt eftir fæðingarhópum og jókst með hverjum yngri fæðingarhóp. A mynd 1 má sjá hvernig þetta hlutfall breytist. í elsta fæðing- arhópnum hafa 42% (95% öryggisbil 40%-44%) einhvern tíma notað hormón en í yngsta fæðingar- hópnum er þetta hlutfall komið í 68% (95% örygg- isbil 66%-70%). Marktækur munur er á milli fæðing- arhópa. Hlutfall kvenna á aldrinum 40-69 ára sem notuðu hormón við komu í Leitarstöðina var 32% á tímabil- inu. Á mynd 2 má sjá niðurstöður athugana á notkun kvenna á hormónum við komu í Leitarstöð eftir aldri og tímabiium. Fyrri tímabilin, það er 1986-89, 1990- 93 og 1994-95, eru fengin úr rannsókn Jóns Hersis Elíassonar og fleiri (1). Notkun er mest á aldrinum 52-53 ára. Mikil aukning hefur verið frá árinu 1986, Læknablaðið 2004/90 473

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.