Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2004, Qupperneq 24

Læknablaðið - 15.06.2004, Qupperneq 24
■ FRÆÐIGREINAR / LÍKAMLEG ÞJÁLFUN OG ÞYNGDARSTUÐULL Tafla 1. Flokkar þyngdarstuðla samkvasmt Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni. Þyngdarstuðull (kg/m2) Undirþyngd < 18,5 Kjörþyngd 18,5 - 24,9 Ofþyngd 25,0-29,9 Offita > 30 Tafla II. Dæmi um athafnir sem krefjast meðalákafrar áreynslu*. Lengd og ákefð Athöfn áreynslu Þvo og bóna bíl í 45-60 mín. Minni ákefð Spila blak í 45 mín. Lengri tími Sparka fótbolta (á milli) í 30-45 mín. j i Garðyrkjustörf í 30-45 mín. Knýja sjálfan sig í hjólastól í 30-40 mín. Ganga 2,8 km á 35 mín. Skjóta á körfu í 30 mín. Hjóla 8 km á 30 mín. Dansa í 30 mín. Ganga með barnavagn 2,4 km á 30 mín. Raka lauf í 30 mín. Vatnsleikfimi í 30 mln. Synda í 20 mín. Hjólastólakörfubolti í 20 mín. Spila körfubolta í 15-20 mín. Hjóla 6,4 km á 15 mín. Sippa í 15 mín. '' Hlaupa 2,4 km á 15 mín. Moka snjó í 15 mín. Meiri ákefð Tröppugangur 115 mín. Styttri tími * Áætluð orkunotkun er um 150 kcal en hún er þó háð ákefð, aldri, kyni og líkamlegu ástandi. mín. = mínútur. sterkar fræðilegar vísbendingar um margvísleg jákvæð áhrif hreyfingar á heilsufar. Meira en helmingur full- orðinna íbúa höfuðborgarsvæðisins er of þungur eða feitur. Fleiri íslendingar lifa kyrrsetulífi en flestar grannþjóðir okkar og setja þarf fram raunhæf mark- mið til þess að auka almenna ástundun þjálfunar meðal þjóðarinnar. Inngangur Lífsstíll og holdafar eru talin hafa margvísleg áhrif á almennt heilsufar. Líkamsþyngd og samsetning líkamsvefja hafa verið tengd dánartíðni, sérstaklega hefur hækkaður þyngdarstuðull (kg/m2) verið tengd- ur hækkaðri dánartíðni í mörgum rannsóknum (1-4). Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið út við- miðunarmörk fyrir flokkun samkvæmt þyngdarstuðli þar sem undirþyngd, kjörþyngd, ofþyngd og offita fyrir fullorðna einstaklinga eru skilgreind (sjá töflu I). Þyngdarstuðullinn hefur þó þann ókost að hann tekur ekki tillit til mismunandi samsetningar vefja. Þannig getur grannur einstaklingur með hátt hlut- fall vöðvavefjar flokkast sem of þungur samkvæmt skilgreiningum stofnunarinnar. Nákvæmari mælingar á fitu og fitufríum massa líkamans eru gerðar með ýmsum hætti en engar langtímarannsóknir hafa verið gerðar á tengslum þeirra og heilsufars (5,6). Ahrif hreyfingarleysis og mikillar kyrrsetu á heils- una hafa verið rannsökuð ítarlega og lélegt líkamlegt form er tengt hækkaðri dánartíðni (7, 8). Ástundun reglulegrar hreyfingar er hins vegar talin hafa marg- vísleg jákvæð áhrif á heilsufar, til dæmis minnkaða áhættu á kransæðasjúkdómum, háum blóðþrýstingi, sykursýki, offitu, ákveðnum tegundum krabbameina og hinum ýmsu stoðkerfisvandamálum (8-13). Fræðimönnum hefur reynst erfitt að skilgreina nákvæmlega hversu mikla og ákafa hreyfingu sé æskilegt að stunda til þess að hafa marktæk jákvæð áhrif á heilsufar. Ekki er heldur talið að sama tegund hreyfingar hafi jafnmikil og jákvæð áhrif á alla vefi líkamans. Líkamleg áreynsla er skilgreind sem „öll líkamleg hreyfing virkjuð af beinagrindarvöðvunum sem veldur aukningu á orkunotkun umfram orkuþörf í hvfld”. Þjálfun er hins vegar skilgreind sem „regluleg endurtekning líkamlegrar áreynslu í frístundum, til dæmis í þeim tilgangi að bæta líkamlegt form, árangur eða heilsu” (14). Engar opinberar ráðleggingar eða markmið hafa verið gefin út hér á landi varðandi hreyfingu eða þjálfun en Center for Disease Control and Prevention (CDC) og The American College of Sports Medicine (ACSM) í Bandaríkjunum hafa gefið út þær ráðleggingar að „hver fullorðinn einstak- lingur ætti að stunda meðalákafa áreynslu í saman- lagt 30 mínútur eða meira, flesta eða helst alla daga vikunnar". Börn ættu að hreyfa sig að jafnaði um 60 mínútur á hverjum degi (8). Meðaláköf áreynsla er hjá CDC-ACSM skilgreind sem til dæmis rösk ganga, garðyrkja og þolfimi. Þá hefur meðaláköf áreynsla einnig verið skilgreind sem athafnir sem krefjast 150 kcal á dag eða 1000 kcal á viku (15). Dæmi um slíkar athafnir eru sýnd í töflu II. Ekki hafa farið fram ítarlegar athuganir á þjálfun íslendinga. Árið 1996 var gerð könnun á lífsstfl og líðan íslendinga og þá reyndust 64-88% karla og kvenna á aldrinum 18-75 ára hreyfa sig einu sinni í viku eða oftar þannig að á reyndi (16). Ekki var til- greint um hvers konar hreyfingu var að ræða. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvers konar og hve mikla áreynslu og líkamlega þjálfun íslendingar á aldrinum 30-85 ára stunda í vinnu og frítíma og meta samband áreynslunnar við þyngdar- stuðul, fitu- og vöðvamassa og gripstyrk. Efni og aðferðir Upphaflegt slembiúrtak fyrir rannsóknina saman- stóð af 2640 einstaklingum, 30-85 ára íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur voru úr alls 11 árgöngum, fæddir árin 1916-1961 með fimm ára milli- bili og jafnframt hópur fæddur árið 1972. í úrtakinu voru 1584 konur en 1056 karlar. Úrtakinu hefur verið lýst áður í Læknablaðinu (17). Eftir að brottfluttir og 480 Læknablaðið 2004/90
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.