Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2004, Side 47

Læknablaðið - 15.06.2004, Side 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UMSÖGN UM BÓK Medicinsk Kompendíum, 16. útgáfa Ritstjóran Niels Ebbe Hansen, Stig Hauns0 og Ove B. Schaffalitzky de Muckadell. Útgefendur: Nyt Nordisk Forlag Arnold Busck. Liðin eru fjögur ár frá útkomu 15. útgáfu þessa gam- alkunna rits. I upplýsingablaði um ritið segir að veru- leg þróun hafi orðið í lyflækningum á þeim tíma og þá hvað helst í sameindalíffræði og skilningi manna á lífeðlismeinafræði sjúkdóma auk þess sem meðferð hafi breyst á ýmsum sviðum. Bókin er sögð draga mjög dám af þessari þróun. Þá er sögð áhersla á bein samskipti læknis og sjúklings og mikilvægi góðrar sjúkdómssögu og vandaðrar skoðunar sjúklinga. Bókin er í tveimur bindum og er 3128 blaðsíður. Hún er ríkulega prýdd myndum og töflum í lit. Verð hennar er uppgefið 3995 danskar krónur. Ritið er ætlað sem uppsláttarbók fyrir lyflækna og heilsugæslulækna og sem kennslubók fyrir nemendur í heilbrigðisgreinum. I bókarkynningu er réttilega bent á að nú á tímum æ meiri sérhæfingar sé lyflækn- um vaxandi þörf á að geta náð áttum á öðrum sviðum lyflækninga en þeirra eigin. Þótt áhöld séu um hve ítarlegri umfjöllun um til dæmis hjartasjúkdóma má koma fyrir á tæpum 300 blaðsíðum sýnist mér rit þetta ágætt til uppsláttar og upprifjunar. í bókarbyrjun er að finna áhugaverða kafla um ýmis fræði sem snerta lyflækningar á einn eða ann- an hátt. Má nefna faraldsfræði, forvarnir og félags- lega læknisfræði. Þá eru kaflar um bólgusvörun, ónæmisfræði, vefjaflokka, ígræðslur, æxli, erfðafræði og öldrun. Síðan tekur við umfjöllun um nokkrar meginmyndbirtingar sjúkdóma. Þar má nefna verki og verkjameðferð, gjörgæslulækningar, húðeinkenni við ýmsa sjúkdóma og fleira. Stuttur kafli er um lyfja- fræði, meðal annars um skömmtun lyfja í nýrna- og lifrarsjúkdómum. Meginhluti ritsins er hefðbundin yfirferð sjúkdóma eftir undirsérgreinum. Þar eru fyrirferðarmestir hjarta- sjúkdómar, meltingarsjúkdómar og innkirtlasjúkdómar. Eftir kerfísbundna umfjöllun um hina einstöku sjúk- dóma er í lok hvers kafla fjallað í stuttu en vel merktu máli um vandamiðaða sjúkdómsgreiningu. Undir bókarlok er að finna ágæta kafla um öldr- unarlækningar, næringarfræði, atvinnusjúkdóma og umhverfislækningar en í þeim kafla er meðal annars fjallað um fíkniefni og eitranir. Þegar 140 höfundar leggja saman er vísast að gæði hinna ýmsu kafla verði nokkuð misjöfn. Verkefni ritstjóranna er ærið að tryggja gæði og slípa saman. I fljótu bragði sýnist að í heild hafi vel tekist til. Upp- setning bókarinnar er prýðileg og aðlaðandi. Myndir og töflur eru langflestar vel gerðar og fræðandi. Það vekur athygli hve tilvísanir lil heimilda eru fáar með hverjum kafla og vísa flestar til handbóka og yfirlits- rita. Leit í bókinni er auðveld með hjálp góðs efnisyf- irlits og ítarlegrar, aðgengilegrar atriðaskrár. Medicinsk Kompendium er sagt vel samhæft Kirurgisk Kompendium sem einnig er komið í nýrri útgáfu (sjá ritdóm í Læknablaðið 2004; 90: 429). Um þá samhæfingu skal ekki dæmt hér. Medicinsk Kompendium er mikið rit og í raun undravert að ráðist skuli reglulega í endurskoðaða útgáfu þess á danska tungu sem óneitanlega tak- markar nokkuð útbreiðslu þess. Þá er líklegt að netvæðingin og greiður aðgangur að gagnagrunnum á borð við UpToDate geri ritum sem þessu enn erf- iðara uppdráttar. Fyrir þá sem eignast vilja vandað og aðgengi- legt uppflettirit um lyflæknisfræði sem raunar er á dönsku og í dýrari kantinum er 16. útgáfa Medicinsk Kompendium ágætur kostur. Páll Ásmundsson Höfundur er sérfræöingur í nýrnalækningum. Læknablaðið 2004/90 503

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.