Læknablaðið - 15.06.2004, Page 54
Lopress - Öflugt lyfvið háþrýstingi
i
11
Lopress. Hver tafla inniheldur:
Losartanum INN, kalíumsalt, 12,5 mg eða 50 mg.
Ábendingar: Háþrýstingur. Hjartabilun þegar meðferð með ACE-hemlum er
ekki lengur talin henta. Ekki er mælt með að skipta yfir í meðferð með lósartan
ef hjartasjúklingar eru í jafnvægi á ACE-hemlum. Skammtar og lyfjagjöf:
Skammtar eru einstaklingsbundnir. Skammtastærðir handa fullorðnum:
Háþrýstingur: Venjulegur upphafs- og viðhaldsskammtur fyrir flesta sjúklinga
er 50 mg einu sinni á dag. Lósartan má gefa einu sinni á dag eða tvisvar á
dag og heildarskammtur er á bilinu 25-100 mg á dag. Ef ekki fæst nægjanlega
góð stjórnun á blóðþrýstingnum með því að gefa lósartan einu sinni á dag
getur verið betra að skipta skammtinum í tvennt eða auka hann í 100 mg
einu sinni á dag. Hámarksblóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins nást 3-6 vikum
eftir að meðferð er hafin. Nota skal 25 mg upphafsskammt, einu sinni á dag,
handa sjúklingum með minnkað blóðrúmmál, t.d. þeim sem meðhöndlaðir
eru með stórum skömmtum af þvagræsilyfjum og þeim sem hafa sögu um
skerta lifrarstarfsemi (sjá Varnaðarorð og varúðarreglur). Ekki er þörf á að
breyta upphafsskammti aldraðra sjúklinga eða sjúklinga með skerta
nýrnastarfsemi, þ.m.t. sjúklinga sem fá kvið- eða blóðskilun (sjá Varnaðarorð
og varúðarreglur). Lósartan má gefa með öðrum háþrýstingslyfjum. Hjartabilun:
Upphafsskammtur hjá sjúklingum með hjartabilun er 12,5 mg einu sinni á
dag. Auka má skammtinn um 12,5 mg á viku fresti (þ.e. í skammtana 25 mg
daglega eða 50 mg daglega), í venjulegan viðhaldsskammt, 50 mg einu sinni
á dag eða eins og sjúklingurinn þolir. Lósartan er venjulega gefið samhliða
þvagræsilyfjum og dígitalis. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki
ætlað börnum. Lósartan má gefa með eða án matar. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir lósartani eða einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Sjá einnig kaflann um
meðgöngu og brjóstagjöf. Varnaðarorð og varúðarreglur: Ofnæmi.
Ofnæmisbjúgur (sjá Aukaverkanir). Lágþrýstingurogblóðsalta/vökvaójafnvægi:
Hjá sjúklingum með vökvaskort (t.d. þeim sem meðhöndlaðir eru með stórum
skömmtum af þvagræsilyfjum) geta einkenni um lágþrýsting komið fyrir.
Þennan vökvaskort á að leiðrétta fyrir giöf lósartans eða nota lægri
upphafsskammt af lósa rta n i Skert lifrarstarfsemi: íh u g a ætti lægri upphafsskammt
fyrir sjúklinga með sögu um skerta lifrarstarfsemi, en samkvæmt gögnum úr
lyfjahvarfafræði hefur verið sýnt fram á marktækt aukna plasmaþéttni hjá
sjúklingum með skorpulifur. Skert nýrnastarfsemi: Sem afleiðing af hömlun
renín-angíótensín-kerfisins, hafa breytingará nýrnastarfsemi, þ.m.t. nýrnabilun,
verið skráðar hjá næmum einstaklingum; þessar breytingar á nýrnastarfsemi
geta gengið til baka ef meðferð er hætt. Önnur lyf sem hafa áhrif á renín-
angíótensín-kerfið geta aukið þvagefni og kreatínín í sermi hjá sjúklingum
með þrengsli í annarri eða báðum nýrnaslagæðum. Svipuð áhrif hafa verið
skráð um lósartan; þessar breytingar á nýrnastarfsemi geta gengið til baka,
ef meðferð er hætt. Ekki ætti að nota kalíumuppbót eða kalíumsparandi
þvagræsilyf samtímis lósartan án samráðs við lækni. Milliverkanin Ekki þekktar.
Sambönd sem hafa verið rannsökuð eru m.a.: hýdróklórtíazíð, digoxín, warfarín,
címetidín, fenemal, ketókónazól og erýthrómýcín. Rífampicín og flúkónazól
hafa lækkað blóðþéttni virka umbrotsefnisins. Klínísk þýðing þessara
milliverkana hefur ekki verið metin. Eins og við á um önnur lyf sem hamla
angíótensíni II eða verkunum þess, getur samhliða notkun kalíumsparandi
þvagræsilyfja (t.d. spírónólaktóns, tríamterens og amílóríðs), kalíumuppbótar
og salta sem innihalda kalíum, leitt til kalíumhækkunar í blóði. Eins og við á
um önnur blóðþrýstingslækkandi lyf, geta blóðþrýstingslækkandi áhrif
lósartans deyfst við samhliða töku bólgueyðandi lyfsins indometasíns.
Meðganga og brjóstagjöf: Þrátt fyrir að engin reynsla sé af notkun lyfsins hjá
þunguðum konum hafa rannsóknir á dýrum sýnt að lósartan veldur
fósturskaða, fósturlátum og nýburadauða og er það talið vera vegna
lyfjafræðilegra áhrifa á renín-angíótensín-kerfið. Hjá mannsfóstri hefst blóðrás
um nýru sem er háð myndun renín-angíótensín-kerfisins á öðrum þriðjungi
meðgöngu, og er því hættan fyrir fóstrið aukin ef lyfið er gefið á öðrum eða
þriðja þriðjungi meðgöngu. Lyf sem hafa beina verkun á renín-angíótensín-
kerfið geta valdið fósturskaða og jafnvel fósturláti, séu þau notuð á öðrum
eða þriðja þriðjungi meðgöngu. Eigi þungun sér stað, skal stöðva lósartan-
meðferð svo fljótt sem auðið er. Brjóstagjöf: Ekki er vitað hvort lósartan skilst
út í brjóstamjólk kvenna. Á það skal þó bent að umtalsvert magn af lósartani
og virku umbrotsefni þess hefur komið fram í rottumjólk. Vegna mögulegra
aukaverkana á barn á brjósti, skal taka ákvörðun um hvort hætta eigi
brjóstagjöfinni eða notkun lyfsins, m.t.t. mikilvægis lyfsins fyrir móðurina.
Aksturog stjórnun vinnuvéla: Engin þekkt áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar
véla. Aukaverkanin Algengar (>1%): Svimi, lágþrýstingur. Sjaldgæfar (0,1-1%):
Stöðubundinn lágþrýstingur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Ofnæmi:Bráðaofnæmi,
ofsabjúgur þ.á m. þroti í barkakýli og raddböndum sem lokar öndunarveginum
og/eða þroti í andliti, vörum, koki og/eða tungu. Sumir þessara sjúklinga hafa
áður fengið ofsabjúg af völdum annarra lyfja, þ.á m. ACE-hemla. Æðabólga
hefur sjaldan sést, þar með talið purpuralíki sem svipar bæði til purpuralíkis
Henochs og Schönleins, með kviðverkjum, maga- og garnablæðingum,
liðverkjum og nýrnabólgu. Meltingarfæri:Niðurgangur, lifrarbólga, truflanir á
lifrarstarfsemi. Blóð: Blóðleysi. Húð: Ofsakláði, kláði. Stoðkerfi: Vöðvaverkir.
Taugakerfi: Mígreni. öndunarfæri: Hósti. Breytingaráblóðgildum: Hækkað kalíum
í blóði (>5,5 mmól/l (ca. 1,5%)); væg hækkun á lifrarensímum kom sjaldan
fyrir og gekk venjulega til baka ef meðferð var hætt. Ofskömmtun:Takmarkaðar
upplýsingar eru til varðandi ofskömmtun í mönnum. Líklegasta merki
ofskömmtunar er lágþrýstingur og hraðtaktur, hægsláttur gæti komið fyrir.
Ef lágur blóðþrýstingur veldur einkennum skal hefja stuðningsmeðferð. Hvorki
er hægt að fjarlægja lósartan né virka umbrotsefnið með blóðskilun.
Pakkningar og hámarksverð í smásölu -1. maí. 2004: Töflur 12,5 mg: 28 stk.
2.350 kr.; töflur 50 mg: 28 stk. 3.632 kr.; 98 stk. 10.559 kr. Afgreiðslutilhögun:
R. Greiðsluþátttaka: B. Markaðsleyfishafi: Actavis hf. Maí. 2004.
actavis
hagur í heilsu