Læknablaðið - 15.02.2006, Page 7
RITSTJÚRNARGREINAR
Verkefni ritstjórnar Læknablaðsins
Árið 2005, 91. ár Læknablaðsins, var að minnsta
kosti um tvennt sérstakt í sögu þess. í fyrsta lagi
tókst, í annarri eða þriðju tilraun að fá vísinda-
hluta blaðsins skráðan í gagnagrunn Bandaríska
læknisfræðibókasafnsins (National Library of
Medicine, NLM). Við getum verið sátt við þenn-
an áfanga. Helzta hindrunin var augljós, smæð
íslenzks málsamfélags. Áður en markinu var náð
þurfti að gera nákvæma grein fyrir efni blaðsins,
þar með talið ritstjórnarferli ritrýndra greina og
inntaki þeirra eftir því sem kostur var. Við nutum
ómetanlegrar aðstoðar íslenzkumælandi lækna
sem áratugum saman hafa starfað við þekktar
bandarískar háskólastofnanir. Við stöndum í sér-
stakri þakkarskuld við prófessorana Gunnlaug P.
Nielsen við Harvardháskóla, Kristján T. Ragnars-
son við Mount Sinai í New York og Snorra
Þorgeirsson við National Institutes of Health fyrir
að veita Læknablaðinu þann trúverðugleika gagn-
vart NLM, sem nauðsynlegur var.
Hinn meginatburður ársins 2005 snerist um
ritstjórnarstefnu Læknablaðsins og vinnulag rit-
stjórnar. Ritstjórnin klofnaði um þessi atriði og
hætti störfum síðastliðið haust, ýmist sjálfviljug (5)
eða nauðug (1).
Á hvorntveggja atburðinn má líta sem áfanga í
þroskaferli. Þátttakan í gagnagrunni NLM leggur
okkur ótvíræðar skyldur á herðar, sem við höfum
heitið að sinna af kostgæfni. Með þessari þátttöku
höfum við til að mynda tekið að okkur að rækja
vissar skyldur hvað við kemur ritrýni, fjölda ritrýna
og hugsanlegum hagsmunatengslum og hagsmuna-
árekstrum þeirra. Við höfum til dæmis ábyrgzt,
að öll hugsanleg hagsmunatengsl sem snúa að
höfundum og ekki sízt ritstjórn, verði undantekn-
ingarlaust gerð opinber. Höfundar vísindagreina
verða hér eftir að útskýra eðli og uppruna alls þess
fjár sem nýtt var við viðkomandi rannsókn, sömu-
leiðis eigin tengsl við styrktaraðila.
Síðari atburður ársins 2005 leiddi í ljós algjöran
skort á ritstjórnarstefnu og vinnureglum ritstjórn-
ar. Vissulega er það svo, að rit eins og Læknablaðið
siglir oftast lygnan sjó þannig að sjaldan reynir
á ritstjórnarstefnu og innra vinnulag ritstjórnar.
Læknablaðið er vísindarit í læknisfræði og jafn-
framt vettvangur umræðu heilbrigðisþjónustu í
víðasta skilningi. Þetta tvíþætta hlutverk er engan
veginn einstakt fyrir íslenzka læknablaðið heldur
er það dæmigert fyrir læknablöð beggja vegna
Atlantshafsins. Reynsla undanfarinna mánaða
sýnir, að ekkert okkar virtist hafa leitt að því hug-
ann hvernig blað eigendur Læknablaðsins, það
er að segja meðlimir læknafélaganna og þannig í
reynd allir íslenzkir læknar vilja að blaðið sé. Til
hvers ætlumst við af Læknablaðinu og hvað ber
okkur að gera eða forðast að gera ef við viljum
veg þess sem mestan? Enginn vafi leikur á því, að
Læknablaðið er vettvangur umræðu um heilbrigð-
ismál í víðasta skilningi. Þar er ekkert efni utan
landhelgi og nægir sú réttlæting ein til umræðu í
blaðinu, að eigendur þess telji málið umfjöllunar-
vert. Ljóst er að umræða verður að vera snörp og
opinská. Við verðum hins vegar að taka til þess
afstöðu hvernig sú umræða fer fram. Það er til
dæmis afdráttarlaus sannfæring þess, sem þetta
ritar að skrif ad hominem nafngreindum einstak-
lingum, læknum eða öðrum til lasts, eigi ekki
heima í Læknablaðinu. Aðrir íslenzkir prentmiðl-
ar hafa svo um munar haslað sér völl í umfjöllun
um nafngreint fólk. Læknablaðið lætur þessum
miðlum með ánægju eftir umræðu af því tagi. Eins
er farið um langæjar ritdeilur einstakra lesenda,
deilur sem með tímanum verða öðrum lesendum
til ama og þreytu. í slíkum tilvikum er það skylda
ritstjórnar að taka af skarið og ákvarða hvar mörk
skulu dregin.
Það er brýnt er að ritstjórar Læknablaðsins í
umboði eigenda þess setji fram skýra ritstjórn-
arstefnu, lýsi því hvernig blað við viljum að
Læknablaðið sé. Sömuleiðis, að samdar verði regl-
ur um vinnulag, samskipti og dreifingu ábyrgðar
innan ritstjórnar. Sú ritstjórn sem skipuð var 1.
desember síðastliðinn mun helga næstu mánuði
þessu verkefni. Afraksturinn munum við síðan
birta lesendum blaðsins, ýmist í prent- eða netút-
gáfu þess.
Jóhannes
Björnsson
johbj@landspitali. is
The Editorial Board‘s Agenda
Jóhannes is Professor and
Chairman, Department
of Pathology, Landspítali
University Hospital,
and Editor-in-Chief of The
Icelandic Medical Journal.
Höfundur er meinafræðingur
og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins.
Læknablaðið 2006/92 91