Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 23
FRÆÐIGREINAR / NÆRINGARFRÆÐI
Notkun næringarútreiknaðra matseðla til
að framkalla þyngdartap meðal of þungra
Islendinga á aldrinum 20-40 ára
Ingibjörg
Gunnarsdóttir'
NÆRINGARFRÆÐINGUR
Kolbrún
Einarsdóttir2
NÆRINGARRÁÐGJAFl
Inga Þórsdóttir'
NÆRINGARFRÆÐINGUR
Rannsóknin naut styrkja
frá 6. rammaáætlun
Evrópusambandsins.
'Rannsóknastofa í
næringarfræöi við
Landspítala og matvæla- og
næringarfræðiskor Háskóla
íslands, 2næringarstofa
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Inga Þórsdóttir, rannsókna-
stofu í næringarfræði,
Eiríksgötu 29,101 Reykjavík.
Sími: 543 8416/8410.
ingathor@landspitali. is
Lykilorð: ofþyngd, þyngdart-
ap, orkuþörf, nœringarútr-
eiknaðir matseðlar.
Ágrip
Tilgangur: Að gera íhlutandi rannsókn á þyngdar-
tapi meðal of þungra íslendinga sem nota næring-
arútreiknaða matseðla í samræmi við norrænar
ráðleggingar um næringarefni og veita 30% minni
orku en sem svarar orkuþörf til að viðhalda stöð-
ugri þyngd.
Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru íslenskar
konur (n=71) og karlar (n=43) á aldrinum 20-40
ára, með líkamsþyngdarstuðul (LÞS) á bilinu
28-32 kg/m2. Dagleg orka sem þarf til að halda
óbreyttri þyngd var metin fyrir hvern þátttakanda
í upphafi íhlutunarinnar og hver einstaklingur
fékk matseðil sem svaraði 30% orkuskerðingu.
Næringarútreiknaðir matseðlar með skiptilistum
voru útbúnir þar sem um 50% orkunnar komu
frá kolvetnum, 20% frá próteinum og 30% frá
fitu. Næringarfræðingar veittu ráðgjöf og kenndu
þátttakendum að nota matseðlana. Hæð og þyngd
voru mæld fyrir íhlutun og í lok átta vikna íhlut-
unar.
Niðurstöður: Miðað við 30% orkuskerðingu frá
daglegri orkuþörf áttu matseðlarnir að veita körl-
um að meðaltali (±SD) 1693±108 hitaeiningar
og konum 1349±53 meðan á íhlutun stóð. Meðal-
þyngdartap þátttakendanna voru tæp fimm kg á
átta vikum eða að meðaltali 625 grömrn á viku
(P<0,001). Þyngdartap karla (um 740 grömm á
viku) var marktækt meira en meðal kvenna (525
grömm á viku, P=0,003). Hlutfall of feitra (LÞS 30
kg/m2) lækkaði úr 47% niður í 15% á átta vikna
tímabili.
Alyktun: Næringarútreiknaðir matseðlar með
hlutföll orkuefnanna í samræmi við opinberar ráð-
leggingar, ásamt ráðgjöf næringarfræðings, reynast
vel við að ná fram þyngdartapi meðal of þungra
Islendinga. Aðferðin getur nýst við klínískt starf
í baráttunni gegn ofþyngd og offitu. Mjög lfklegt
er að góð eftirfylgni sé nauðsynleg til að viðhalda
árangrinum.
Inngangur
Á síðustu áratugum hefur tíðni ofþyngdar og of-
fitu aukist til muna bæði erlendis (1) og hér heima
(2). Offita er nú skilgreind sem líkamsþyngdar-
stuðull (LÞS) 30 kg/m2 og yfir. Einstaklingar með
ENGLISH SUMMARY
Gunnarsdóttir I, Einarsdóttir K, Þórsdóttir I
The application of weight loss menues for
overweight lcelanders aged 20-40 years
Læknablaðið 2006; 93: 107-12
Objective: To carry out an intervention study on
weight loss menues for young overweight lcelanders
giving 30% less energy than calculated energy need
for unchanged body weight, with the percentage
of energy giving nutrients in congruity with official
recommendations.
Material and methods: Subjects were women
(n=71) and men (n=43) aged 20-40 y, having a body
mass index (BMI) in the range 28-32 kg/m2. The daily
energy for weight balance at baseline was estimated
for each individual and a menu prepared to give
30% less energy. Energy distribution was 50% from
carbohydrates, 20% from proteins and 30% from fat.
Nutritionists gave advice and taught the participants
how to use the menus. Weight and height were
measured at baseline and at the end of the eight weeks
intervention.
Results: According to a 30% energy reduction from
the daily energy need the menus were prepared to give
on average (±SD) 1693±108 kcal and 1349±53 kcal
for men and women, respectively. The average weight
loss was five kg during the eight weeks intervention,
625 g per week (<0.001). Men lost more weight (around
740 g/week) than women (525 g/week, P=0.003). The
proportion of obese (BMI 30 kg/m2) decreased from
being 47% to 15% during the intervention.
Conclusion: Menus with the proportion of energy
giving nutrients in line with official recommendations,
together with nutritional counseling, prove to be a
successful mean to bring off weight loss among young
overweight lcelandic individuals. The method can be
useful in clinical settings in the battle against increasing
prevalence of overweight and obesity. It is likely that
thorough follow-up treatment is necessary to maintain
the weight loss
Key words: overweight, weight loss, energy need, menus.
Correspondance: Inga Þórsdóttir, ingathor@iandspitaii.is
líkamsþyngdarstuðul á bilinu 25 kg/m2 til 29,9 kg/
nr2 teljast of þungir (1). Ofþyngd og offita eru sjálf-
stæðir áhættuþáttir fyrir hjartasjúkdóma (1, 3),
auk þess sem tíðni sykursýki af gerð tvö, háþrýst-
ings og heilablóðfalls, blóðfituhækkunar, kæfi-
Læknablaðið 2006/92 107