Læknablaðið - 15.02.2006, Side 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPSKT SAMSTARF
CPME-fundur í Stokkhólmi
Katrín Fjeldsted
katrinf@sinmet.is
Höfundur er fulltrúi
Læknafélags íslands í
Evrópusamtökum lækna,
CPME.
Samtök evrópskra lækna (CPME) funduðu dag-
ana 18. og 19. nóvember 2005 í Stokkhólmi. Fyrri
daginn var stjórnarfundur en aðalfundur hinn
síðari. Þetta fyrirkomulag kemur alltaf jafnspánskt
fyrir sjónir þar sem fundarmenn eru hinir sömu og
þurfa þeir seinni daginn að samþykkja það sern
þeir hafa sjálfir lagt til daginn á undan. En margt
er framandi í hinum stóra heimi.
Lagabreytingar
Á stjórnarfundinum var rætt um lagabreytingar og
flest óútkljáð, en að mati framkvæmdastjórnar er
margt í lögum samtakanna og reglugerð sent þarf
að endurskoða. Nefna má meirihluta fyrir ákvörð-
unum, sérlega hvenær 3/4 atkvæða eigi að krefjast
og hvort um 3/4 af öllum aðildarlöndum eða ein-
ungis þeirra sem viðstaddir eru sé að ræða.
ECDC
Evrópustofnunin, ECDC, European Centre for
Disease Prevention and Control er í Stokkhólmi
og á fyrst og fremst að sinna smitsjúkdómum sem
áhrif geta haft á íbúa Evrópu en mun án efa seilast
í verkefni á sviði lýðheilsu. Hin nýja stofnun mun
leitast við að samræma það sem aðildarlönd ESB
aðhafast í smitsjúkdómamálum en sem stendur
eru tilkynningaskyldir sjúkdómar 52 talsins í okkar
heimshluta. Reyndar starfar deild frá WHO í
Evrópu en 75% af þeirra kröftum fara í fyrrunt
Sovétlýðveldin og löndin sem WHO sinnir eru
mun fleiri en þau sem eru í ESB.
Vinnumarkaðsmál
Kynnt var skjal urn samninga á vinnumarkaði innan
ESB urn tvíhliða og þríhliða viðræður sem eiga
sér stað milli launþega, atvinnurekenda og stjórn-
valda. Eins og stendur hefur CPME ekki aðkomu
þar að. Verði svo áfram munu samtökin ekki taka
þátt í ýmsum þáttum í kjörum lækna sem hingað til
hefur verið gert og við þaö eru margir ósáttir. Pessi
umræða varð ekki til lykta leidd enda viðamikil og
flókin. Settur var á laggirnar vinnuhópur sem var
falið að skila af sér fyrir marsfund 2006.
HIV/AIDS
Skjal um HIV/AIDS var samþykkt með breyting-
um sem komið höfðu frá aðildarlöndunum. Þar er
fjallað um eftirfarandi mál og tiltekin þau atriði
sem beint er til Evrópuráðsins að beita sér fyrir:
1. siðfræði og HIV/AIDS
2. lyfjanotkun og HIV/AIDS
3. fangar og HIV/AIDS
4. flutningar fólks og HIV/AIDS
5. konur og HIV/AIDS
6. heilbrigðisstarfsmenn og HIV/AIDS
7. rannsóknir
8. samstarf þeirra sem málið varðar
Guantanamo og Balkanheilkennið
Tillaga frá breska læknafélaginu um Guantanamo
var samþykkt samhljóða sem hér segir:
In recognition of established United Nations declar-
ations concerning the inhumane treatment of detainees,
and World Medical Association declarations prohibiting
the involvemeent of doctors in the abuse of prisoners,
including the force feeding of hunger strikers, CPME
requests the European Commission and the European
Parliament to demand that the US Government
1- places all detainees in the detention facility at
Guantanamo under the protection of internation-
al law, and the Geneva Conventions
2- recognises and implements internationally accept-
ed codes prohibiting the abuse and torture of pris-
oners and ensures that doctors are not associated
with any such acts.
3- immediately ceases force-feeding hunger strikers
at Guantanamo, recognising that their competent
refusal to be fed should be respected.
Fjallað var um bréf frá grísku sendinefndinni
um Balkanheilkennið svonefnda sem menn kalla
aukna tíðni hvítblæðis og krabbameins á því land-
svæði og tengja við notkun úraníums í stríðinu
þar.
Aðalfundur samtakanna hófst með ræðu Ylvu
Johanson, ráðherra heilbrigðismála og málefna
aldraðra í Svíþjóð. Reikningar fyrir árið 2004 og
umsögn undirritaðrar sem innri endurskoðanda
voru samþykktir samhljóða. Samþykktar voru um-
sóknir Litháens (með 7000 lækna sem er um 70%
litháenskra lækna) og Sviss (FMH =Foederatio
Medicorunt Helveticorum, með um 26 þúsund fé-
laga) um aðild að CPME.
Verðandi forseti, Daniel Mart, fór síðan yfir sýn
sína fyrir CPME næstu tvö árin. Roland Lemye
frá Belgíu, Marco Bitenc frá Slóveníu, Louis-Jean
Calloc’h frá Frakklandi og Katrín Fjeldsted frá
Islandi verða honum við hlið sem varaforsetar.
140 Læknablaðið 2006/92