Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 56

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPSKT SAMSTARF CPME-fundur í Stokkhólmi Katrín Fjeldsted katrinf@sinmet.is Höfundur er fulltrúi Læknafélags íslands í Evrópusamtökum lækna, CPME. Samtök evrópskra lækna (CPME) funduðu dag- ana 18. og 19. nóvember 2005 í Stokkhólmi. Fyrri daginn var stjórnarfundur en aðalfundur hinn síðari. Þetta fyrirkomulag kemur alltaf jafnspánskt fyrir sjónir þar sem fundarmenn eru hinir sömu og þurfa þeir seinni daginn að samþykkja það sern þeir hafa sjálfir lagt til daginn á undan. En margt er framandi í hinum stóra heimi. Lagabreytingar Á stjórnarfundinum var rætt um lagabreytingar og flest óútkljáð, en að mati framkvæmdastjórnar er margt í lögum samtakanna og reglugerð sent þarf að endurskoða. Nefna má meirihluta fyrir ákvörð- unum, sérlega hvenær 3/4 atkvæða eigi að krefjast og hvort um 3/4 af öllum aðildarlöndum eða ein- ungis þeirra sem viðstaddir eru sé að ræða. ECDC Evrópustofnunin, ECDC, European Centre for Disease Prevention and Control er í Stokkhólmi og á fyrst og fremst að sinna smitsjúkdómum sem áhrif geta haft á íbúa Evrópu en mun án efa seilast í verkefni á sviði lýðheilsu. Hin nýja stofnun mun leitast við að samræma það sem aðildarlönd ESB aðhafast í smitsjúkdómamálum en sem stendur eru tilkynningaskyldir sjúkdómar 52 talsins í okkar heimshluta. Reyndar starfar deild frá WHO í Evrópu en 75% af þeirra kröftum fara í fyrrunt Sovétlýðveldin og löndin sem WHO sinnir eru mun fleiri en þau sem eru í ESB. Vinnumarkaðsmál Kynnt var skjal urn samninga á vinnumarkaði innan ESB urn tvíhliða og þríhliða viðræður sem eiga sér stað milli launþega, atvinnurekenda og stjórn- valda. Eins og stendur hefur CPME ekki aðkomu þar að. Verði svo áfram munu samtökin ekki taka þátt í ýmsum þáttum í kjörum lækna sem hingað til hefur verið gert og við þaö eru margir ósáttir. Pessi umræða varð ekki til lykta leidd enda viðamikil og flókin. Settur var á laggirnar vinnuhópur sem var falið að skila af sér fyrir marsfund 2006. HIV/AIDS Skjal um HIV/AIDS var samþykkt með breyting- um sem komið höfðu frá aðildarlöndunum. Þar er fjallað um eftirfarandi mál og tiltekin þau atriði sem beint er til Evrópuráðsins að beita sér fyrir: 1. siðfræði og HIV/AIDS 2. lyfjanotkun og HIV/AIDS 3. fangar og HIV/AIDS 4. flutningar fólks og HIV/AIDS 5. konur og HIV/AIDS 6. heilbrigðisstarfsmenn og HIV/AIDS 7. rannsóknir 8. samstarf þeirra sem málið varðar Guantanamo og Balkanheilkennið Tillaga frá breska læknafélaginu um Guantanamo var samþykkt samhljóða sem hér segir: In recognition of established United Nations declar- ations concerning the inhumane treatment of detainees, and World Medical Association declarations prohibiting the involvemeent of doctors in the abuse of prisoners, including the force feeding of hunger strikers, CPME requests the European Commission and the European Parliament to demand that the US Government 1- places all detainees in the detention facility at Guantanamo under the protection of internation- al law, and the Geneva Conventions 2- recognises and implements internationally accept- ed codes prohibiting the abuse and torture of pris- oners and ensures that doctors are not associated with any such acts. 3- immediately ceases force-feeding hunger strikers at Guantanamo, recognising that their competent refusal to be fed should be respected. Fjallað var um bréf frá grísku sendinefndinni um Balkanheilkennið svonefnda sem menn kalla aukna tíðni hvítblæðis og krabbameins á því land- svæði og tengja við notkun úraníums í stríðinu þar. Aðalfundur samtakanna hófst með ræðu Ylvu Johanson, ráðherra heilbrigðismála og málefna aldraðra í Svíþjóð. Reikningar fyrir árið 2004 og umsögn undirritaðrar sem innri endurskoðanda voru samþykktir samhljóða. Samþykktar voru um- sóknir Litháens (með 7000 lækna sem er um 70% litháenskra lækna) og Sviss (FMH =Foederatio Medicorunt Helveticorum, með um 26 þúsund fé- laga) um aðild að CPME. Verðandi forseti, Daniel Mart, fór síðan yfir sýn sína fyrir CPME næstu tvö árin. Roland Lemye frá Belgíu, Marco Bitenc frá Slóveníu, Louis-Jean Calloc’h frá Frakklandi og Katrín Fjeldsted frá Islandi verða honum við hlið sem varaforsetar. 140 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.