Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HUGÐAREFNI
pallhýsi sem í eru öll þægindi. Pannig höfum við
náð að kynnast flestum markverðum stöðum hér
á landi og gengið á ntörg fjöll. Þetta hefur svo leitt
til þess að ég les mikið um sögu einstakra héraða
og hef sérstakan áhuga á gömlum þjóðleiðum. Allt
sem tengist því hvernig þessi þjóð lifði hér í gegn-
urn aldirnar finnst mér afar áhugaverl.
Skotveiði hef ég stundað frá því í læknadeild
og við erum saman í þessu, ég Niels og Þorsteinn
Gíslason. Nú orðið er þetta fyrst og fremst gæsa-
veiði og nær eingöngu veiði á heiðagæs og hels-
ingja. Við byrjum inni á hálendinu í ágúst og
endum austur á söndum þegar komið er fram í
október. Þetta hafa stundum orðið erfiðar slark-
ferðir í misjöfnum veðrum. Þá er nauðsynlegt að
vera á góðum bílum og hafa húsaskjól í pallhýsinu
á trukknum mínum.“
Bóklestur á veturna
En það er ekki hægt að stunda útivist og veiðiskap
allt árið eins og viðrar hér á landi.
„Þegar kemur fram í október taka við önnur
hugðarefni sem er lestur íslenskra fornbókmennta
og sagnfræði en hvort tveggja hefur verið áhuga-
mál hjá mér frá því ég kynntist slíkum lestri ungur
að árum hjá afa mínum í Stykkishólmi, gömlum
sjómanni úr Breiðafjarðareyjum. Eg er í 12 manna
leshóp sem hefur hist aðra hverja viku yfir vetur-
inn síðastliðin 15 ár og lesið fornsögur. Við köllum
okkur Sturlunga því það var fyrsta sagan sem við
lásum og reyndar höfum við lesið hana tvisvar.
Síðan förum við í ferðalag á söguslóðir á vorin og
toppurinn er þá að hitta heimamenn sem þekkja
vel til sögunnar og geta tengt hana staðháttum.
í sagnfræðinni á ég mér nokkur aðaláhuga-
mál og kaupi mikið af bókum sent þeim tengj-
ast. Frá árinu 2004 hefur áhugi minn beinst að
íslandssögunni frá 1262 til siðskipta, það er norsku,
ensku og þýsku öldinni. Önnur uppáhaldsefni eru
víkingar, sérstaklega siglingar þeirra, norðmannar
og krossferðir. Ég hef átt því láni að fagna að kom-
ast í góðar ferðir á söguslóðir með skemmtilegu
fólki. Til dæmis fórum við hjónin til Norðmandí og
Suður-Englands í júní síðastliðinn á slóðir víkinga
og Vilhjálms sigurvegara sem vann frækilegan
sigur við Hastings 1066.
Þessi áhugi á siglingum, fornsögum, sagnfræði
og fleiru hefur leitt til þess að ég kaupi ntikið af
bókum. Ég er því tíður gestur á fornbókasölum
og á orðið allgott bókasafn. Enda er það besta
afslöppun sem ég þekki að sitja í bókastofunni og
handfjatla gersemar á borð við Fornbréfasafnið,
Safn til sögu Islands, Sýslumannsævir og margt
fleira,“ segir Hafsteinn Sæmundsson.
Hafsteinn í fullum her-
klœðum við pallbílinn ú
leið í kvöldflug heiðargœs-
anna ú Síðuafrétti.
Læknablaðið 2006/92 155