Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 75

Læknablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 184 Umskurður Nýlega barst fyrirspurn um hvort væri réttara, umskurður eða umskurn, sem heiti á þeirri að- gerð er tíðum ber latneska fræðiheitið circumcisio. Fyrirspyrjandi sagðist aðeins hafa vanist fyrra heitinu, en taldi að nú væri það síðara að sækja á. íðorðasafn lækna birtir þrjú íslensk heiti: forhúðar- stýfing, umskurn, umskurður. Rétt er að minna á að fyrri orðhlutinn, circum, merkir umhverfis og að síðari orðhlutinn, cisio, er talinn dreginn af sögn- inni caedere, að skera. íslenska heitið umskurður er því bein þýðing. Náskyld eru latnesku nafnorðin excisio, úrnám, brottnám, og incisio, skurður, rista, skurðaðgerð, risting. Leit í textasafni Orðabókar Háskólans leiddi í ljós að bæði heitin umskurn og umskurður koma fyrir í íslensku bíblíumáli allt frá 16. öld. Umskurn kemur þó mun oftar fyrir. Til eru einnig heitin umskorning og umskurning. Leit á netinu leiddi hins vegar í Ijós að heitið umskurður væri nú mun meira notað í almennri umræðu, en að heitið um- skurn væri fremur notað í trúarlegri umræðu og í tengslum við biblíuna. Niðurstaðan er því sú að bæði heitin séu „rétt“, en að heitið umskurður sé oftar notað í læknisfræðilegu samhengi. ALTE Sigurður Þorgrímsson, barnalæknir, hafði sam- band fyrir nokkuð löngu síðan og var þá að leita að íslensku heiti til að nota um fyrirbærið apparent life-threatening event. Endurteknar atlögur voru gerðar að þessu verkefni en ekkert gekk lengi vel. Það var ekki fyrr en Sigurður setti fram þá kröfu, að nýtt íslenskt heiti yrði að vera tilbúið fyrir 20. janúar 2006, að umræðan komst á skrið. Enska heitið og skammstöfunin voru búin til árið 1986 í tengslum við ráðstefnu um alvarleg andhlé (apnea) hjá ungbörnum. Þar voru meðal annars til umræðu hugsanleg tengsl við skyndi- dauða ungbarna (SIDS), en óvænt og langvarandi andhlé hjá ungbörnum voru þá oft nefnd „næstum því skyndidauði" (near-miss SIDS) eða „stöðv- aður vöggudauði“ (aborted crib death). Tengslin eru nú ekki talin skipta máli hvað varðar orsakir skyndidauða ungbarna, en sum ungbörn fá engu að síður alvarleg andhlé, sem vísað er til með heit- inu apparenf life-threatening event. Fyrirbærinu er þannig lýst: Skyndileg og óvœnt breyting á öndun ungbarns sem vekur athygli og virðist ógnandi. Öndun stöðvast í meira en 20 sekúndur. Húðlitur breytist og verður ýmist fölur, blár eða rauðleitur. Vöðvaspenna minnkar. Andköf og köfnunarhljóð heyrast gjarnan. Að baki þessu geta legið vanda- mál í meltingarvegi, taugakerfi, öndunarvegi, hjarta eða öðrum líffærakerfum. Allt að helmingur tilvika er þó án finnanlegrar ástæðu. Eftir ítarlega umræðu, þar sem meðal annars voru sett fram heitin: andarteppukast, alvarlegt andhlé, lífshættukast og öndunarstöðvunarkast, komumst við loks niður á að setja fram eftirfarandi tillögu að íslensku heiti: lífshættuatvik ungbarna. Með því teljum við að farið sé eins nærri því og hægt er að þýða enska heitið beint. íslenska heitið er hlutlaust og má nota hvort sem fyrirbærið er af óþekktum uppruna eða birtist í tengslum við vandamál í tilteknum líffærakerfum. Markviss meðferð Helgi Sigurðsson, krabbameinslæknir, hélt nýlega fyrirlestur á LSH um nýjungar í meðferð krabba- meina. Þar kom fyrir hugtakið targeted therapy. Um það notaði Helgi íslenska heitið niarkviss með- ferð, sem ekki er að finna í íðorðasafni lækna. Hugtakið targeted therapy er einkum notað í krabbameinslækningum og vísar til þess að notað sé lyf eða önnur meðferð sem beinist sérhæft að tilteknu ferli eða jafnvel tiltekinni sameind, til dæmis viðtaka, í efnaskiptum, þróun eða vexti æxla. Spyrja má hvort marksækin nieðferð sé ekki betra heiti. Gaman væri að fá fréttir af öðrum hug- myndum eða viðbrögðum annarra lækna við þessu heiti. Heilablæðing Albert Páll Sigurðsson, taugasjúkdómalæknir, leit- aði nýlega til undirritaðs og óskaði eftir ráðlegg- ingu varðandi heitin heilablóðfall og slag. Hann greindi frá því að honum hugnaðist ekki fyrra orðið sem samheiti um heilablæðingar. Við uppflettingu í íðorðasafni lækna kom í ljós að blóðfall kemur fyrir í nokkrum samsettum heit- um, en þau vísa til blæðinga í tilgreindum líffærum, heila, mænu eða nýrnahettu (nýrli). Nafnorðið slag kemur einnig fyrir í samsetningum og er þá ýmist verið að tákna hjarta- eða æðaslátt, dæmi aukaslag, gáttslag, eða kast af einhverju tagi, dæmi bakslag, hitaslag. Framhald í nœsta blaði. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali. is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2006/92 159
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.