Læknablaðið - 15.02.2006, Qupperneq 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 184
Umskurður
Nýlega barst fyrirspurn um hvort væri réttara,
umskurður eða umskurn, sem heiti á þeirri að-
gerð er tíðum ber latneska fræðiheitið circumcisio.
Fyrirspyrjandi sagðist aðeins hafa vanist fyrra
heitinu, en taldi að nú væri það síðara að sækja á.
íðorðasafn lækna birtir þrjú íslensk heiti: forhúðar-
stýfing, umskurn, umskurður. Rétt er að minna á
að fyrri orðhlutinn, circum, merkir umhverfis og
að síðari orðhlutinn, cisio, er talinn dreginn af sögn-
inni caedere, að skera. íslenska heitið umskurður
er því bein þýðing. Náskyld eru latnesku nafnorðin
excisio, úrnám, brottnám, og incisio, skurður, rista,
skurðaðgerð, risting.
Leit í textasafni Orðabókar Háskólans leiddi í
ljós að bæði heitin umskurn og umskurður koma
fyrir í íslensku bíblíumáli allt frá 16. öld. Umskurn
kemur þó mun oftar fyrir. Til eru einnig heitin
umskorning og umskurning. Leit á netinu leiddi
hins vegar í Ijós að heitið umskurður væri nú mun
meira notað í almennri umræðu, en að heitið um-
skurn væri fremur notað í trúarlegri umræðu og
í tengslum við biblíuna. Niðurstaðan er því sú að
bæði heitin séu „rétt“, en að heitið umskurður sé
oftar notað í læknisfræðilegu samhengi.
ALTE
Sigurður Þorgrímsson, barnalæknir, hafði sam-
band fyrir nokkuð löngu síðan og var þá að leita
að íslensku heiti til að nota um fyrirbærið apparent
life-threatening event. Endurteknar atlögur voru
gerðar að þessu verkefni en ekkert gekk lengi vel.
Það var ekki fyrr en Sigurður setti fram þá kröfu,
að nýtt íslenskt heiti yrði að vera tilbúið fyrir 20.
janúar 2006, að umræðan komst á skrið.
Enska heitið og skammstöfunin voru búin til
árið 1986 í tengslum við ráðstefnu um alvarleg
andhlé (apnea) hjá ungbörnum. Þar voru meðal
annars til umræðu hugsanleg tengsl við skyndi-
dauða ungbarna (SIDS), en óvænt og langvarandi
andhlé hjá ungbörnum voru þá oft nefnd „næstum
því skyndidauði" (near-miss SIDS) eða „stöðv-
aður vöggudauði“ (aborted crib death). Tengslin
eru nú ekki talin skipta máli hvað varðar orsakir
skyndidauða ungbarna, en sum ungbörn fá engu
að síður alvarleg andhlé, sem vísað er til með heit-
inu apparenf life-threatening event. Fyrirbærinu er
þannig lýst: Skyndileg og óvœnt breyting á öndun
ungbarns sem vekur athygli og virðist ógnandi.
Öndun stöðvast í meira en 20 sekúndur. Húðlitur
breytist og verður ýmist fölur, blár eða rauðleitur.
Vöðvaspenna minnkar. Andköf og köfnunarhljóð
heyrast gjarnan. Að baki þessu geta legið vanda-
mál í meltingarvegi, taugakerfi, öndunarvegi,
hjarta eða öðrum líffærakerfum. Allt að helmingur
tilvika er þó án finnanlegrar ástæðu.
Eftir ítarlega umræðu, þar sem meðal annars
voru sett fram heitin: andarteppukast, alvarlegt
andhlé, lífshættukast og öndunarstöðvunarkast,
komumst við loks niður á að setja fram eftirfarandi
tillögu að íslensku heiti: lífshættuatvik ungbarna.
Með því teljum við að farið sé eins nærri því og
hægt er að þýða enska heitið beint. íslenska heitið
er hlutlaust og má nota hvort sem fyrirbærið er
af óþekktum uppruna eða birtist í tengslum við
vandamál í tilteknum líffærakerfum.
Markviss meðferð
Helgi Sigurðsson, krabbameinslæknir, hélt nýlega
fyrirlestur á LSH um nýjungar í meðferð krabba-
meina. Þar kom fyrir hugtakið targeted therapy.
Um það notaði Helgi íslenska heitið niarkviss með-
ferð, sem ekki er að finna í íðorðasafni lækna.
Hugtakið targeted therapy er einkum notað í
krabbameinslækningum og vísar til þess að notað
sé lyf eða önnur meðferð sem beinist sérhæft að
tilteknu ferli eða jafnvel tiltekinni sameind, til
dæmis viðtaka, í efnaskiptum, þróun eða vexti
æxla. Spyrja má hvort marksækin nieðferð sé ekki
betra heiti. Gaman væri að fá fréttir af öðrum hug-
myndum eða viðbrögðum annarra lækna við þessu
heiti.
Heilablæðing
Albert Páll Sigurðsson, taugasjúkdómalæknir, leit-
aði nýlega til undirritaðs og óskaði eftir ráðlegg-
ingu varðandi heitin heilablóðfall og slag. Hann
greindi frá því að honum hugnaðist ekki fyrra
orðið sem samheiti um heilablæðingar.
Við uppflettingu í íðorðasafni lækna kom í ljós
að blóðfall kemur fyrir í nokkrum samsettum heit-
um, en þau vísa til blæðinga í tilgreindum líffærum,
heila, mænu eða nýrnahettu (nýrli). Nafnorðið slag
kemur einnig fyrir í samsetningum og er þá ýmist
verið að tákna hjarta- eða æðaslátt, dæmi aukaslag,
gáttslag, eða kast af einhverju tagi, dæmi bakslag,
hitaslag.
Framhald í nœsta blaði.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
johannhj@landspitali. is
Jóhann Heiðar er læknir
á Landspítala Hringbraut.
Læknablaðið 2006/92 159