Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 33

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 33
LYFJAMÁL / AUKAVERKANIR færa rök fyrir því að siðferðileg skylda sé fyrir hendi. I sameiginlegri yfirlýsingu evrópskra lækna og Samtaka lyfjaiðnaðarins í Evrópu sem birt var í júní 2005 (4) er kveðið á um að læknar skuli til- kynna aukaverkanir lyfja. Það er einnig athyglis- vert að samkvæmt reglugerð nr. 462/2000 er ntark- aðsleyfishafa lyfja skylt að halda utan um allar ætlaðar alvarlegar aukaverkanir sem tilkynntar eru honum frá heilbrigðisstarfsmönnum. Þeirn ber jafnframt skylda til að senda Lyfjastofnun upplýs- ingar um allar slíkar aukaverkanir. Verkferli á Lyfjastofnun Lyfjastofnun er skylt að skrá allar upplýsingar sem henni berast um aukaverkanir á Islandi og til- kynntar eru stofnuninni. Lyfjastofnun heldur sinn eigin gagnagrunn þar sem öllum tilkynningum sem stofnuninni berast er safnað saman. Allar tilkynningar eru yfirfarnar og metnar af lækni og lyfjafræðingi hjá stofnuninni meðal annars með tilliti til alvarleika aukaverkun- ar og hvort nægjanlegar upplýsingar séu til staðar. Upplýsingarnar sem settar eru inn í gagnagrunn Lyfjastofnunar eru allar þær upplýsingar sem koma fram á eyðublaðinu og er rnjög mikilvægt að eyðublaðið sé fyllt út á fullnægjandi hátt. Tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir eru sendar áfram inn í gagnagrunn sem rekinn er af Lyfjastofnun Evrópu (EMEA), EudraVigilance (5). Lyfjastofnun sendir einnig tilkynningarnar um aukaverkanir inn í gagnagrunn alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar (WHO), Vigibase (6). Ekki eru sendar upplýsingar um hvaða heil- brigðisstarfmaður tilkynnti aukaverkunina, þeim upplýsingum heldur Lyfjastofnun fyrir sig. MedDRA kóðun í hverri aukaverkanatilkynningu eru tilgreindar ein eða fleiri aukaverkanir sem þarf að kóða sam- kvæmt MedDRA (Medical Dictionary for Drug Regulatory Activities) (7). Einnig þarf að kóða grunnsjúkdóm sjúklingsins. Þessi kóðun er fram- kvæmd af lækni. í MedDRA eru um 30 þúsund atriði og má líkja því við ICD-10. Hvert atriði í MedDRA hefur nafn og átta stafa tölu (til dæmis hypertension 10020772). Þetta flokkunarkerfi er mikið notað víða um heim og er í stöðugri þróun. Kóðun aukaverkana í MedDRA er forsenda þess að hægt sé að senda tilkynningar áfram til erlendra gagnasafna. Erlend gagnasöfn Island hefur verið aðili að söfnun aukaverk- ana á vegum alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í yfir 30 ár en aðeins fáar tilkynningar hafa verið sendar þangað þar til nú. Sú stofnun WHO sem sér um þetta er Uppsala Monitoring Center (UMC) sent hefur starfað í tæp 40 ár og er með aðild yfir 70 landa (8). í gagnasafni UMC eru yfir 3,5 milljónir aukaverkanatilkynninga og Lyfjastofnun hefur fullan aðgang að þeim og getur leitað í safninu. Við kóðun aukaverkana í þessu kerfi er notað kerfi sem heitir WHO-ART (WHO- Adverse Reaction Terntinology) sem inniheldur tæplega 2000 atriði og er þess vegna miklu minna en MedDRA. Nýlega var hafin söfnun aukaverkana á veg- um Evrópusambandsins í kerfi sem heitir Eudra Vigilance (5). Niðurstöður A öllu tímabilinu bárust 86 tilkynningar og þeim fjölgaði úr tvær árið 1999 í 26 árið 2004, sjá mynd 1. Af tilkynningunum flokkuðust 33 (38%) sem alvarlegar og 53 (62%) sem ekki alvarlegar. Konur voru 54 (63%) og karlar 32 (37%). Næstum allar tilkynningarnar eða 83 komu frá læknum, tvær komu frá lyfjafræðingum og ein frá hjúkrunar- fræðingi. Meirihluti tilkynninganna eða 52 (60%) barst frá sjúkrahúsi eða heilsugæslu. Afdrif sjúklinganna eru sýnd í töflu I. Sex sjúk- lingar náðu sér að hluta og sjö höfðu ekki náð bata þegar tilkynningin var send en gera má ráð fyrir að þessar tölur lækki eitthvað með tímanum. Fjöldi tilkynninga 30-i 1999 2000 2001 2002 2003 2004 Ár Tafla 1. Taflan sýnir afdrif sjúklinganna. Óþekkt 10 Náöi sér að fullu 54 Náöi sér að hluta 6 Hefur ekki náð bata 7 Lífshættulegt ástand 8 Sjúklingur lést 1 Mynd 1. Myndin sýnir fjölda tilkynninga á ári, allt tímabilið. Læknablaðið 2006/92 285
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.