Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 63

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HJÁLPARSTARF árið 1986 með matargjöfum til vannærðra barna. Pegar starfsmennirnir sáu að börnin brögguðust ekki þrátt fyrir mat og drykk kölluðu þeir til lækni til að athuga málið. Iðrasýkingar reyndust oftast ástæðan og upp úr því var fyrsta heilsugæslustöð Provide opnuð í Korogotcho hverfinu árið 1989. Nú rekur Provide sex heilsugæslustöðvar í jafn- mörgum fátækrahverfum, sú síðasta að opna rétt í þessu. Upptökusvæði heilsugæslanna er um ein milljón íbúa og eru komur á stöðvarnar um 100.000 á ári. Komugjald er ekkert en fólk þarf að greiða fyrir lyf. Stöðvarnar bjóða upp á fæðingarhjálp, mæðravernd, ungbarnavernd og tannlæknaþjón- ustu auk almennrar læknisþjónustu. Þær hafa allar auk þess möguleika á að leggja fólk inn og hafa einn sjúkrabíl til umráða, VW rúgbrauð frá 1989 (sem reyndar er óstarfhæfur í bili). Þessi sjúkrabill er sá eini í borginni sem hættir sér inn fyrir svæði fátækrahverfanna. Flest frjálsu félagasamtökin leita styrkja út fyrir landsteinana og hefur Provide meðal annars gert samning við norska læknanema. Þeir hafa því í nokkur ár farið klyfjaðir hjálpargögnum til Kenýa í sjálfboðavinnu. Þetta Kenýaverkefni hefur nú víkkað út starfsemi sína og læknanemar fleiri landa fengið möguleika á að fara út. I sumar tóku íslendingar þátt í fyrsta skipti og héldum við fimm læknanemar á 4.-6. ári af stað í ævintýraför, Erna Halldórsdóttir, Eyjólfur Þorkelsson, Kristín Ólína Kristjánsdóttir, Margrét Ólafía Tómasdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir. Öll hafði okkur dreymt um að fara til fjarlægra landa í sjálfboðavinnu og Kenýaverkefnið reynd- ist gullið tækifæri. Þegar ferðin hafði verið stað- fest tók við nokkurra mánaða undirbúningstími þar sem sótt var um styrki fyrir ferðakostnaði og hjálpargögnum og upplýsinga aflað um aðstæður í Kenýa. Við kynntum verkefnið meðal annars fyrir Læknafélagi íslands sem veitti okkur rausnarlegan styrk til fararinnar. Óskin var að rætast. Eins leituðum við á náðir deildarstjóra á Landspítalanum en þeir voru margir duglegir að safna hjálpargögnum og að lokum gátum við lagt af stað klyfjuð rúmum 120 kílóum af nytsamlegum hlutum. Fengum við sem betur fer undanþágu hjá flugfélögunum fyrir öllum þessum farangri. Við lentum í Naíróbí seint um kvöld og niða- myrkur umlukti borgina. Þá nótt er við lágum í gömlum rúmum, kappklædd undir moskítónetum og hrukkum upp við skothvelli vorum við óviss um hvað við værum komin út í. Óvissan minnkaði ekki morguninn eftir þegar við sáum hvernig borgin leit út. Við vorum undir ýmislegt búin en þetta kom enn meira á óvart en okkur datt í hug. Hvert ein- asta andartak var nýtt. Nú, hálfu ári eftir að heim er komið, er upplifunin enn að meltast og einstaka hlutir að ná samhengi. í raun voru aðstæðurnar svo framandi að skynjunin náði ekki alltaf utan um þær. Kannski var það okkur fyrir bestu. Fyrsti dagurinn í vinnunni rann upp en eins og seinna kom í ljós að var kenýsk venja vorum við sótt alltof seint. Okkur leist ekkert á þegar par Götumynd úr fátœkra- liverfi í Naíróbí. Sjúkrabíll fátœkrahverf- anna í eigu Provide International. Læknablaðið 2006/92 315
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.