Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 77

Læknablaðið - 15.04.2006, Page 77
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA INNRENNSLISLYFJA Mynd 1. Klórprómazín var upphaflega sett á tnarkaö tneð sérlyfjaheitinu Largactil® sem þýðir „Itið stórvirka eða mikilvirka". Notkun þess (fyrst 1952) braut réttilega blað í meðferð fólks sem lialdið er geðklofa eða œði. Það var að því best er vitað fyrst notað hér á landi sumarið 1954 á Kleppsspítalanum (gamalt sýnishorn í Lyfjafræðisafninu). (Ljósm.: Óttar Kjartansson.) því að reyna að virkja boðefni í taugakerfi sjúkling- anna í þeirri veiku von að slíkt kæmi að gagni við geðsjúkdóma. Lyfjagjafir í síðari flokknum hafa nú fengið á sig furðulegan blæ þegar við bæði vitum og getum gert betur. Raunar á sama við sumt af lyfjagjöfum í fyrri flokknum einnig. Eitt afbrigði af róandi meðferð geðsjúklinga virtist þannig vera fólgið í því að gefa etra (etýletra), leystan í salt- vatni, í innrennsli. Á minni tíð á Kleppsspítala var þessari meðferð þó sem betur fer einungis ávísað á einn sjúkling, unga stúlku. Var það góðu heilli ekki gert oftar því að etri svo gefinn getur sem hægast valdið síðkominni æsingu eins og þeir þekkja sem einhvern tíma hafa svæft með etra á opinn maska. Nú var þrautin eftir að búa til saltvatnslausn með etra í og gefa stúlkunni. Ég hafði fyrr urn sumarið verið stúdent í Lyfjabúðinni Iðunni í einn mánuð (slíks var þá krafist af læknastúdent- um vegna lyfsölu í héraði) og kunni að fara með einfalda lyfjavog. Ég vó því 9 g af natríumklóríði og leysti í lítra af eimuðu og sæfðu vatni (sennilega keypt í Lyfjaverslun ríkisins) og kom í hreina gler- flösku af þeirri gerð sem lengi var notuð undir inn- rennslislyf (sjá mynd 2). Að öllum líkindum hef ég svo sett þetta „pródúkt" í hitaskáp, þótt ég muni það nú ekki lengur. Hér kom hins vegar upp óvænt vandamál: Spítalinn átti einungis einn innrennsl- isbúnað (infúsíonssett) og í hann vantaði síuna (sjá mynd 3). Ég taldi að tilgangslaust væri að blanda etra (hefur vafalaust verið etri til svæfinga, Aether ad narcosin) í saltvatnið ef innrennslisbúnaðurinn væri enn í ólagi. Hringt var í Lyfjaverslunina, en þar var enginn innrennslisbúnaður til. Hvað var þá til ráða? Jú, sían hafði verið úr nælon og það hlaul að mega búa til síu til bráðabirgða úr nælon! Mynd 2. Frá framleiðslu (áfyUingu) á innrennslislyfjum í Lyfjaverslun ríkisins 1982 (tekið eftir (5)). Uppi á einni deild Kleppsspítala var kona nokk- uð við aldur sem áður hafði forframast í tískuheimi Parísar ef ég man rétt. Dr. Helga Tómassyni fannst mikið til um hannyrðir konunnar og á stofugangi komst ég að því að hún átti mikið safn af alls konar sokkum: silkisokkum, ísgarnssokkum, nælonsokk- um, perlonsokkum og guð má vita hvað af öðrum sokkum. Langmest af þeim voru háir og miklir sokkar - fyrir tísku sokkabuxna. Ég sneri mér nú til þessarar konu og bar upp við hana vanda minn. Hún hlustaði vandlega á mig og greip ekki fram í. Þegar ég lauk máli mínu sagði hún strax að ég skyldi fremur nota síu úr silkisokki en næl- onsokki. Silkið væri þægilegra að klippa og færi betur í suðu, en vitanlega yrði ég að sjóða viðeig- andi sokkapjötlu til þess að gera úr eitthvað sem líktist síu. Svo kvað hún upp þann dóm að hún ætti einn „sérstakan" sokk sem henta myndi vel í síuna! Hófst hún nú óðara handa við að leita að sokknum. Hún rótaði burtu tugum af sokkum, en ég mátti bíða á meðan og sýna mikla biðlund og þolinmæði. Loks nær botni í stórum kassa undir rúmi konunnar fannst hinn útvaldi sokkur. Var það stakur silkisokkur og hún fullvissaði mig strax um að þetta væri einmitt sokkurinn! Ég man nú ekki lengur hvernig ég gekk frá sí- unni í innrennslisbúnaðinum eða hvort ég þurfti að festa hana sérstaklega. Ég held raunar að pjatlan, svo blaut sem hún var úr suðunni, hafi sjálf lagst um nælonstandinn í dropahúsinu. Ég fékk því næst félaga mína til þess að annast innrennslisgjöfina þar eð ég taldi mig þegar hafa nóg að unnið. Pegar ég tók að rifja þennan atburð upp áratug- um síðar kom mér í opna skjöldu að innrennslis- búnaður af þessari gerð skyldi hvergi vera finnan- legur á stofnunum eða söfnum svo að mér sé kunn- ugt, og nær sem tröllum gefinn. Léleg minjavarsla Ég kannaði og lét kanna bæði á Landspítala og 111 I I 6 (L 1 P T k T i-'gfl Mynd 3. Innrennslisbún- aður frá fyrri tíð. Erling Edwald leiknaði eftir ininni. Skýring á innrennsl- isbúnaði: 1. Flöskunál (í innrennsl- isflösku). 2. Dropahús (glerhólkur) lokað með gúmmítöppum i báða enda. 3. Nœlonstandur (með rennslisgötum) til þess að bera uppi síuna. 4. Sía úr nœloni með stífri bryddingu, sem small á gúmmítappa; sían átti að hatda eftir hugsanlegum ögnum í vökvanum. 5. Innrennstisslanga. 6. Holnál. Gjarnan var skipt um inn- rennslisslöngu og síu fyrir hverja notkun. Annað var tekið í sundur, hreinsað og sœft til nýrra nota (þar á meðal holnálin). Læknablaðið 2006/92 329
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.