Læknablaðið - 15.06.2006, Side 5
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
II M R Æ D A 0 G F R É T T I R
468 Af sjónarhóli stjórnar. Öryggið á oddinn
Elínborg Bárðardóttir
468 Aðalfundur Læknafélags íslands
471 Innflytjendur á íslandi: Um samskipti læknis og sjúklings
í nýjum aðstæðum
Ástríður Stefánsdóttir
475 Frá siðfræðiráði. Vottorðagjafír lækna
Jón Snœdal, Gunnar Ármannsson
478 Mestur skortur meðal sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
Hávar Sigurjónsson
448 í upphafí skyldi endinn skoða
Hávar Sigurjónsson
487 Bréf til blaðsins. Stefnumótun og gildi Landspítala
Helga Hansdóttir
488 Fundur norrænna læknablaða
Hávar Sigurjónsson
489 Fréttatilkynning. Hættu fyrir lífíð, frá Krabbameinsfélaginu
492 Farið yfír vinnureglur
Hávar Sigurjónsson
F A S T I R P I S T L A R
491 íðorðapistill 188. Meira um sérgreinaheiti
Jóhann Heiðar Jóhannsson
Sumarlokun á
skrifstofu
læknafélaganna
Skrifstofan verður lokuð frá og með 24. júlí til 8.
ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.
Málverk Þórdísar Aðalsteinsdóttur
einkennast af togstreitu milli andstæðna.
Til að nefna dæmi má beina sjónum
að mótun rýmis annars vegar og hins
vegar algerri flatneskju. Tilfinning fyrir
melankóliu, einmanaleika eða óhamingju
og síðan gráglettinni gamansemi.
Unglingadrama og heimsvandi,
hreinir abstrakt litafletir og figúratíf
nákvæmnisvinna. Þessi einkenni gera
það að verkum að verkin eru seyðandi,
þau bjóða áhorfandanum að tengja
andstæðurnar við eigin hugarheim og
túlka þau þannig á mismunandi máta. Um
leið eru þau áhugaverð í litasamsetningu
sem einkennist af tilbrigðum af litleysu,
það er að segja hreinir og klárir
grunnlitir eru sjaldgæfir nema í einstaka
smáatriðum, ráðandi eru einhvers konar
pastelblöndur. Yfirleitt eru þeir í tvívíðum
flötum en á nokkrum stöðum á sér stað
litablöndun á myndfletinum, i andliti eða
annars staðar á líkama fólks. I verkunum
eru alltaf verur, mannfólk, gæludýr eða
samruni beggja. Þá eru ýmiss konar
mynstur áberandi, klæðnaður og dúkar
eru símynstraðir en hár og sígarettureykur
mótar líka mynstur.
Þórdís er búsett í New York þar sem hún
lauk námi í myndlist árið 2003. Síðan þá
hefur hún sýnt hjá Stux galleríinu og lauk
nýverið annarri einkasýningu hennar þar.
Hún sýndi nokkur málverk en einnig stóra
veggmynd sem máluð var beint á veggi
gallerísins. Næsta vetur gefst kostur á
að sjá verk hennar á sýningu í Listasafni
Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum.
Á forsiðu Læknablaðsins er verk frá árinu
2005 sem ber titilinn Man Drink Dog.
Þar má sjá mörg einkenni sem lýst var
hér að ofan. Það sem slær mann fyrst
er myndefnið, maður að drekka mjólk
úr brjósti hunds. Hundurinn trónir yfir
myndinni og horfir niður á manninn. I
samræmdu mystri klæðnaðar beggja eru
stjörnur og hálfmánar, tákn íslamstrúar.
Uppsetningin minnir á trúarleg
íkonamálverk og maður leitar aftur i heim
trúarbragða og goðsagna að uppruna.
Hann kann að leynast þar, en hugsanlega
líka i tiltrú fólks á Indlandi að hundamjólk
lækni ýmsa kvilla. Þá er ekki loku fyrir það
skotið að verkið sé absúrd brandari eða
einhvers konar táknmynd. Þetta eftirlætur
Þórdis okkur áhorfendum að kveða úr um.
Markús Andrésson
Læknablaðið 2006/92 433