Læknablaðið - 15.06.2006, Page 9
FRÆÐIGREINAR / HELICOBACTER
Algengi IgG mótefna gegn Toxoplasma gondii,
Helicobacterpylori og lifrarbólguveiru A á Is-
landi. Tengsl við ofnæmi og lungnaeinkenni
Hulda
Ásbjörnsdóttir1
LÆKNANEMI
Rúna B
Sigurjónsdóttir1
LÆKNANEMI
Signý V
Sveinsdóttir2
DEILDARLÆKNIR
Alda Birgisdóttir'
LÆKNANEMI
Elisabet Cook3
MEINATÆKNIR
Davíð Gíslason2
LUNGNALÆKNIR
Christer Jansson*
LUNGNALÆKNIR
ísleifur Ólafsson3
SÉRFRÆÐINGUR í
MEINEFNAFRÆÐUM
Þórarinn
Gíslason2
LUNGNALÆKNIR
Bjarni
Þjóðleifsson2
MELTINGARLÆKNIR
Háskóli íslands, Læknadeild,1
lyflæknisdeild Landspítala,
2meinefnafræöideild
Landspítala,3 lungna- og
ofnæmislækningadeild,
Háskólasjúkrahúsinu
Uppsölum Svíþjóö4.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Bjarni Þjóðleifsson,
meltingarsjúkdómadeild
Landspítala Hringbraut
101 Reykjavík.
Sími 543-6105,825-5138
bjarnit@landspitali. is
Lykilorð: Helicobacter pylori,
Toxoplasma gondii, Hepatitis
A Virus, faraldsfrœði, lungna-
einkenni, Atopy, ofnœmi.
Ágrip
Inngangur: Smit sem berst með fæðu eða saur-
mengun getur haft áhrif á heilsu einstaklinga með
beinum áhrifum sýkingar eða óbeint gegnum
ónæmiskerfi.
Tilgangur: Að rannsaka algengi og áhættuþætti
fyrir smiti með bogfrymli, H. pylori og lifrarbólgu-
veiru A meðal íslendinga og jafnframt að kanna
áhrif smits á ofnæmistengd lungnaeinkenni og
lungnastarfsemi.
Efniviður og aðferðir: Blóðsýnum var safnað á
árinu 1999-2001 frá 505 einstaklingum á aldr-
inum 28-52 ára. Rannsóknarþýðið var upphaflega
valið með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Mælingar
á IgG mótefnum gegn bogfrymli, H. pylori og
lifrarbólguveiru A var gerð með ELISA aðferð.
Ofnæmistengd lungnaeinkenni voru metin með
spurningalista og IgE miðlað ofnæmi og lungna-
starfsemi mæld. X2 próf var notað fyrir leitni en
óleiðrétt aðhvarfspróf til að bera saman mismun í
algengi IgG mótefna. Fjölbreytuaðhvarf var notað
til að reikna leiðrétt áhættuhlutfall og 95% örygg-
ismörk fyrir mismunandi þætti sýkinganna.
Niðurstöður: Algengi mótefna var 9,8% fyrir
bogfrymli, 36,3% fyrir H. Pylori og 4,9% fyrir
lifrarbólguveiru A. Áhættuþáttur fyrir bogfrymli
smiti var leikskólavist fyrir þriggja ára aldur.
Áhættuþáttur fyrir H. pylori smiti var aldur og
reykingar. IgG mótefni gegn hverjum einum þess-
ara þriggja smitvalda eða öllum höfðu ekki áhrif
á algengi astma eða bráðaofnæmis. Einstaklingar
sem höfðu IgG mótefni gegn bogfrymli höfðu
skerta lungnastarfsemi, sem kom fram í lækkuðu
FEV/FVC hlutfalli.
Alyktun: Smit með bogfrymli, //. pylori og lifr-
arbólguveiru A hefur ekki fylgni við algengi
bráðaofnæmis eða astma. Niðurstöður benda til að
smit með bogfrymli hafi fylgni við skerta lungna-
starfsemi.
Inngangur
Algengi smits með Helicobacterpylori (//. pylori),
bogfrymilssótt (Toxoplasmosis) oglifrarbólguveiru
A er breytilegt milli þjóða og innan þjóðlanda, en
smit er yfirleitt mun algengara hjá vanþróuðum
ENGLISH SUMMARY
Ásbjörnsdóttir H, Sigurjónsdóttir RB, Sveinsdóttir
SV, Birgisdóttir A, Cook E, Gíslason D, Jansson C,
Ólafsson í, Gíslason Þ, Þjóðleifsson B
Foodborn infections in lceland. Relationship to
allergy and lung function
Læknablaöiö 2006; 92: 437-44
Background: Foodborn or orofecal transmitted
infections can have influence on health by direct
consequences of the infection and indirectly by
modulating the immune system.
Objectives: To investigate the prevalence and risk
factors for T. gondii, H. pylori and HAV infection in the
lcelandic population and their influence on atopy, allergy
related lung symptoms and lung function.
Material and methods: Blood samples were collected
in 1999-2001 from 505 subjects in age group 28-52,
randomly selected from the lcelandic population. The
presence of T. gondii, H. pylori and HAV IgG antibodies
was determined by an ELISA method. Allergy related
lung symptoms were assessed with questionnaire and
IgE sensitization and lung function measured. X2test was
used to test for trend but unadjusted logistic regression
for comparison of IgG prevalence. Multiple logistic
regression was used to calculate adjusted odds ratios
and 95% confidence intervals for different infections
factors.
Results: The prevalence of antibodies was 9.8%, for T.
gondii, 36.3% for H. pylori and 4.9% for HAV. Attending
day care before the age of 3 years was a risk factor for
having T. gondii antibodies. The prevalence of H. pylori
increased with age and smoking. The infections were
not associated with the prevalence of asthma or atopy.
Having IgG antibodies against T. gondii was, however,
associated with an increased risk of having FEV/FVC
ratio below 70%.
Conclusion: T. gondii, H. pylori and H AV infection does
not influence the prevalence of atopy or asthma. The
data indicated that infection with T. gondii might be
associated with a diminished lung function.
Key words: Helicobacter pylori, Toxoplasma gondii, Hepatitis A
Virus, Epidemiology, Lung function, Atopy, Allergy.
Correspondence: Bjarni Þjóðleifsson,
bjarnit@landspitali.is
Læknablaðið 2006/92 437