Læknablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 19
FRÆÐIGREINAR / STOÐNET í BERKJU
Isetning
stoðnets
í berkju á íslandi
Eyþór Björnsson
SÉRFRÆÐINGUR í LUNGNA-
OG LYFLÆKNINGUM
Kristbjörn
Reynisson,
SHRFRÆÐINGUR í
MYNDGRHININGU
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Eyþór Björnsson,
lungnadeild, Landspítala,
108 Fossvogi.
eythorbj@landspitali. is
Lykilorð: stoðnet, berkju-
þrenging, krabbamein í lunga.
Ágrip
Sjúkdómar sem valda viðvarandi þrengingu á
berkjum eru algengl viðfangsefni lungnalækna.
Jafnvel minniháttar þrengsli í barka eða berkjum
geta valdið verulegum einkennum og stundum lífs-
háska. A undanförnum árum hefur orðið nokkur
þróun í aðgerðum á berkjum gegnum berkjuspegl-
un. Ymis tækni er nú notuð til að opna og varð-
veita hol berkju. Þessi grein lýsir stuttlega stöðu
þessara mála á íslandi og nokkru nánar útfærslu á
einni þessara aðferða. Isetning á stoðneti í berkju
er tiltölulega einföld aðgerð sem getur við rétta
ábendingu veitt verulega bót einkenna.
Inngangur
Þrenging á stærri loftvegum getur orðið við ýmsa
sjúkdóma ýmist góð- eða illkynja, ýmist með þrýst-
ingi á berkjuvegg utan frá eða með vexti inn í hol
(lumen) berkjunnar. Loftflæði er mun hraðara í
stærri berkjum en þeim smærri og hlutfallslega lítil
breyting á þvermáli stórrar berkju getur því valdið
verulegum einkennum. Þannig veldur þvermáls-
minnkun á barka undir 8,0 mm, einkennum við
áreynslu og einkennum í hvíld (stridor) ef þvermál
fer undir 5,0 mm (1).
Nýgengi og algengi á þrengslum í stærri
berkjum er óþekkt en nýgengi krabbameins í
lunga fer vaxandi og er um 30/100 000/ári hér-
lendis (2). Gert hefur verið ráð fyrir að yfir 50%
lungnakrabbameinssjúklinga fái einkenni vegna
berkjuþrengsla, svo sem mæði, lungnabólgu eða
samfall á lunga (3).
Á síðasta aldarfjórðungi hafa ýmsar aðferðir
verið þróaðar til að létta á þrengslum í stærri
berkjum. Helstar eru brennsla á æxlisvef, skamm-
geislun (brachytherapy) og ísetning á stoðneti
(stent).
Ofangreindar aðferðir henta misvel við mis-
munandi aðstæður og fer það eflir eðli og stað-
setningu þrengingar, einkennum sjúklings og
vaxtarmáta æxlis ef um æxli er að ræða (undir
slímhúð eða gegnum slímhúð) en ekki síst hvaða
tækjabúnaður og kunnátta er til staðar. Algengt er
að fleiri en ein aðferð sé notuð hjá sama sjúklingi.
Kjörmeðferð við berkjuþrengingu vegna æxlis-
vaxtar gæti þannig verið minnkun á umfangi æxlis
í berkju með brennslu, eftir það ísetning stoðnets
og að lokum skammgeislun til að minnka und-
irliggjandi æxlismassa.
ENGLISH SUMMARY
Björnsson E, Reynisson K
The use of endobronchial stents in lceland
Læknablaðið 2006; 92: 447-50
Diseases that cause progressive obstruction of the
larger airways are commonly encountered in pulmonary
medicine. Even slight narrowing of the larger airways
can cause intense symptoms and sometimes be life-
threatening. In recent years progress has been made
in endobronchial intervention procedures. A range
of technologies has been developed to obtain and
maintain patency of the bronchial lumen in disease.
This article briefly describes the current use of these
methods in lceland and in some detail the use of stents
in airways. The placement of a bronchial stent is a
fairly simple procedure that can, if properly indicated,
significantly relief symptoms.
Key words: bronchial stent, lung cancer, endobronchial
intervention.
Correspondence: Eyþór Björnsson, eythorbj@landspitali.is
Æxli sem vex inn í hol berkju er hægt að hreinsa
burt að stórum hluta með laserskurði (Nd-Yag
laser), frystingu (cryotherapy) eða rafbrennslu
(electrocautery). Fyrsti valkosturinn er sá mik-
ilvirkasti en jafnframt dýrastur. Sem stendur er
einungis til staðar hérlendis fullnægjandi tækja-
búnaður til að framkvæma rafbrennslu og er það
gerl með þeim hætti að argon gas er látið bera raf-
straum að vef (argon plasma coagulation). Nokkur
reynsla er af þessari aðferð við meltingarsjúkdóma
hérlendis, sérstaklega til að stöðva blæðingar, en
enn sem kornið er ekki við berkjusjúkdóma.
Skammgeislun er nú hægt að framkvæma hér-
Iendis. Þessi aðferð hentar þegar æxlisvöxtur er
útlægur, það er liggur í lobar eða segmental berkju
og því síður aðgengilegur fyrir laserskurð eða
stoðnet. Fullur árangur fæst þó ekki fyrr en um
það bil að mánuði liðnum og er skammgeislun því
ekki heppilegur kostur ef einkenni eru mikil.
Stoðnet í berkju hafa nú verið sett hjá níu
sjúklingum hérlendis, í öllum tilvikum við illkynja
sjúkdómum. Þessari grein er ætlað að vekja athygli
á þessum meðferðarmöguleika.
Framkvæmd
Hér er lýst ísetningu á málmneti. Mælt er með að
fyrir aðgerð sé gerð tölvusneiðmynd af lungum
með enduruppbyggingu (reconstruction) til að
Læknablaðið 2006/92 447