Læknablaðið - 15.06.2006, Page 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
skoða betur hvernig málum er háttað hérlendis
með það í huga að finna veiku hlekkina í kerf-
inu. Hugsanlega ættum við að fara sömu leið
og frændur okkar Danir sem hafa skyldað heil-
brigðisstarfsmenn til að tilkynna allt sem betur
mætti fara með það að markmiði að breyta og
bæta umhverfi heilbrigðisstofnana til hagsbóta
fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk.
An efa væri auðveldara að fá heilbrigðisstarfs-
fólk til að tilkynna atvik ef farin væri leið Dana
með nafnleynd við tilkynningar og eins ef til-
kynningu atviks má ekki nota fyrir dómstólum.
Það ætti að auka á vilja heilbrigðisstarfsfólks
að tjá sig um atvik án þess að eiga það á hættu
að lenda í dómsmálum. Það hindrar auðvitað
ekki sjúklinga frá því að leita til dómstóla því
öll gögn í sjúkráskrá sjúklings eru auðvitað
aðgengileg fyrir dómstóla.
Til athugunar væri einnig að hækka verulega
bótagreiðslur sjúklingatryggingar þannig að
sjúklingar fá bættan skaða sinn án þess að þurfa
að leita til dómstóla.
Aðalfundur Læknafélags íslands
1. og 2. september 2006 á Egilsstöðum
Dagskrá
Föstudagur 1. scptcmber
Kl. 10:00 1. Setning
2. Ávarp ráðherra
3. Skýrsla stjórnar-umræður
3.1. Skýrsla formanns
3.2. Skýrsla um hagstofu lækna
4. Ársreikningar lagðir fram - fjárhagsáætlun kynnt
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:00 5. Skipulag læknasamtakanna
6. Þagnarskylda lækna
7. Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja.
Starf nefndar innan stjórnar
8. Málefni:
8.1. Lífeyrissjóður lækna
8.2. Læknablaðsins
8.3. Orlofssjóðs LÍ
8.4. Fræðslustofnunar lækna
9. Lagðar fram ályktanatillögur og tillögur til lagabreytinga
10. Skipað í starfshópa
Kl. 15:00 Kaffihlé
Kl. 15:30 Starfshópar starfa
Laugardagur 2. septcmber
Kl. 13:00 11. Afgreiðsla lagabreytinga, ályktana og annarra mála
12. Kosningar og lúkning annarra dagskrárliða skv. lögum
12.1. Ákvörðun árgjalds
12.2. Stjórnarkosning
12.3. Kjör annars tveggja lækna í
siðanefnd LÍ og varamanns
12.4. Kjör skoðunarmanna reikninga
12.5. Fundarstaður næsta aðalfundar
12.6. Önnur mál
Kl. 16:30 Áætluð fundarlok
Kl. 19:00 Sameiginlegt borðhald fundarmanna og gesta á Hótel Héraði
Dægradvöl
Föstudagur kl. 17:00
Skriðuklaustur-Hallormsstaður-Lagarfljótsormurinn
Laugardagur kl. 08:30
Kárahnjúkar
Makaferðir báða dagana.
Ferðir á vegum LÍ:
Reykjavík-Egilsstaðir 1. sept. flug kl. 08:00, mæting 07:30
Egilsstaðir-Reykjavík 3. sept. flug kl. 11:55, ferð úr gististað
Gisting: Hótel Hérað, Hótel Valaskjáll'.
Læknablaðið 2006/92 469