Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 50

Læknablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SKÝRSLA UM MANNAFLSÞÖRF í HEILBRIGÐISKERFINU Mestur skortur meðal sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga Hávar Sigurjónsson Niðurstöður skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Islands sem nefnist Spá um vinnuaflsþörf í heil- brigðiskerfinu og unnin var fyrir Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið vöktu talsverða athygli í byrjun apríl þó skýrslan hafi reyndar ekki verið lögð fram formlega inn til ráðuneytisins fyrr en nú um miðjan maí. Það var hagfræðingurinn Marías Gestsson sem hóf vinnu við skýrsluna en þær Harpa Guðnadóttir og Sólveig Jóhannsdóttir sem báðar starfa hjá Hagfræðistofnun tóku síðan við verkefninu og luku því í vor. I skýrslunni er gerð mannaflsspá um fjóra flokka heilbrigðisstarfs- manna, þ.e. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og sjúkraþjálfara. Blaðamaður hitti þær Hörpu og Sólveigu og bað þær að segja frá efni skýrslunnar. „Við gerum nokkur spálíkön um vinnuaflsþörf næstu árin í þessum fjórum greinum heilbrigð- isstétta og útgangspunktur skýrslunnar er að kanna hvað það er sem hefur áhrif á framboð og eftirspurn í heilbrigðisstéttunum. Það sem hefur mest áhrif á eftirspurnina eru lýðfræðilegir þættir, fæðingar- og dánartíðni, aldurssamsetning þjóð- arinnar er að breytast og hefur einna mest áhrif á eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu. Hagvöxtur hefur einnig áhrif, því eftir því sem þjóðin efnast vill hún meiri þjónustu. Lifnaðarhættir þjóðarinn- ar eru einnig að breytast, minni hreyfing og lakara mataræði skapar einnig aukna eftirspurn eftir heil- brigðisþjónustu.'1 Skiptist þjóðin kannski í tvo meginhópa með aukinni velmegun, þá sem verða œ meðvitaðri um gilcii hreyfingar og rétts mataræðis og hinna sem verða skyndibitanum og hreyfingarleysinu að bráð? Pær Harpa og Sólveig taka undir með þeim orðum að „breytingar á lifnaðarháttum vestrænna þjóða hafa ekki allar orðið til góðs. Kolvetna- og fituríkt skyndibitafæði er orðinn snar þáttur í daglegu lífi margra, fólk ferðast æ meira í bíl og kyrrsetur eru orðnar algengari. Mun fleiri ein- staklingar en áður eiga því á hættu að fá sjúkdóma sem tengjast þessum lifnaðarháttum." Hækkandi meðalaldur hefur mikil áhrif Hvaða áhrif hafa breytingar á fœðingartíðni á eft- irspurn eftir heilbrigðsþjónustu? „Aukin fæðingartíðni kallar á meiri þjón- ustu við yngsta aldurshópinn, ungbarnaeftirlit, bólusetningar og hvaðeina sem snýr að honum en minnkandi fæðingartíðni hefur þau áhrif að elsti aldurshópurinn verður hlutfallslega stærri og þetta hefur áhrif síðar þannig að hópurinn sem er á vinnumarkaði 18-65 ára minnkar hlutfallslega. Ef þessi þróun heldur áfram verður tilfærslan í hagkerfinu þannig að hópurinn sem heldur uppi skatlkerfinu verður hlutfallslega æ minni og þá má velta því fyrir sér hvort framboðið verður nægilegt af fólki á þeim aldri sem hyggur á nám í heilbrigðisgreinum. Tvennt er mikilvægast í þessu, minnkandi fæðingartíðni og aukið lang- lífi sem stafar auðvitað af betra heilbrigðiskerfi og heilbrigðari lífsháttum. Fæðingartíðnin hefur breysl mikið á síðustu 50 árum, farið úr um fjór- 478 Læknablaðið 2006/92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.