Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2006, Page 64

Læknablaðið - 15.06.2006, Page 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDAHÖLD Ritstjórn Lœknablaðsins ásamt starfsmönmun. Aftari röð f.v. Hávar Sigurjónsson blaðamað- ur, Brynja Bjarkadóttir auglýsingastjóri, Védís Skarphéðinsdóttir rit- stjórnarfulltrúi, Engilbert Sigurðsson, Jóhannes Björnsson, Karl Andersen, Tómas Guðbjartsson. Sitjandi eru Póra Steingrímsdóttir og Bryndís Benediktsdóttir. Á myndina vantar Sævar Guðbjörnsson sem brýtur blaðið um. Farið yfir vinnureglur Ritstjórn Læknablaðsins hélt árlegan vinnu- fund sinn föstudaginn 12. maí að Hótel Glym í Hvalfirði. Á fundinum var farið yfir og gengið frá vinnureglum ritstjórnar varðandi mótttöku og meðferð fræðigreina og annars efnis í blaðinu en miklu skiptir að rétt sé að slíku staðið og gagnsæi ríki í öllum vinnubrögðum. Er í ferlinu stuðst við leiðbeiningar Vancouverhópsins svokallaða og einnig við ítarlegar reglur danska læknafélagsins. Á fundinum var Tómas Guðbjartsson hjarta- og æðaskurðlæknir boðinn velkominn í hóp- inn, en hann tók sæti í ritstjórninni í byrjun maí. Ritstjórnina skipa núna auk Tómasar, Jóhannes Björnsson yfirlæknir, ritstjóri og ábyrgð- armaður, Karl Andersen hjartalæknir, Bryndís Benediktsdóttir heimilislæknir, Engilbert Sigurðs- son geðlæknir og Þóra Steingrímsdóttir kven- sjúkdómalæknir. Tilkynning frá lyfjagreiðslu- nefnd og landlækni Á 50. fundi Lyfjagreiðslunefndar var ákveðið að setja Lamictal og Lamotrín á viðmiðunarverðskrá. Vakin er athygli lækna á því að R merkja lyfseðla telji þeir varasamt að skiþta um lyf. 492 Læknablaðið 2006/92

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.