Læknablaðið - 15.06.2006, Page 66
LAUSAR STÖÐUR
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga auglýsir stöðu
HEIMILISLÆKNIS Á ÞÓRSHÖFN
lausa til umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið sérfræðiprófi í heimilislækningum. Um er að ræða fullt
starf en til greina kemur að ráða viðkomandi í hlutastarf. Umsóknarfrestur ertil 15. júní 2006.
Hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga starfar kraftmikill hópur hæfs fagfólks og þjónar stofnunin öllum Þingeyingum
austan Fnjóskadals. Öflugt tölvu- og fjarfundakerfi tengir saman starfsstöðvar á Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri,
Húsavík, Laugum og í Mývatnssveit íeina heild. Á Þórshöfn eru ásamt lækni starfandi hjúkrunarfræðingur, Ijósmóðir,
iðjuþjálfi, sjúkraflutningamenn og læknaritari sem jafnramt er rekstrarstjóri HÞ í N-Þingeyjarsýslu. Ásamt því að
sinna heilsugæslu sinna læknir og hjúkrunarfræðingur á Þórshöfn hjúkrunarheimilinu Nausti samkvæmt samningi
á milli HÞ og sveitarfélagagsins. Náið samstarf er við Sigurö Halldórsson, lækni á Kópaskeri sem jafnframt er
yfirlæknir HÞ í N-Þingeyjarsýslu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum og sambærileg við það sem gerist á svipuðum stofnunum á landsbyggð-
inni.
Áhugasömum er bent á heimasíðu stofnunarinnar heilthing.is til að afla sér nánari upplýsinga um starfsemina.
Umsóknareyóublöð má nálgast á heimasíðu HÞ heilthing.is og er hægt að senda þau rafrænt. Eins er hægt að
senda umsóknir í pósti til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Auðbrekku 4, 640 Húsavík, b.t. Ásgeirs Böðvarssonar,
framkvæmdastjóra lækninga.
Upplýsingar veita Sigurður Halldórsson, yfirlæknir N-Þing. 896-8109 og 899-8645 sighall@heilthing.is, Ásgeir
Böðvarsson, framkvæmdastjóri lækninga 860-7726 asgeir@heilthing.is og Friðfinnur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri 895-0525, fridfinnur@heilthing.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði.
494 Læknablaðið 2006/92
A