Læknablaðið - 15.10.2007, Qupperneq 3
RITSTJÓRNARGREIN
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
667 íslenskur forseti WMA, Alþjóðafélags lækna
Sigurbjörn Sveinsson
FRÆÐIGREINAR
669 Fósturköfnun og heilakvilli - áhættuþættir og afleiðingar
fyrir nýbura
Kolbrún Pálsdóttir, Þórður Þórkelsson, Hildur Harðardóttir,
Atli Dagbjartsson
Greining fósturköfnunar er erfið og tæknin sem notuð er í því skyni í fæðingu er
hvorki sérlega næm né sértæk. Mjög mikilvægt er að finna fósturstreitu í tíma svo
koma megi í veg fyrir þjáningar barna og foreldra. Þörf er á sértækari og næmari
tækni á yfirvofandi alvarlegri fósturköfnun og eins er þörf frekari rannsókna á
þeim þáttum fóstursins sem gera það veikara fyrir. Niðurstöður rannsóknarinnar
benda til þess að greiningarskilmerki á alvarlegri fósturköfnun megi byggja á
Apgar stigun og klínískum einkennum nýburans í samhengi við blóðgasagildi.
675 Öndunarörðugleikar hjá nýburum sem fæðast með
valkeisaraskurði
Snorri Freyr Dónaldsson, Atli Dagbjartsson, Hörður
Bergsteinsson, Hildur Harðardóttir, Ásgeir Haraldsson,
Þórður Þórkelsson
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tíðni öndunarörðugleika hjá börnum
sem fæddust með valkeisaraskurði á kvennadeild Landspítala á tímabilinu 1996-
2005. Metin var hlutfallsleg hætta á öndunarerfiðleikum eftir meðgöngulengd
þegar valkeisaraskurðir voru gerðir til að varpa ljósi á við hvaða meðgöngulengd
sé minnst hætta á öndunarörðugleikum hjá nýburanum. Jafnframt voru könnuð
áhrif verklagsreglna sem settar voru á kvennadeild Landspítala árið 2001 þar sem
lögð var áhersla á að gera ekki valkeisaraskurði fyrir 39 vikna meðgöngu nema
brýn ástæða væri til.
681 Gaumstol - yfirlit - einkenni, tíðni, greining og horfur
Haukur Hjaltason, Styrmir Sævarsson
Gaumstol felur í sér flókna truflun á samspili skynjunar, hreyfingar og umhverfis
sjúklings þar sem athygli hans og það rými sem umlykur hann skiptir miklu máli.
Þeir sem þekkja til gaumstols vita að ættingjar og ekki síður sjúklingar sjálfir
eiga oft erfitt með að átta sig á þeim vanda sem við er að glíma og það í meira
mæli en þegar um mál- og hreyfitruflanir er að ræða. Gildi fræðslu fyrir sjúklinga,
aðstandendur og aðra er mikilvægt, skilningur á vanda glæðir áhuga á að takast á
við hann og hlýtur að styrkja þjálfun og alla endurhæfingu.
10 tbl. 93. árg. október 2007
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag (slands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Karl Andersen
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né I heild án leyfis.
Prentun, bókband og pökkun
fslandsprent ehf.
Steinhellu 10
221 Hafnarfirði
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið 2007/93 663