Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2007, Qupperneq 43

Læknablaðið - 15.10.2007, Qupperneq 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆKNIPlSTILL: TÖLVU- OG UPPLÝSINGATÆKNIN Hlustunarpípa 21. aldarinnar Árið 1816 í Frakklandi datt snjöllum lækni í hug að rúlla saman dagblaði og leggja upp að brjóstkassa sjúklings. Við þetta varð til hin vel þekkta hlustunarpípa sem er í dag alþjóðlegt tákn læknisins. Það er ef til vill táknrænt að sífellt oftar má sjá USB kubb hangandi um háls lækna í stað hlustunarpípunnar. USB kubburinn er táknrænn fyrir tæknibyltingu sem hefur átt sér stað á svo stuttum tíma að nútíma læknirinn hefur varla áttað sig á hvort eða hverju hann er að missa af. Virt læknisfræðitímarit hafa ekki farið varhluta af byltingunni, til dæmis mátti lesa í BMJ á seinasta ári um leitarvélina Google sem greiningartæki. Unglæknar ganga nú um með handtölvur í stað þykkra uppflettirita og á örskotsstundu má finna læknisfræðilegar upplýsingar á netinu sem áður þurfti að leita að í doðröntum uppi í hillu. Það eru allir sammála um að tæknin hafi gjör- breytt vinnuumhverfi okkar og -ferlum bæði til hagræðingar, gæða og sparnaðar. Til dæmis má í nýlegum skýrslum frá Bandaríkjunum lesa að raf- ræn lyfjaskráning geti hugsanlega fækkað röngum lyfjagjöfum um 70-80% og lækkað rekstrarkostn- að heilbrigðiskerfisins um milljarða dollara (www. hhs.gov/healthit/t050727.html). Þetta eru tölur sem ekki er hægt að líta framhjá. Ekki má gleyma að sjúklingar hafa sömuleiðis fært sér tæknina í nyt og eru almennt mun upplýstari um sjúkdóma, lyf og þess háttar en áður. Undirritaður er tæknisinnaður og hefur unnið með LÍ að gerð vefsíðu félagsins. Auk þess að forrita vefinn er ég í ritnefnd félagsins sem hefur það að markmiði að auka notkun hans meðal félagsmanna og breikka efnisinnihald. Því fannst mér það tilvalið að setja af stað einhvers konar „tæknipistla“ til að efla vitund lækna um það sem tæknin hefur upp á að bjóða til að létta á daglegum störfum lækna. Fastar skorður á slíkum pistaskrif- um verða þó aðeins til að þyngja pennann og því vil ég hvorki setja tíma- né efnisramma en stefni á eftirtalin málefni: • Læknisfræðilegar vefsíður • RSS fréttaveitur • Praktísk notkun leitarvéla í klínískri vinnu • Handtölvur og forrit fyrir þær • Læknisfræðilegur hugbúnaður • Heilbrigðiskerfi (önnur en Saga) • Heimasíðugerð Þetta er engan veginn tæmandi listi og ef óskað er sérstaklega eftir einhverju málefni má að sjálfsögðu skoða það. [Framhald pistilsins er á forsíðu www.lis.is.] Höfundur er deildarlæknir SBD, í sérnámi í bráðalækn- isfræði og vefstjóri www.lis.is Læknablaðið 2007/93 703
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.