Læknablaðið - 15.10.2007, Page 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆKNIPlSTILL: TÖLVU- OG UPPLÝSINGATÆKNIN
Hlustunarpípa 21. aldarinnar
Árið 1816 í Frakklandi datt snjöllum lækni í
hug að rúlla saman dagblaði og leggja upp að
brjóstkassa sjúklings. Við þetta varð til hin vel
þekkta hlustunarpípa sem er í dag alþjóðlegt tákn
læknisins. Það er ef til vill táknrænt að sífellt oftar
má sjá USB kubb hangandi um háls lækna í stað
hlustunarpípunnar. USB kubburinn er táknrænn
fyrir tæknibyltingu sem hefur átt sér stað á svo
stuttum tíma að nútíma læknirinn hefur varla
áttað sig á hvort eða hverju hann er að missa af.
Virt læknisfræðitímarit hafa ekki farið varhluta af
byltingunni, til dæmis mátti lesa í BMJ á seinasta
ári um leitarvélina Google sem greiningartæki.
Unglæknar ganga nú um með handtölvur í stað
þykkra uppflettirita og á örskotsstundu má finna
læknisfræðilegar upplýsingar á netinu sem áður
þurfti að leita að í doðröntum uppi í hillu.
Það eru allir sammála um að tæknin hafi gjör-
breytt vinnuumhverfi okkar og -ferlum bæði til
hagræðingar, gæða og sparnaðar. Til dæmis má í
nýlegum skýrslum frá Bandaríkjunum lesa að raf-
ræn lyfjaskráning geti hugsanlega fækkað röngum
lyfjagjöfum um 70-80% og lækkað rekstrarkostn-
að heilbrigðiskerfisins um milljarða dollara (www.
hhs.gov/healthit/t050727.html). Þetta eru tölur sem
ekki er hægt að líta framhjá. Ekki má gleyma að
sjúklingar hafa sömuleiðis fært sér tæknina í nyt og
eru almennt mun upplýstari um sjúkdóma, lyf og
þess háttar en áður.
Undirritaður er tæknisinnaður og hefur unnið
með LÍ að gerð vefsíðu félagsins. Auk þess að
forrita vefinn er ég í ritnefnd félagsins sem hefur
það að markmiði að auka notkun hans meðal
félagsmanna og breikka efnisinnihald. Því fannst
mér það tilvalið að setja af stað einhvers konar
„tæknipistla“ til að efla vitund lækna um það sem
tæknin hefur upp á að bjóða til að létta á daglegum
störfum lækna. Fastar skorður á slíkum pistaskrif-
um verða þó aðeins til að þyngja pennann og því
vil ég hvorki setja tíma- né efnisramma en stefni á
eftirtalin málefni:
• Læknisfræðilegar vefsíður
• RSS fréttaveitur
• Praktísk notkun leitarvéla í
klínískri vinnu
• Handtölvur og forrit fyrir þær
• Læknisfræðilegur hugbúnaður
• Heilbrigðiskerfi (önnur en Saga)
• Heimasíðugerð
Þetta er engan veginn tæmandi listi og ef óskað
er sérstaklega eftir einhverju málefni má að
sjálfsögðu skoða það.
[Framhald pistilsins er á forsíðu www.lis.is.]
Höfundur er deildarlæknir
SBD, í sérnámi í bráðalækn-
isfræði og vefstjóri www.lis.is
Læknablaðið 2007/93 703