Læknablaðið - 15.04.2008, Qupperneq 3
Gati íþind lokað mcð Goretexf^-bót. Um var að ræða lungnakrabbamein sem óx inn íþind og þurfti því að
fjarlægja hluta afhetmi. Sams konar bót má nota til að loka götum ígollurshúsi og brjóstvegg.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Margrét Árnadóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Ný íslensk yfirlitsgrein um lungnakrabbamein
Nýjungar við myndgreiningu auðvelda rannsóknir og stigun lungnakrabbameinsæxla.
Margt bendir til þess að skimun með lágskammta tölvusneiðmyndum geti lagað horfur
sjúklinga og lækkað dánartíðni. Ný krabbameinslyf hafa bætt líðan og lengt líf sumra sjúk-
linga með útbreitt lungnakrabbamein. í vaxandi mæli er gefin krabbameinslyfjameðferð við
skurðaðgerðir til að minnka líkur á því að krabbameinið nái að dreifa sér. Loks hafa nýjungar
í skurðlækningum gert kleift að fjarlægja æxli sem áður voru talin óskurðtæk. í yfirlitsgrein í
blaðinu eru helstu nýjungar í greiningu og meðferð lungnakrabbameins reifaðar og byggt á
nýjustu þekkingu og heimildum. Meðfylgjandi mynd er úr greininni.
■■■H LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS ^■■■■■1
Einn sá texti sem liggur til grundvallar gagnrýnni umfjöllun
um listasögu eftir seinna stríö er „Art and Objecthood"
eftir bandaríska listfræðinginn Michael Fried frá árinu
1967. Rök þessa móderníska gagnrýnanda hafa verið
hártoguð æ síðan en eftir stendur að
hann setti fram merkilega kenningu um
hvað honum þótti greina módernlska
list frá þvf sem síðar kom. í stuttu
máli þótti honum „theatricality“ eða
leikræn tilhneiging samtímalistarinnar
(hann tiltók sérstaklega mínimalisma)
valda vatnaskilum. Fried þótti sem
módernísk list væri sett fram á
forsendum „presentness" eða eiginleika
sem krefðist ekki meðvitaðs áhorfs,
hún stæði algjörlega ein og óháð og
áhorfandinn gripi hana á lofti í svip. Hin
nýja list krefðist hins vegar beinlínis
áhorfs og skapaði eins konar frásögn í
tíma frá því að áhorfandi kæmi að henni,
virti hana fyrir sér og hyrfi síðan á braut.
Án þessa ferlis væri hún ekki neitt, á
meðan módernísk list flyti fyrir ofan slikar
hugmyndir. Listamenn tóku i æ ríkari
mæli að vinna með gagnvirkni áhorfanda
og listaverks, oft með ótvíræðri tilvísun í hið leikræna,
samanber gjörningalist og myndbandslist en einnig í
tengslum við upplifun áhorfenda í sýningarrýminu.
Myndlistarmaðurinn Darri Lorenzen (f. 1978) er
búsettur í Berlín og tekst á við spurningar sem eiga rætur að
rekja til Frieds og póstmódernismans. í verkinu Contours
of Site frá 2007 snýr hann út úr orðræðu listheimsins og
vísar í gamalkunna heimspekilega
gátu: „ef tré fellur í skógi og
enginn er nærri, heyrist þá eitthvert
hljóð?“ Spurningin er í raun um
eðli skynjunar og þá merkingu sem
manneskjan leggur í það sem hún
upplifir. I verkinu sést Darri ráfa um
skóg í myrkri með vasaljós og hér
og hvar tyllir hann sér á planka sem
hann hefur meðferðis. Verkið felur í
sér exótiska nálgun íslendingsins að
fyrirbærinu skógur og snýst einnig
um áhuga Ðarra á staðfræði og rötun
sem hann fjallar um í mörgum verka
sinna. Hann notast oft við hljóð og
i öðru verki sem er skylt þessu sem
hér um ræðir: „This Time Any Time“
frá 2007, var hann til að mynda með
hljóðnema hangandi úr loftinu í miðju
galleríi. Þar sá skynjari um að kveikja
á upptökutæki um leið og áhorfandi
kom inn að skoða sýninguna og var hljóðinu safnið inn á
tölvubanka. Þegar gesturinn var farinn út var síðan upptaka
úr hljóðskjalasafninu leikin í galtómu rýminu.
Markús Þór Andrésson
Darri Lorenzen, Contours of Site, Ijósmynd (6),
2007, digital c-print, 52 x 69 cm, með góðfúslegu leyfi
Project Gentili.
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sígurjónsson
havar@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband
og pökkun
Gutenberg ehf.
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2007/93 271