Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 13

Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 13
S Ý FRÆÐIGREINAR KLALYFJANOTKUN ust á þriggja mánaða tímabili. Annað markmið með rannsókninni var að kanna tengsl ónæmis og notkunar flúórókínólóna. Efniviður og aðferðir Stofnar Rannsóknin náði til allra stofna af ættkvíslunum Klebsiella og Proteus og tegundanna E. coli og P. aeruginosa sem greindust sem líklegir sýking- arvaldar í innsendum sýnum á sýklafræðideild Landspítala á tímabilinu 1.11.2006 til 31.1.2007. Gagnasöfnun Gögnum um ofangreinda stofna var safnað úr gagnagrunnskerfi sýklafræðideildar, GLIMS (MIPS, Gent, Belgíu), og var tölfræðihluta kerfisins beitt til þess. Teknar voru saman upplýsingar um fjölda og næmismynstur stofna, sendanda, tegund sýnis, kyn og aldur sjúklinga. Ekki var unnið með persónugreinanlegar upplýsingar. Endurteknar ræktanir hjá sama einstaklingi, innan eins mán- aðar, með stofnum með sambærilegt næmi voru útilokaðar af tölvuforritinu og þeir taldir sem einn stofn. Upplýsingar um tíðni ónæmis á árunum 1999 til 2006 voru fengnar úr skýrslum sýklafræðideild- ar Landspítala (12). Gögn um sölutölur og ávísanir flúórókínólónlyfja voru fengnar úr lyfjagagna- grurrni sóttvarnalæknis. Næmispróf Næmispróf fyrir öllum umræddum sýklalyfjum voru gerð með skífuprófi skv. aðferð Kirby og Bauers og framkvæmd og túlkuð samkvæmt skilgreiningum og stöðlum Clinical Laboratory Standard Institute (13). Þeir staðlar héldust óbrey ttir fyrir cíprófloxacín á rannsóknatímabilinu. Ónæmi fyrir cíprófloxacíni var álitin vísbending um ónæmi fyrir öllum flúórókínólónum. Tölfræðileg íirvinnsla Unnið var með gögnin í Excel (Microsoft Corporation, Redmond, USA) og tíðnitölur reikn- aðar út í því forriti. Pearsons fylgnistuðull milli tíðni ónæmis og notkunar flúórókínólóna var reiknaður út í SPSS (SPSS Inc., Chicago, USA) ásamt könnun á marktækni munar á tíðni milli aldurshópa og kynja með kí-kvaðrat prófi. Niðurstöður Könnun á tíðni ónæmis Á rannsóknartímabilinu greindust eftirfarandi stofnar: 1509 E. coli, 252 KlebsieUa sp., 126 Proteus sp. og 118 P. aeruginosa. Eftir útilokun endurtek- Mynd 1. Hlutfall stofna ónæmra fyrir sýklalyfjum. (AMP=atnpicillín, MEL=mecillímm, AMC=amoxicillín/klavúlansýra, CXM=cefúroxím, CAZ=ceftazidím, CN=gentamícín, W=trímetóprím, SXT=trímetóprím/súlfametoxazól, F=nítrófúrantoin, CIP=cíprófloxacín) inna ræktana sátu eftir 1415 E. coli, 226 Klebsiella sp, 115 Proteus sp og 105 P. aeruginosa stofnar. Algengasta sýnið var þvagsýni en nánari skipt- ingu sýnaflokka má finna í töflu I. Miðgildi aldurs sjúklinga með ofangreinda stofna var 62 ár og 80% þeirra voru konur. Meðalaldur kvenna var 53,5 ár en karla 58,3 ár. Alls greindust 104 flúórókínólón-ónæmir stofn- ar. Þar af voru 91 E. coli (87%), átta Klebsiella sp. (8%) og fimm P. aeruginosa (5%). Enginn flúóró- kínólón-ónæmur Proteus sp. greindist. Skiptingu ónæmra stofna eftir aldri og kyni má sjá í töflu II. Tíðni ónæmra E. coli stofna var 3% í yngsta ald- urshópnum, 5% í þeim næsta og 9% í þeim elsta. Munur á tíðni í aldurshópunum er tölfræðilega marktækur (p<0,001). Einnig er marktækur mtmur er á tíðni ónæmra E. coli stofna milli kynja, 6% hjá konum en 11% hjá körlum (p=0,015). Stofnar af öðrum tegundum en E. coli voru of fáir til að töl- fræðileg úrvinnsla yrði marktæk. Hlutfall flúórókínólón-ónæmra stofna eftir teg- und heilbrigðisstofnunar sem sendir sýnið er sýnt í töflu III. Fyrir E. coli er hlutfall ónæmra stofna hæst á legudeildum Landspítala og elliheimilum. Læknastofur og móttökudeildir (bráðamóttökur) Landspítala hafa hæsta hlutfall ónæmra Klebsiella sp. og ónæmur P. aeruginosa er einnig algengastur á móttökudeildum Landspítala. Næmi E. coli, Klebsiella sp. og Proteus sp. fyrir öðrum sýklalyfjum má sjá á mynd 1 og sundurlið- un á tíðni ónæmis meðal flúórókínólón-ónæmra og næmra E. coli stofna má sjá á mynd 2. í öllum tilfellum er ónæmi algengara meðal flúórókínó- lón-ónæmra stofna. Einn Klebsiella sp. stofn og 10 E. coli stofnar greindust einungis með næmi fyrir LÆKNAblaðið 2008/94 281
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.