Læknablaðið - 15.04.2008, Side 59
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
MYND MÁNAÐARINS
Nýjung í Læknablaðinu: Mynd mánaðarins
í þessu tölublaði Læknablaðsins er bryddað upp á nýjunginni
Mynd mánaðarins. Birt verður gömul mynd sem skírskotar til
læknisfræði á íslandi og stuttur texti. Mynd mánaðarins og Tilfelli
mánaðarins munu birtast á víxl annan hvern mánuð.
Umsjón hafa Tómas Guðbjartsson og Engilbert Sigurðsson,
sem sitja í ritstjóm blaðsins. Þeim til aðstoðar verða ráðgjafar úr
hópi eldri kollega; Höskuldur Baldursson bæklunarskurðlæknir,
Ólafur Jónsson svæfingarlæknir, Sigurður E. Þorvaldsson lýta-
læknir og loks Páll Asmundsson nýmalæknir og Örn Bjarnason
læknir sem báðir eru fyrrum ritstjórar Læknablaðsins.
Verkefnið er í samvinnu við Ljósmyndasafn Reykjavíkur og
Kristín Hauksdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri og Sólveig
Þorsteinsdóttir bókasafnsfræðingur á Landspítala verða um-
sjónarmönnum innan handar.
Lesendur eru hvattir til að senda blaðinu gamlar myndir eða
tillögur að myndum, úr opinberum söfnum eða einkaeign.
Einnig eru læknar og ekki síst unglæknar hvattir til að senda
inn sjúkratilfelli sem gætu birst sem Tilfelli mánaðarins. Slík
tilfelli hafa nú birst í rúmt ár í blaðinu og hefur verið vel tekið.
Texti með tilfellinu á að vera stuttur og mega fylgja 1-2 myndir,
röntgenmyndir, hjarta- eða heilalínurit, myndir af vefjasýnum
eða ljósmyndir sem ekki eru persónugreinanlegar. Svar við til-
felli sé 2000 letureiningar og með 4-10 heimildum.
Tómas Guðbjartsson tomasgud@landspitali.is, Engilbert Sigurðsson
Læknanemar í verklegri efnafræði
Myndin er úr ljósmyndasafni Trausta Ólafssonar og senni-
lega tekin árið 1926. Á myndinni eru Árni Guðmundsson,
Guðmundur Karl Pétursson, Þorvaldur Blöndal, Bergsveinn
Ólafsson, Arngrímur Björnsson, Haraldur Sigurðsson, Sæbjörn
Magnússon, Gerður Bjarnhéðinsson, Kristján Grímsson, Kjartan
Jóhannsson og María Hallgrímsdóttir. Lengst til hægri er Trausti
Ólafsson efnaverkfræðingur og kennari hópsins. Hann var
jafnframt forstöðumaður Efnarannsóknarstofu ríkisins sem
var í bakhúsi við Hverfisgötu 44 og kenndi hann um árabil við
læknadeild. Um það leiti sem myndin var tekin var efnafræði
kennd á fyrsta ári og var hún þá helsta námsgreinin en einnig
sóttu læknanemar á fyrsta ári tíma í líffærafræði og forspjallsvís-
indum. Á myndinni má sjá tvær af fyrstu konunum sem útskrif-
uðust úr læknadeild Háskóla íslands, Maríu Hallgrímsdóttur
sem útskrifaðist 1931 og Gerði Bjarnhéðinsson sem útskrifaðist
ári síðar. Á undan þeim höfðu aðeins tvær konur lokið prófi frá
læknadeildinni, Kristín Ólafsdóttir, sem var þeirra fyrst árið
1917 og Katrín Thoroddsen árið 1921. Á þessum árum lögðu
fáar konur stund á læknisfræði, eða innan við 5% læknanema
hér á landi, og hækkaði það hlutfall ekki fyrr en upp úr síðari
heimsstyrjöld.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Læknar á íslandi. Ritstjóri Gunnlaugur Haraldsson. Reykjavík 2000:15-7.
Bjamason T. Læknanám fyrir 35-40 árum. Læknaneminn 1961: 35-41.
Kolka R Læknadeild fyrir hálfri öld. Læknaneminn 1968; 3: 28-39.
LÆKNAblaðið 2008/94 327