Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 59

Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 59
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR MYND MÁNAÐARINS Nýjung í Læknablaðinu: Mynd mánaðarins í þessu tölublaði Læknablaðsins er bryddað upp á nýjunginni Mynd mánaðarins. Birt verður gömul mynd sem skírskotar til læknisfræði á íslandi og stuttur texti. Mynd mánaðarins og Tilfelli mánaðarins munu birtast á víxl annan hvern mánuð. Umsjón hafa Tómas Guðbjartsson og Engilbert Sigurðsson, sem sitja í ritstjóm blaðsins. Þeim til aðstoðar verða ráðgjafar úr hópi eldri kollega; Höskuldur Baldursson bæklunarskurðlæknir, Ólafur Jónsson svæfingarlæknir, Sigurður E. Þorvaldsson lýta- læknir og loks Páll Asmundsson nýmalæknir og Örn Bjarnason læknir sem báðir eru fyrrum ritstjórar Læknablaðsins. Verkefnið er í samvinnu við Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Kristín Hauksdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri og Sólveig Þorsteinsdóttir bókasafnsfræðingur á Landspítala verða um- sjónarmönnum innan handar. Lesendur eru hvattir til að senda blaðinu gamlar myndir eða tillögur að myndum, úr opinberum söfnum eða einkaeign. Einnig eru læknar og ekki síst unglæknar hvattir til að senda inn sjúkratilfelli sem gætu birst sem Tilfelli mánaðarins. Slík tilfelli hafa nú birst í rúmt ár í blaðinu og hefur verið vel tekið. Texti með tilfellinu á að vera stuttur og mega fylgja 1-2 myndir, röntgenmyndir, hjarta- eða heilalínurit, myndir af vefjasýnum eða ljósmyndir sem ekki eru persónugreinanlegar. Svar við til- felli sé 2000 letureiningar og með 4-10 heimildum. Tómas Guðbjartsson tomasgud@landspitali.is, Engilbert Sigurðsson Læknanemar í verklegri efnafræði Myndin er úr ljósmyndasafni Trausta Ólafssonar og senni- lega tekin árið 1926. Á myndinni eru Árni Guðmundsson, Guðmundur Karl Pétursson, Þorvaldur Blöndal, Bergsveinn Ólafsson, Arngrímur Björnsson, Haraldur Sigurðsson, Sæbjörn Magnússon, Gerður Bjarnhéðinsson, Kristján Grímsson, Kjartan Jóhannsson og María Hallgrímsdóttir. Lengst til hægri er Trausti Ólafsson efnaverkfræðingur og kennari hópsins. Hann var jafnframt forstöðumaður Efnarannsóknarstofu ríkisins sem var í bakhúsi við Hverfisgötu 44 og kenndi hann um árabil við læknadeild. Um það leiti sem myndin var tekin var efnafræði kennd á fyrsta ári og var hún þá helsta námsgreinin en einnig sóttu læknanemar á fyrsta ári tíma í líffærafræði og forspjallsvís- indum. Á myndinni má sjá tvær af fyrstu konunum sem útskrif- uðust úr læknadeild Háskóla íslands, Maríu Hallgrímsdóttur sem útskrifaðist 1931 og Gerði Bjarnhéðinsson sem útskrifaðist ári síðar. Á undan þeim höfðu aðeins tvær konur lokið prófi frá læknadeildinni, Kristín Ólafsdóttir, sem var þeirra fyrst árið 1917 og Katrín Thoroddsen árið 1921. Á þessum árum lögðu fáar konur stund á læknisfræði, eða innan við 5% læknanema hér á landi, og hækkaði það hlutfall ekki fyrr en upp úr síðari heimsstyrjöld. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Læknar á íslandi. Ritstjóri Gunnlaugur Haraldsson. Reykjavík 2000:15-7. Bjamason T. Læknanám fyrir 35-40 árum. Læknaneminn 1961: 35-41. Kolka R Læknadeild fyrir hálfri öld. Læknaneminn 1968; 3: 28-39. LÆKNAblaðið 2008/94 327
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.