Læknablaðið - 15.04.2008, Síða 61
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
LYFLÆKNAÞING
▼
XVIII. þing Félags íslenskra lyflækna
6.-8. júní á Hótel Selfossi
Dagskrárdrög, skilafrestur ágripa, erinda og veggspjalda og skráning
XVIII. þing Félags íslenskra lyflækna verður haldið á
Hótel Selfossi 6.-8. júní næstkomandi. Dagskrá þingsins
verður fjölbreytt og ætti að höfða til breiðs hóps lyflækna.
Meginþema þingsins verður blóðsjúkdómar og krabbamein.
Þá verður kynning vísindarannsókna stór þáttur að vanda.
Frestur til að skila ágripum rennur út 15. apríl.
Helstu efnisatriði
• Málþing um blóðsjúkdóma sem tileinkað er minningu læknanna
Jóhönnu Björnsdóttur og Guðmundar M. Jóhannessonar. Meðal
fyrirlesara verður dr. Cynthia Dunbar frá National Institutes of Health í
Bandaríkjunum, einn af aðalritstjórum tímaritsins Blood. Erindi hennar
mun fjalla um genalækningar. Þá munu innlendirfyrirlesarar geragrein
fyrir nýjungum í meðferð illkynja blóðsjúkdóma.
• Fjallað verður um nýjungar í meðferð krabbameina og verður meðal
annars tekist á um notagildi nýrra og dýrra lyfja.
• Fyrirlestur verður um áhættumat við meðferð hjarta- og æðasjúkdóma,
með áherslu á notkun statínlyfja.
• Þá verður kastljósinu beint að lifrarlækningum og mun dr. Arthur
McCullough, forseti Amerísku lifrarlækningasamtakanna og yfirlæknir
meltingar- og lifrarlækninga á Cleveland Clinic í Bandaríkjunum, flytja
erindi um þessa “nýju” sérgrein innan lyflækninga. Auk þess mun
hann flytja fyrirlestur um fitulifur af völdum annarra orsaka en áfengis
(non-alcoholic fatty liver disease).
• Málþing um stöðu og framtíð almennra lyflækninga í Reykjavík og á
landsbyggðinni verður ennfremur á dagskránni.
Kynning vísindarannsókna
Vísindarannsóknir verða kynntar með erindum og veggspjöldum. Ekki
verður um samhliða kynningar að ræða.
• Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar (characters with
spaces), talið án nafna höfunda og stofnana.
• Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
• Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þeirri röð sem hér er getið: titill,
nöfn höfunda, (nafn flytjanda feitletrað), vinnustaðir með tilvísun til
höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir.
• Ágrip skal senda með tölvupósti sem viðhengi, (word-skjal - .doc), til
framkvæmdastjóra þingsins á netfangið: birna@birna.is
• Notaður verður tölvuskjávarpi við flutning erinda.
• Hvert erindi fær 10 mínútur og er gert ráð fyrir sjö mínútum fyrir flutning
og þremur fyrir umræðu. Afar mikilvægt er að halda tímamörk!
• Stærð veggspjalda er 90 sm breidd x 120 sm hæð. Höfundar komi
með veggspjöld tilbúin.
• Leiðsögumenn munu stýra kynningu veggspjalda og fær hvert spjald
átta mínútur til kynningar.
• Vísindanefnd Félags íslenskra lyflækna metur hvort kynning fer fram
með erindi eða veggspjaldi.
Ungir læknar í framhaldsnámi
í tengslum við þingið verður sérstök dagskrá sem beinist að ungum
læknum er stunda framhaldsnám í lyflækningum. Flutt verða yfirlitserindi
um áhugaverð og hagnýt efni. Tveir deildarlæknar, Jónas Geir Einarsson
og Ragnar Freyr Ingvarsson, munu greina frá þátttöku sinni í Evrópska
lyflæknaskólanum (European School of Internal Medicine) í september
síðastliðnum og jafnframt kynna starfshóp ungra lækna innan
Evrópusamtaka lyflækna.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir besta framlag unglæknis og nema.
Skipulagning
Nánari upplýsingar um þingið, þátttökugjald, verð á gistingu, bókanir í
gistingu og skráning eru á heimasíðunni: www.birna.is
Þar verður ítarlegri dagskrá birt á næstu vikum, auk þess sem hún
verður send út til lækna.
Tímamörk
Skilafrestur ágripa: 15. apríl.
Bókun í gistingu: 1. maí.
Skráning á þingið: 1. júní.
Skipuleggjandi
Menningarfylgd Birnu ehf.
Veffang: www.birna.is
Netfang: birna@birna.is
Sími: 862 8031
Aðalstyrktaraðili
þingsins er Vistor hf.
%
Menningarfylgd
Birnu
vistor
LÆKNAblaðið 2008/94 329