Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 13

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 13
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Tafla I. TNM stigun krufningagreindra nýrnafrumu- krabbameina 1971-2005. Gefinn er upp fjöldi tilfella og % í sviga. ‘TNM-stigun n (%) 1 89 (83,2) II 5(4,7) III 6 (5,6) IV 7 (6,5) 'Upplýsingar vantaói fyrir þrjú æxli. um sem er 0,71% krufninga eða 7,1 tilfelli/1000 krufningar. Á sama tímabili greindust í heild 1023 nýrnafrumukrabbamein og voru krufninga- greindu tilfellin 10,8% þeirra, lægst 1,9% á árunum 1996-2000 og hæst 20,5% á árunum 1991-1995. Alls greindust 913 sjúklingar á lífi á þessu tímabili, þar af 255 fyrir tilviljrm, oftast vegna myndrannsókna á kviði sem framkvæmdar voru vegna óskyldra sjúkdóma. Skipting 110 krufningagreindu tilfellanna ásamt krufningahlutfalli á fimm ára tímabilum er sýnd á mynd 1. Krufningahlutfallið hækkaði fyrstu 10 ár rannsóknarinnar úr 30,7% í 38% (p<0,001) en lækk- aði aftur frá 1981-2005 úr 36,4% í 15,2% (p<0,001). Fjöldi tilfella var breytilegur og sem dæmi voru 11 tilfelli greind 1971-75, 38 tilfelli 1991-1995 og 9 til- felli 2001-2005. Á mynd 2 er sýnd hlutfallsleg tíðni krufningagreininga (fjöldi tilfella/1000 krufning- ar) sem einnig var breytileg á fimm ára tímabilum (p<0,001), 1,8-18,8/1000 krufningar frá 1971-2005. Tvö tímabil skera sig úr, 1991-1995 þegar tíðnin er há (18,8/1000 krufningar) og 1996-2000 þegar tíðnin er lág (1,8/1000 krufningar) (p<0,001). Breytingar á tíðni eru þó ekki tölfræðilega mark- tækar yfir 10 ára tímabil. Meðalaldur krufningagreindra sjúklinga var 74,4 ár. Heldur fleiri karlar greindust en konur og var hlutfall karla og kvenna 1,6 (p=0,87). Alls fund- ust 52 (49,1%) æxli í hægra nýra og 50 (47,2%) í því vinstra (p=0,84). Fjórir (3,8%) sjúklingar voru með æxli í báðum nýrum og hjá fjórum vantaði upp- lýsingar um staðsetningu. Stærð krufninga- greindra æxla var að meðaltali 3,7 cm (bil 0,4-18 cm) og voru 58 þeirra (61,1%) undir 4 cm og 9 (9,5%) yfir 7 cm. Hjá 15 sjúklingum vantaði upp- lýsingar um stærð. TNM-stigun krufningagreindu æxlanna er sýnd í töflu I. Langflest æxlanna voru á stigi I. Flest æxli voru af tærfrumugerð eða 80 (74,1%) talsins, 23 (21,3%) totumyndandi, þrjú (2,8%) af litfælugerð og tvö (1,9%) reyndist ekki unnt að flokka. Meirihluti æxlanna var af gráðu 2 eða 72 (67,3%), 19 (17,8%) voru af gráðu 1, 13 (12,1%) af gráðu 3 og þrjú (2,8%) af gráðu 4. í þremur tilfellum var ekki hægt að meta gráðu. Í sjö (6,5%) tilfellum voru meinvörp til staðar, oftast í eitlum. Ekki voru marktækar breytingar á stærð, stigun, gráðun, vefjagerð eða aldri sjúklinga á fimm ára tímabilum (p>0,l). Tafla II sýnir samanburð á krufningagreindum æxlum og þeim sem greindust í sjúklingum á lífi. Kynjahlutfall var sambærilegt, einnig hlutfall æxla í hægra og vinstra nýra. Krufningagreindu tilfellin voru marktækt minni eða 3,7 cm samanborið við 7,3 cm (p<0,001). Totumyndandi æxli voru hlut- fallslega algengari meðal þeirra sem greindust við krufningu (p<0,001). Aftur á móti var tær- frumugerð algengari meðal þeirra sem greindust í lifandi lífi (p<0,001). Krufningagreindu æxlin reyndust á lægri stigum og gráðum (p<0,001). í töflu III er sýndur samanburður á nýrna- frumukrabbameini greindu við krufningu og hjá lifandi sjúklingum sem greindust fyrir tilviljun. Þeir sem greindust við krufningu voru marktækt eldri en hinir en æxlin voru hins vegar marktækt minni og mirnaði 1,7 cm (p<0,001). Auk þess voru þau á lægri stigum (p=0,0001) og gráðum (p=0,04) en tilviljanagreindu æxlin, enda þótt munurinn væri ekki jafnmikill og fyrir allan hópinn sem greindur var lifandi. Totumyndandi æxlisgerð var sömuleiðis hlutfallslega algengari í krufninga- greinda hópnum en tærfrumugerð sjaldgæfari. Tafla II. Samanburður á nýrnafrumukrabbameinum greindum við krufningu og hjá þeim sjúklingum sem greindir voru lifandi. Lifandi greindir Krufningagreindir p-gildi Fjöldi 913 110 Meöalaldur 65,0 74,4 <0,001 Hlutfall karla/kvenna 1,6 1,6 0,96 Æxli hægra megina 471(51,8) 52 (49,1) 0,45 Meðalstaerð (cm)b 7,3 3,7 <0,001 Vef|agerðc Tærfrumuæxli 743 (89,4) 80(74,1) Totumyndandi æxli 66 (7,9) 23 (21,3) <0,001 Annað 22 (2,6) 5 (4,6) Fuhrman gráðund 1 53 (6,4) 19 (17,8) 2 413 (49,9) 72 (67,3) <0,001 3 277 (33,5) 13 (12,1) 4 85 (10,3) 3 (2,8) TNM stige 1 269(29,5) 89 (83,2) II 113 (12,4) 5(4,7) <0,001 III 216 (23,7) 6 (5,6) IV 313 (34,4) 7 (6,5) aUpplýsingar vantaói fyrir fjögur æxli í báöum hópum. bUpplýsingar vantaöi fyrir 67 og 15 æxli í hópunum tveimur. cUpplýsingar vantaði fyrir 82 og tvö æxli. dUpplýsingar vantaöi fyrir 85 og þrjú æxli. eUpplýsingar vantaói fyrir tvö og þrjú æxli í hópunum tveimur. LÆKNAblaðið 2008/94 809

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.