Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 36

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 36
FRÆÐIGREINAR YFIRLITSGREIN óbeint með því að hafa áhrif á himnuspennu. Ein afleiðing þessa er sú að í öndunarfæraþekju sjúk- linga með slímseigjusjúkdóm er tekið upp meira af natríumjónum í gegnum ENaC (epithelial sodium channel).6 Seyti svitakirtla er saltara í sjúklingum með slímseigjusjúkdóm, og þetta er notað til að greina sjúkdóminn með sérstöku svitaprófi (10). Jafnvægi fleiri jóna yfir frumuhimnuna er einnig talið verða fyrir áhrifum af göllum í CFTR. Þetta ójafnvægi í jónaflutningi er talið eiga mestan þátt í meingerð sjúkdómsins og veldur teppu í seyti útkirtla (exocrine glands).6'7 Upphafseinkenni og greining Algengt er að vanþrif hjá ungbörnum séu fyrsta vísbending um slímseigjusjúkdóm. Sjaldnar koma fram öndunarfæraeinkenni eða bjúgur vegna þess að upptaka próteina um meltingarveg er minni en eðlilegt er. Hægðir eru oftast fitugar og illa lyktandi vegna vanmeltingar. Hjá nýburum með bamabiks-garnalömun (meconium ileus) ætti alltaf að útiloka slímseigjusjúkdóm, en gamalöm- un getur myndast vegna þykkara barnabiks en í heilbrigðum börnum.6'10 í töflu I eru rakin helstu einkenni sjúkdómsins. Slímseigjusjúkdómur greinist oftast á fyrstu mánuðum lífs. Sums staðar í heiminum fer fram skimun fyrir sjúkdómnum hjá nýburum með því að mæla próteinið trypsin í blóði (immune reactive trypsin) sem er til staðar í auknu magni hjá börn- um með slímseigjusjúkdóm, en það er ekki gert hérlendis.6'11 Svokallað svitapróf er gert ef grunur leikur á að um sjúkdóminn sé að ræða en þá er Tafla I. Einkenni slímseigjusjúkdóms, fiokkað eftir líffærakerfum. Stjörnumerkt (*) atriði eru oft upphafseinkenni.10 Sjá nánar um einkenni í megintexta. Endurtekin lungnabólga* Öndunarfæri Langvinn berkjubólga* Stafýlókokka sýking 1 öndunarvegi* Langvarandi hósti* Útbreidd kinnholu- og ennisholubólga (pansinusitis ) P. aeruginosa i berkjuskolvökva Separ í nefi Miklar, ilia lyktandi eða fitugar hægðir* Vanþrif barna* Barnabiks-garnalömun (meconium ileus)* Meltingarfæri Garnalömun (intussusception)* Stífla í smáþörmum Framfall á endaþarmi (rectal prolapse) Óútskýrð skorpulifur, gallsteinar eða brisbólga fyrir 30 ára aldur Einkenni vegna skorts á fituleysanlegum vítamínum (A,D,E,K) Saltbragö af húð* Lækkun á natríum í blóði eða efnaskipta-lýting í börnum Önnur einkenni Kylfufingur Ófrjósemi, galli í sáðrás Holdbjúgur (anasarca) sviti framkallaður á húð, og styrkur natríum- og klóríðjóna mældur í svitanum. Erfðaefnispróf eru síðan gerð til að staðfesta sjúkdóminn og greina hvaða stökkbreytingar í CFTR geninu eru til stað- ar.10 Klassísk greiningarskilmerki eru eftirfarandi: 1. Klínísk: Dæmigerð klínísk einkenni eða fjöl- skyldusaga. 2. Rannsóknir: Svitapróf, erfðaefnispróf eða raf- hrif í nefslímhúð (nasal voltage). Einhver af skilmerkjunum í 1. og 2. þurfa að vera til staðar til þess að greina sjúkdóminn. Aðrar mælingar sem gefa vísbendingar um sjúkdóminn eru til dæmis greining á sæði, mæling á ensímum i saur, mæling á próteinum í berkjuskolvökva en þær eru ekki notaðar að staðaldri.10 Sumir sjúklingar uppfylla ekki öll greining- arskilmerki og geta til dæmis verið með klassísk einkenni og stökkbreytingar í CFTR en eðlilegt svitapróf. Aðrir eru ekki með dæmigerð einkenni heldur vægari sjúkdómsmynd með brisbólgu, galla í sáðrás og sepum í nefi. Hjá slíkum sjúkling- um ætti að gera erfðaefnisrannsókn til þess að erfðaráðgjöf sé möguleg.10 Að lokum má nefna að lítill hópur er með klínísk einkenni slímseigju- sjúkdóms, þar með talið jákvætt svitapróf, en enga stökkbreytingu í CFTR. Ástæða sjúkdóms- ins í þessum sjúklingum er ókunn, en líklega er um að ræða óþekkta stökkbreytingu.12 Eins og búast má við eru þeir sem greinast eftir táningsár yfirleitt með vægari sjúkdóm en þeir sem greinast ungir.13 Hins vegar er mjög mikilvægt að greina börn með sjúkdóminn sem fyrst og rannsóknir hafa sýnt að snemmgreining tengist betri horf- um.14 Meinmyndun, einkenni og meðferð Öndumrfæri Þrátt fyrir að stökkbreyting í CFTR valdi oftast mestum einkennum frá öndunarfærum þarf með- ferð sjúkdómsins að vera heildræn og taka á öllu sem hægt er að meðhöndla miðað við einkenni sjúklinga og þá meðferðarmöguleika sem bjóðast. Mjög mikilvægt er einnig að sjúklingar nærist vel, og hefur vannæring áhrif á allar hliðar sjúkdóms- ins.6,15 Helstu öndunarfæraeinkenni stafa af lang- vinnum bakteríu- og veirusýkingum með bólgu- svari þar sem daufkyrningar (neutrophiles) eru mest áberandi. Þessu fylgir langvinnur hósti með uppgangi og mæði.6'7 Það jóna-ójafnvægi sem myndast vegna stökkbreytingar í CFTR veldur þykkara slími í berkjum og breyttu sýrustigi sem bætir vaxtarskilyrði öndunarfærasýkla og veikir getu daufkyrninga til þess að drepa þá. Lungun eiga einnig erfiðara með að losa sig við þykka 832 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.