Læknablaðið - 15.01.2009, Side 13
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Tafla I. Algengi helstu geðlyfjaflokka meðal 70 ára og eldri á íslandi árið 2006. Hlutfallsleg áhætta (RR) eftir kyni með
samsvarandi 95% öryggisbilum (Cl).
ATC-flokkur Lyfjaflokkur KK* KVK RR 95% Cl
N06A Þunglyndislyf (antidepressiva) 18,4% 28,8% 1,56 (1,49-1,64)
N05A Geðrofslyf (neuroleptica) 4,5% 5,9% 1,33 (1,19-1,49)
N05B Kvíðastillandi lyf (anxiolytica) 16,2% 26,2% 1,62 (1,54-1,70)
N05C Svefnlyf (hypnotica) 33,4% 49,0% 1,46 (1,42-1,51)
N05B og/eða N05C Kvíðastillandi lyf og/eða svefnlyf 40,3% 58,5% 1,45 (1,41-1,49)
N05 og/eða N06A Einhver ofantalinna geölyfja 46,8% 65,5% 1,40 (1,37-1,43)
*Karlar sem viómiöunarhópur.
frá og með 1. október til og með 31. desember árið
2006. Val tímabilsins miðaði að því að niðurstöður
myndu ekki raskast vegna mögulegs fráviks í
lyfjaávísun lækna yfir sumarleyfistímann.
Hlutfallsleg áhætta (relutive risk, RR), með
95% öryggisbil (95% CT), var reiknuð til að meta
kynjamun geðlyfjanotkunar í rannsóknarþýði.
Einnig voru hlutfallslegar (95% CI) líkur á notkun
geðlyfja reiknaðar fyrir 70-74 ára íslendinga með
Dani á sama aldri sem viðmið.
Við útreikninga og gerð mynda var notast
við Excel-töflureikni. Öll gögn voru dulkóðuð
og ópersónugreinanleg áður en vinnsla þeirra
hófst. Vísindasiðanefnd veitti leyfi til rartnsókn-
arinnar (tilvísunarnúmer VSNb2007110012/03-
15). Vinnsla persónuupplýsinga um lyfjanotkun
var jafnframt tilkynnt Persónuvernd.
Niðurstöður
Utleystar lyfjaávísanir á Islandi árið 2006 voru alls
2.460.988. Rannsóknarþýðið, 70 ára og eldri utan
stofnana, var 8,6% af heildarmannfjölda ársins og
leysti út 719.051 lyfjaávísanir, eða 29,2%. Tæplega
fjórðungur (23,7%) allra útleystra lyfjaávísana
fyrir 70 ára og eldri árið 2006 voru á geðlyf (N05A,
N05B, N05C, N06A).
Á mynd 1 sést aldursdreifing þeirra sem not-
uðu geðlyf á Islandi árið 2006. Algengi hækkaði
með aldri og var 11,3% hjá ungu fólki (20-24 ára),
24,1% hjá miðaldra fólki (45-49 ára), 49,4% hjá
yngsta aldurshópi aldraðra (70-74 ára) og 85,6% í
elsta aldurshópnum (95 ára og eldri). Aldurstengd
aukning á algengi geðlyfjanotkunar var mest áber-
andi fyrir kvíðastillandi lyf og svefnlyf.
Marktækur kynjamunur var á notkun geðlyfja
í rannsóknarþýðinu. Algengi geðlyfjanotkunar
(N05A, N05B, N05C eða N06A) var 65,5% fyrir
konur og 46,8% fyrir karla. Algengust var notkun
kvíðastillandi lyfja og svefnlyfja (N05B eða N05C),
en 58,5% kvenna og 40,3% karla leystu út lyf í
þessum flokkum (tafla I).
Tafla II sýnir notkun á mismunandi teg-
undum lyfja innan hvers geðlyfjaflokks. I flokki
kvíðastillandi- og svefnlyfja (N05B og N05C) var
notkun nýrri skammverkandi svefnlyfja (zópiklón
og zolpidem) algengust. Sérhæfðir serótónín-
endurupptökuhemlar (SSRI) voru algengastir í
flokki þunglyndislyfja (N06A) og fentíazín í flokki
geðrofslyfja (N05A).
Notkun einstakra lyfja innan hvers geðlyfja-
flokks er sýnd á myndum 2a og 2b. Af einstökum
geðlyfjum var svefnlyfið zópíklón mest notað,
bæði meðal kvenna (35,5%) og karla (24,3%).
Athugun á fjölgeðlyfjanotkun rannsóknarþýðis
leiddi í ljós að á þriggja mánaða tímabili, 1. októ-
ber til 31. desember árið 2006, leystu 8,5% kvenna
og 4,4% karla út þrjú eða fleiri mismunandi geðlyf
úr flokkunum N05A, N05B, N05C og N6A.
Hlutfallslegur munur geðlyfjanotkunar eftir
lyfjaflokkum á íslandi og í Danmörku meðal 70-
74 ára er sýndur í töflu III. Algengi geðlyfjanotk-
unar meðal 70-74 ára var hærra á Islandi og er
munurinn 1,5- til 2,5-faldur. Mestur munur var á
svefnlyfjanotkun þessa aldurshóps en 2,5 sinnum
fleiri íslendingar leystu út svefnlyf árið 2006 en í
Danmörku sama ár (RR 2,47; 95 % CI: 2,40 - 2,54).
Tafla II. Algengi helstu undirflokka geðfyfja meðal 70 ára og eldri á íslandi árið 2006.
Fjöldi notenda á hverja 100 íbúa utan stofnana (%>).
Lyfjaflokkur Algengi (%)
ATC Þunglyndislyf (N06A) KK KVK
N06AA Ósérhæfðir mónóamín endurupptökuhemlar (TCA) 3,9% 8,6%
N06AB Sérhæfðir sérótónín endurupptökuhemlar (SSRI) 11,5% 16,8%
N06AX Serótónín-noradrenalín endurupptökuhemlar (SNRI) og önnur þunglyndislyf 5,8% 9,0%
Geðrofslyf (N05A)
N05AA Fentíazín með alífatíska hlióarkeðju 1,5% 1,8%
N05AB Fentiazín meö píperazínhring í hliðarkeðju 0,6% 1,0%
N05AH Díazepín, oxazeín og tíazepín 0,9% 1,3%
N05AX Önnur geðrofslyf (aðallega risperídon) 0,9% 1,1%
Kvíðastillandi lyf og svefnlyf (N05B og N05C)
N05BA Benzódíazepínafbrigði 15,0% 25,2%
N05BB Dífenýlmetanafbrigði 1,6% 1,5%
N05CD Benzódíazepínafleiður 6,8% 9,0%
N05CF Benzódíazepín og skyld lyf 28,8% 42,7%
LÆKNAblaðið 2009/95 13