Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2009, Side 41

Læknablaðið - 15.01.2009, Side 41
UMRÆÐUR 0 G F R É T T I R G E N í S Jóhannes Gíslason og Jón Magnús Einarsson hjá Genís. athygli. Á hinn bóginn hafa kítínasapróteinin sem birtast við vefjaskemmdir og sjúkdóma notið mjög vaxandi athygli og vísindamenn eru að skoða þau frá ýmsum sjónarhornum. Þau eru orðin viðurkenndur hluti af sjúkdómsmynd margra sjúkdóma, meðal annars í flestum sjúkdómum sem fela í sér vefjaskemmdir." Jóhannes segir síðan að rannsóknir þeirra bendi til þess að við vefjaskemmdir bindist fásykran, sem fóstrið virðist geta framleitt en fullorðinn einstaklingur ekki, á próteinið. „Við það breytir próteinið um lögun og okkar tilgáta er sú að bind- ing fásykrunnar við próteinið sé nauðsynleg til að eðlileg vefjaþroskun geti átt sér stað. Við segjum því að þegar fullorðinn einstaklingur verður fyrir vefjaskemmd og vefurinn byrjar að tjá þetta pró- tein er hann að reyna að endurspila ferlið sem átti sér stað í fósturþroskanum, en eiginleikinn til að framleiða kítínfásykruna er ekki lengur til staðar. Okkar rannsóknartilgátur snúast því um að setja þessa kítínfásykru inn í vefinn og skapa með því sömu skilyrði og voru til staðar á fósturstiginu. Þá getur sykran farið að tala við próteirdð og það breytir um hlutverk. í stað þess að kalla á fíbró- blastana og mynda örvef myndast eðlilegur vefur að nýju. Þetta höfum við séð gerast í beini og nýja beinið myndast í gegnum feril sem kallast endo- condralbeinmyndun sem er nákvæmlega eins og gerist á fósturstiginu. Fyrst verður til brjósk sem síðan ummyndast í beinvef. Þetta gerist yfirleitt ekki í fullvaxta einstaklingi heldur verður fyrst til örvefur sem á löngum tíma ummyndast í bein." Leita að réttum samsetningum Rannsóknimar sem sýndu óyggjandi fram á að fásykran hefði þessi áhrif á nýmyndun beinvefs voru unnar fyrir nokkrum ámm í samstarfi Genís við vísindamenn í Þýskalandi, Frakklandi og ísrael. „Niðurstöðurnar styðja í grundvallaratrið- um tilgátu okkar en við höfum síðan verið að vinna að því að betrumbæta samsetningarnar og finna út hvaða samsetningar henta best við mis- munandi skilyrði. Læknar sem vilja nýta þessa þekkingu lenda í alls kyns aðstæðum og þá skiptir máli að hafa sem réttasta samsetningu. Við erum LÆKNAblaðið 2009/95 41

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.