Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 55

Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 55
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR ÆVISÖGUR LÆKNA Páll útskrifast stúdent úr MR vorið 1943 og segir að stúdentshópurinn hafi haldið vel saman allar götur þó talsvert hafi fækkað með árunum. „Við erum orðin svo ansi gömul." Páll segist hafa velt því fyrir sér allan mennta- skólann hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur að loknu stúdentsprófi. „Ég spáði talsvert í verk- fræði en svo varð læknisfræðin ofaná þar sem ég taldi að það væri meira lifandi starf og hafði fyrirmynd frá föður mínum. Þá tíðkaðist það að heimilislæknar færu í vitjanir á heimili fólksins og heimili læknisins var í ýmsu tilliti eins konar mið- stöð heilsugæslu þeirra fjölskyldna sem læknirinn sinnti. Það hafði sín áhrif að ég var mjög virkur í skátahreyfingunni á þessum tíma og lengi áður og fannst læknisstarfið eiga vel við þann lífsstíl." Skátahreyfingin átti sitt blómaskeið á íslandi frá miðri síðustu öld og næstu áratugina á eftir. Páll segir miður að áhrif hreyfingarinnar hafi minnkað á seinni árum og færri sækja í skáta- starfið nú. „Það á sér sínar eðlilegu skýringar en á þessum tíma var þátttaka í skátahreyfingunni eini möguleiki margra unglinga til að upplifa ferðalög og útilegui; læra grundvallaratriði um útivist og fjallgöngur. Nú þykir þetta sjálfsagður hluti af lífsstíl fjölskyldunnar og eflaust er þetta að miklu leyti fyrir áhrif frá skátahreyfingunni." Páll kveðst ekki hafa tölu á þeim fjölmörgu ferðum innanlands og utan með skátum sem hann og þau hjón hafa farið, en nefnir skátaskálann í Lækjarbotnum sem eins konar miðpunkt starfsins á gagnfræða- og menntaskólaárum sínum „Við fórum þangað nánast um hverja einustu helgi vetur eftir vetur. Slíkar ferðir hafa ekki sama aðdráttarafl í dag. Skátahreyfingin í dag telur 38 milljónir í heiminum og fjöldinn er mestur í þriðjaheimsríkj- unum. I Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum hefur heldur fækkað í hreyfingunni." Páll minnist nokkurra kennara sinna úr lækna- deild með mikilli ánægju og nefnir Guðmund Thoroddssen sem sérlega minnisstæðan. „Hann hélt klukkutíma fund með okkur læknanemunum á hverjum morgni og fór yfir ýmis konar tilfelli og aðgerðir. Hann hafði mikil áhrif á okkur til góðs. Jóhann Sæmundsson var frábær maður og fleiri ágætir menn voru í hópi kennara, Níels Dungal og Jón Steffensen. Jón kenndi allan fyrrihlutann læknanámsins nema efnafræðina. Hann hélt ekki fyrirlestra heldur hlýddi manni yfir. Þeir sem töldu sig vel lesna settust á fremsta bekk en aðrir héldu sig aftar. Síðan var prófað í fyrrihlutanum oftir þrjú ár. Menn máttu endurtaka prófið árið eftir en síðan ekki meir. Margir sem féllu fóru á taugum yfir þessu og treystu sér ekki í endurtekn- ■ngarprófið. Þá voru þrjú ár farin í súginn. Pétur Jakobsson kenndi okkar fæðingarfræði og gerði það ágætlega en þetta var alltof lítil kennsla sem “ skurðdeild við fengum. Við vorum átta sem útskrifuðumst kandspítalans í maí 1974. saman og eldri læknamir spurðu okkur hvað við ætluðum að gera. Það væri enga vinnu að fá fyrir lækna. Það rættist nú úr því. Dró úr sér14 tennur Svo voru stúdentar sendir út á land lítt kunnandi og ég var hræddastur við að lenda í erfiðum fæð- ingum. Ég fór fyrst á Patreksfjörð og þar voru fáar fæðingar en síðan var ég hálft ár á Norðfirði eftir kandídatsprófið og á þeim tíma tók ég á móti 30 börnum. Það gekk allt vel og ég lærði að láta nátt- úruna ráða. Þar voru aðstæður hins vegar mjög slæmar, engin áhöld eða tæki til á sjúkrahúsinu, LÆKNAblaðið 2009/95 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.