Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2009, Síða 61

Læknablaðið - 15.01.2009, Síða 61
U M R Æ Ð U R O G FRÉTTIR MINNINGARORÐ Kristín Elísabet Jónsdóttir læknir Lilja Sigrún Jónsdóttir formaður Félags kvenna í læknastétt á íslandi Kristín Elísabet Jónsdóttir læknir (28. janúar 1927 - 7. september 2008) lauk stúdentsprófi frá MR1946. Hún lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands 1. janúar 1953 og hélt til framhaldsnáms í lyflækningum við Mount Vernon-sjúkrahúsið í New York. Kristín sneri heim til íslands 1959, fékk almennt lækningaleyfi 30. júní 1959 og sérfræðileyfi í lyflækningum 20. janúar 1960. Hún var fyrsta konan í læknastétt hér á landi sem fékk við- urkenningu sem sérfræðingur í lyflækningum. Kristín starfaði fyrst við Borgarspítalann, síðan um hríð við tilraunastöð HI á Keldum, þá aftur við Borgarspítalann, en sneri sér síðan alfarið að störf- um á sýkladeild rannsóknarstofu HÍ þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir 1996. Margar ritgerðir um rannsóknir Kristínar birtust í innlendum og erlendum fræðiritum. Jafnframt rannsóknarstörf- unum stundaði Kristín kennslu, meðal annars við Háskóla íslands og Nýja hjúkrunarskólann. Kristín léði Zonta-klúbbnum krafta sína í áratugi og sat jafnframt í stjórn Minningargjafasjóðs Landspítala. Á aðalfundi Félags kvenna í læknastétt á íslandi, þann 13. nóvember 2008, var Kristínar minnst og Margrét Guðnadóttir flutti minning- arorð þau sem hér fylgja. Margrét Guðnadóttir Minningarorð um Kristínu Jónsdóttur, lækni,flutt á aðalfundi Félags kvenna í læknastétt 13/11 2008 Þann 7. september síðastliðinn andaðist Kristín Elísabet Jónsdóttir læknir 81 árs að aldri. Það er mér mikill heiður að mega hér minnast þeirrar ágætu manneskju með nokkrum orðum: Kristín var Vestfirðingur í báðar ættir. Hún var fædd á bænum Hafrafelli við Skutulsfjörð, þriðja bam hjónanna Kristínar Guðmundsdóttur frá Hafrafelli og Jóns Guðmundssonar úr Bjarnarfirði á Hornströndum. Hún átti tvo eldri bræður, Guðmund og Hauk, en böm þeirra hjóna urðu ekki fleiri. í upphafi síðustu aldar var löng og ströng leið fyrir eina sveitastúlku að komast til mennta og ljúka háskólanámi. Samt var það nú draumur margra foreldra í þá daga að börnin þeirra fengju að ganga þann menntaveg sem þau fóru á mis við sjálf. Þegar Kristín Jónsdóttir var komin á skóla- aldur fór mamma hennar með barnahópinn sinn á hverjum vetri til Reykjavíkur og bjó þar svo að krakkarnir kæmust í betri barnaskóla, en Jón sinnti búskapnum heima á Hafrafelli. Þau syst- kinin fóru síðan öll í framhaldsskóla sem var fátítt um sveitaböm á þessum árum. Tvö þau yngri luku háskólanámi. Haukur varð lögfræðingur en Kristín læknir. Kristín var hörku námsmanneskja og reyndar harðdugleg að hverju sem hún gekk. Á þessum árum voru aðeins tveir menntaskólar í Iandinu, Meimtaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn á Akureyri. Á Akureyri var heimavist, en ekki í Reykjavík. í MR var aðeins einn fyrsti bekkur og aðeins 25 nemendur teknir í hann eftir strangt inntökupróf. Þetta var nú jafnréttið til náms á æskuárum Kristínar. Hún varð stúdent úr mála- deild MR vorið 1946 með ágætiseinkunn og hafði alla tíð mjög gaman af tungumálanámi og lestri góðra bóka. Málanáminu frá menntaskólaárunum hélt hún mjög vel við, og var auk þess vel fær í spænsku. Haustið 1946 hóf Kristín læknanám sem hún lauk vorið 1953 með hæstu einkunn í hópnum sem útskrifaðist það árið. Fáum mánuðum síðar hélt hún til Bandaríkjanna í framhaldsnám. Fyrst lauk hún þar kandídatsárinu svokallaða, vinnu á ýmsum deildum sjúkrahúsa sem kandídatar urðu að hafa lokið til að geta fengið lækningaleyfi. Síðan var hún ár í meinafræði og á eftir því þrjú ár í sérnámi í lyflækningum. Að þeim tíma lokn- um hélt hún hingað heim til Islands og varð fyrst kvenna til að starfa hér á landi sem sérfræðingur í lyflækningum. Starfsferill Kristínar hófst haustið 1959 á lyf- lækningadeild Borgarspítala sem þá var til húsa í Heilsuverndarstöðinni, því að nýbyggingin sem LÆKNAblaðið 2009/95 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.