Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2009, Síða 69

Læknablaðið - 15.01.2009, Síða 69
U M R Æ Ð U R 0 G FRÉTTIR LANDLÆKNIR Ný upplýsingaveita á vegum Landlæknisembættisins Nýr vefur fyrir kóðuð flokkunarkerfi á vegum Landlæknisembættisins var opnaður í lok nóv- ember. Vefurinn ber heitið SKAFL sem er skamm- stöfun fyrir Stöðluð kóðun í alþjóðlegum flokk- unarkerfum Landlæknisembættisins og er hann að finna á slóðinni www.skafl.is Þar eru birt öll flokkunarkerfi sem landlæknir hefur mælt fyrir um að nota skuli í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Flokkunarkerfi eru notuð, til dæmis til að auðkenna sjúkdómsgreiningar, ýmis inngrip, svo sem skurðaðgerðir, og til skráningar á hjúkrunar- greiningum og úrlausnum. Skráning í íslenskri heilbrigðisþjónustu byggir á aðgengilegum og viðeigandi flokkunarkerfum. Stór hluti starfs- manna heilbrigðisþjónustunnar notar flokkunar- kerfi daglega við skráningu, læknar, hjúkrunar- fræðingar og læknaritarar, en fleiri stéttir hafa þörf fyrir kóðuð flokkunarkerfi við sína skráningu, svo sem sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. Vef þessum er ætlað að auðvelda þau störf, en rafræn birting tryggir einnig bætta dreifingu á uppfærslum og viðbótum. Hið nýja vefviðmót fyrir flokkunarkerf- in verður því veigamikil viðbót við starfsumhverfi heilbrigðisstétta. Lilja Sigrún Jónsdóttir er verkefnisstjóri flokk- unarkerfa hjá Landlækni og hefur haft veg og vanda af uppsetningu vefsins. Hún segir að við- brögð hafi almennt verið góð en vinna við viðbæt- ur og aukna leitarmöguleika fyrir þarfir einstakra notenda hafi þegar hafist. „Við reiknum með að viðbæturnar verði komnar í gagnið um miðjan janúar og ef allt gengur að óskum getum við kynnt þær ásamt vefnum í heild á Læknadögum í janúar." Hlutverk flokkunarkerfa í rafrænum sjúkra- skrám er að samræma skráningu og auka gæði og notagildi skráðra gagna. Gæði skráningar í heilbrigðisþjónustu verða æ mikilvægari nú í ljósi aukinnar áherslu á kostnaðargreiningu hennar og eru kóðuð flokkunarkerfi mikilvægur hluti af því ferli. Vonir standa því til þess að nýi vefurinn komi að góðum notum. Löng hefð er fyrir þýðingum og útgáfu alþjóð- legra flokkunarkerfa hér á landi. Þau voru áður gefin út á prenti en hafa í seinni tíð einnig verið gerð aðgengileg á rafrænu formi á vef embætt- isins. Til þessa hefur rafrænt birtingarform flokk- unarkerfanna ekki gert þeim full skil. Þar hefur til dæmis vantað skýringartexta, millivísanir og frávísanir eins og við á hverju sinni. Af þessum sökum hafa vefskrárnar ekki getað komið að fullu í stað bóka. Til að gefa yfirsýn yfir umfang útgáfunnar innihalda flokkunarkerfin sem birtast á þessum nýja vef embættisins rúmlega 34.000 skráð heiti. Til samanburðar eru uppflettiorð Orðabókar Menningarsjóðs 85.000 talsins. Umsýsla flokk- unarkerfanna er unnin við Landlæknisembættið, en þýðingar þeirra eru unnar í góðu samstarfi við fagstéttir eftir því sem við á. Afmæliskveðja Til Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi landlæknis, f. 11. nóvember 1928 og enn ífullu fjöri. Á máttarstólpans áttræðis-afmælisdegi Mín ósk er að gæfa og gengi fylgja megi Þeim varnarjaxli réttlætis, mennsku og mildi, Manni sem trúr sinni hugsjón hopar eigi, en hefur til nýrrar virðingar vanrækt gildi. 11. nóvember 2008, Magnús Skúlason LÆKNAblaðið 2009/95 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.