Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 94

Læknablaðið - 15.01.2009, Blaðsíða 94
HtTu G L E I Ð I N G HÖFUNDAR Læknarnir í lífi mínu Auður Jónsdóttir Auöur (1973) hefur skrifaö fjórar skáldsögur, Stjórnlausa lukku (1998), Annað líf (2000), Fólkið í kjallaranum (2004) og Tryggðarpant (2006). Jafnframt hefur hún sent frá sér barnabækur, Algjört frelsi (2001) og Skrýtnastur er maður sjálfur (2002). Auður hefur verið nokkrum sinnum verið tilnefnd til íslensku bókmenntaverð- launanna og hlaut þau 2004 fyrir Fólkið í kjallaranum. Fyrir þá bók var hún tilnefnd af íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2006. Nýjast úr smiöju hennar er Vetrarsól (2008). í dag er ég stödd í einskismannslandi milli íslands og Spánar, skráð í spænska heilbrigðiskerfið en búsett til bráðabirgða á íslandi. Ég er orðin vön að flækjast milli lækna með leiðbeiningar um sjálfa mig hráþýddar á krumpuðum seðlum, einna líkust ofnotuðum bílskrjóði með flogaveiki, astma, krón- íska blöðrubólgu, ör eftir keiluskurð og bakverk sem ágerist með hverri nýrri bók. Skrjóðurinn er ekki fyrr kominn í nýtt land en hann þarfnast yfirhalningar svo ég hef þurft að útskýra lík- amsástand mitt á dönsku, ensku, spænsku og íslensku. Meira að segja notað táknmál andspænis frönskumælandi lækni á hóteli í Marokkó - en skildi þó að sá hefði drukkið sig út úr læknanámi í Belgíu. Óvenju næm á kokmælta frönsku mannsins heyrði ég hann segjast ætla að dæla í mig helstu hríðskotalyfjum gegn mögulegri mat- areitrun í von um að eitt þeirra stöðvaði óstöðv- andi vökvaflæðið úr öllum holum líkamans. En ég var ólíkt afslappaðri á heilsugæslustöðinni í Raval-hverfinu í Barcelona svo læknirinn sendi mig í magaspeglun í stað árlegrar sneiðprufu vegna keiluskurðar. Reyndar var ég upptekin af ljósmyndum á vegg læknastofunnar því þær sýndu konuna umkringda fátæklegu barnastóði í nokkrum heimsálfum; öll þessi börn horfðu á hana eins og kraftaverk í líki manneskju. Svoleiðis birtist hún mér, kasólétt á heilsugæslustöðinni þar sem fátækar múslimakonur og gleðikonur mæta í kvenskoðun; þær fyrrnefndu eftir að hafa átt fimm böm, þær síðarnefndu sjálfar börn og sumar hverj- ar orðnar ömmur langt fyrir aldur fram. Hún er hetja. En Friðrik, heimilislæknir á Reykjalundi, var líka hetja. Hann keyrði upp í Mosfellsdal í öllum veðrum og vindum þegar við systkinin lágum með hálsbólgu, sérkennilega oft því bamaskólinn í Mosfellsbænum var gróðrarstía fyrir bakteríur og veirur. Birtist eins og frelsandi engill, mjólk- urhvítur úr kafaldsbylnum, og hristi af sér snjóinn áður en hann feyktist inn til bamsins, settist á rúmstokkinn og smellti upp lokinu af læknatösk- unni. Vankað í hitamóðu starði barnið á hann sem var næstum eins og jólasveinninn: sá sem fór milli bæja á næturnar til að lækna. A Reykjalundi voru reyndar fleiri merkilegir læknar eins og Þengill sem var frægur fyrir að fljúga í óveðrum með þyrl- um á slysstaði svo langþreyttar konur vöknuðu til lífsins við að mæta honum í Kaupfélaginu. Svo má ekki gleyma Jóhanni Tómassyni sem lyftist allur ef hann heyrði minnst á góða bók og sagði frá ennþá betri bókum, af slíkri tilfinningu að mamma mín leitar aðeins til hans, sama hvað amar að henni. En það var uppgötvun fyrir okkur báðar að hitta Elías Ólafsson, prófessor í taugalækningum, þegar ég greindist með flogaveiki á táningsárum. Mann sem var svo gáfaður að vita heilmikið um heilann í manneskju sem hann hafði aldrei hitt áður. I sann- leika sagt hafði ég aldrei hugsað almertnilega út í það að ég væri með heila fyrr en hann sendi mig í heilalínurit. Fræðslan um þennan dularfulla sjúk- dóm hreif mig svo að ég skrifaði grein í félagsritið Lauf undir heitinu Dostojevski og ég - en fyrmefnd- ur var einnig með flogaveiki. Heilaspekúlantar á borð við Elías fá mig til að undrast hvað mann- eskjurnar eru gáfaðar þrátt fyrir allt. Stundum rekst ég á heilaspekúlantinn Jóhann Axelsson á Mokka og nýt þess að heyra hann vitna á víxl í lífeðlisfræðinga og samtímaskáld. Svona á fólk að vera - hugsa ég þá með kaffið vætlandi í æðunum - það á að vera eins og Jóhann Axelsson, Jóhann Tómasson og Tjekov, alveg á kafi í innstu iðrum manneskjunnar: sjúkdómum og skáldskap. Á Austurbrú kynntist ég töluvert líflausari lækni. Konu sem fylltist slfkri verkkvíðni að fá kynsystur í kvenskoðun að hún særði mig til blóðs með stórkarlalegum tækjunum. Maðurinn hennar var þó yfirvegaðri og hélt til í samliggjandi stofu. Hann á heiðurinn af því að hafa fengið mig til að hætta að reykja fyrir fimm árum. Þú ert ekki með nógu góð lungu til að reykja, sagði hann værukær, sjálfur angandi af píputóbaki. Og einmitt þess vegna trúði ég honum. Annars er liðin tíð að trúa á lækna eins og guð. Það rann upp fyrir mér við heimildaöflun fyrir bók þegar ég hringdi í lækna til að afla mér upplýsinga um stofnfrumurann- sóknir þar sem tilskilin rannsóknarleyfi eru ekki fyrir hendi; ég var forvitin um sögusagnir um rannsóknir á fóstrum, klónun, erfðaefnasull og allt það. Brátt skildist mér að allt það er óendanlega mikið; vísindin eru yfirþyrmandi, handan góðs og ills, nú sem áður. Og starfsheitið læknir á ekki bara við Friðrik gamla heldur líka hraðlyginn vísindamann í Suður-Kóreu sem notaði egg úr samstarfskonum í rannsóknir sínar. Læknir er eitt- hvað dásamlegt og hræðilegt í senn, rétt eins og dönsku hjónin: annað stórhættulegt, hitt lífsbjörg. Já, það er stutt endanna á milli. Eina stundina er maður sæll í sínu, þá næstu á spítala, enda á ég plagg upp á það að hafa slasað mig við ritstörf frá heilsugæslustöðinni á Amager. Islensk kona sneri sig á fæti við að standa upp frá skrifborði! 94 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.