Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 3

Læknablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 3
Rannsóknarstofa í bráðafræðum Á vísindadögum Landspítala nú í byrjun maí var skrifað undir samning milli spítalans og heilbrigðissviðs Háskóla íslands um stofnun rannsóknarstofu í bráðafræðum. Undir samninginn skrifuðu Sigurður Guðmundsson forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla fslands, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri slysa- og bráðasviðs Landspítala, Björn Zoéga forstjóri spítalans og Kristján Erlendsson sviðstjóri kennslu- og vísindasviðs Landspítala. Að sögn Kristjáns er hugmyndasmiður þessa verkefnis Brynjólfur Mogensen yfirlæknir á bráðadeild en samkvæmt samningnum mun rannsóknarstofan taka til starfa í haust. ■■^■LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS ■■■^■■1 Guðný Guðmundsdóttir (f. 1970) býr í Berlín þar sem hún starfar að myndlist sinni. Hún faest einkum við teikningar eða verk sem spretta úr þeim grunni sem tekur á sig mynd i teikningum. Vinnuaðferð hennar er eins konar spuni þar sem eitt leiðir af öðru í sjálfsprottnu ferli. Hún byrjar á einum stað í fyrirfram gefnu formi eða hugmynd sem vindur upp á sig og allt að því ósjálfráð keðjuverkun ræður því hver nióurstaðan verður. Teikningar hennar eru iðulega mjög stórar, langar og miklar arkir. Guðný teygir teikninguna út í þrívíð form sem lúta sömu lögmálum, frá örkum sem hengdar eru á vegg og út á mitt gólf sýningarsalanna. Röðum tengdra eininga er tvinnað saman og áhorfandinn rekur slóðina á milli tvívíðra og þrívíðra forma, skúlptúra, byggingarmódela eða annars konar forma. Allt einkennist af forgengileika enda efnin viðkvæm og strúktúrarnir veikburða. Sums staðar má greina augljós fígúratíf mótíf, manneskjur, dýr og húsakynni en þess á milli ríkir súrrealísk fantasía. Guðný hefur lengi fengist við ímyndaða innviði húsakynna og skapað líkön af rýmum sem stangast á við hefðbundna rökhugsun í byggingu og gefa þannig til kynna hugmynd um andlega eða draumkennda vídd. í teikningunni sem Guðný vann sérstaklega fyrir Læknablaðið og kallar Amo (2010) er flókinn myndheimur listamannsins einfaldaður niður í eitt stakt mótíf, kött sem lent hefur í einhverju óhappi og þurft hefur að sauma sár á vanganum. Beygingarmyndir sagnarinnar að elska eru skrifaðar upp á latínu hjá kettinum, amo, amas, amat... Um teikninguna segir Guðný að hún sé af einhverjum sem hefur þurft að berjast fyrir ástina. Það er ekki langt að sækja rómantík og Ijóðrænu enda Guðný sérstakur áhugamaður um Ijóðlist og hefur sjálf fengist við að yrkja. Þá eru teikningar hennar undir áhrifum frá myndskreytingunum sem mörgum ættu að vera kunnar úr Skólaljóðunum. Svona leiðir Guðný áhorfendur áfram með kunnuglegum stefum milli þess sem hún gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn. Markús Þór Andrésson Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www. laeknabladid. is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104-564 4106 Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Jóhannes Björnsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Anna Gunnarsdóttir Bryndís Benediktsdóttir Engilbert Sigurðsson Gunnar Guðmundsson Inga S. Þráinsdóttir Tómas Guðbjartsson Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og Ijósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Dögg Árnadóttir dogg@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1700 Áskrift 9.500,- m. vsk. Lausasala 950,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Ubrary of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the lcelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Ubrary of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAbiaðiö 2010/96 391
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.