Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2010, Page 19

Læknablaðið - 15.06.2010, Page 19
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Meðalaldur sjúklinga með bráða barkaloks- bólgu jókst verulega milli tímabilanna fyrir og eftir upptöku bólusetningar, úr 20 árum (staðal- frávik 23) í 42 ár (staðalfrávik 19). Þessi munur \'ar marktækur (p=0,001). Kyn og árstíöir Fleiri karlar en konur fengu bráða barkaloksbólgu á tímabilinu sem skoðað var (58% vs 42%). Þetta gefur hlutfallið 1,4:1 körlum í hag. Tilhneiging var til aukinnar tíðni sjúkdómsins yfir vetrarmánuði samanborið við aðrar árstíðir. Flest tilfelli greind- ust í desembermánuði (9 tilfelli) og á eftir komu janúar, febrúar og mars (6 tilfelli hver) (mynd 4). Vetrarmánuðirnir (desember-febrúar) áttu 37% af tilfellunum, vormánuðirnir (mars-maí) og haust- mánuðirnir (september-nóvember) 23% en fæstir sjúklingar greindust yfir sumartímann (júní- ágúst), 17%. Arstíðasveiflur voru ekki marktækar. Skjpting sjúUinga slUr aldrt -------------------v---------------------- --------------------------------v----------v-------- OtoB 10lo19 70 toTfl 30lo3B 40 to 49 50k>Sð OOIoOB 70lo7B >80 AJdurtiópjr Mynd 3. Sjúklingar sem greindust með bráða barkalokubólgu á rannsóknartímabilinu flokkaðir eftir aldri. Mánudur sjúkdómsgreíningar Meöhöndhtn öndunarvega og gjörgæsla Háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala hefur ekki haft fastmótaðar reglur um hvenær tryggja á öryggi öndunarvega sjúklinga með bráða barkaloksbólgu með barkaþræðingu eða barkaskurði eða hvenær leggja á sjúklinga inn á gjörgæslu til vöktunar. Hér er hvert tilvik fyrir sig metið og ákvörðun tekin á grunni ástands sjúklings. Meirihluti sjúklinganna á tímabilinu sem skoðað var þurfti ekki á sértækri meðhöndl- un öndunarvega að halda (40/57). Fimmtán sjúklingar voru barkaþræddir og tveir gengust undir barkaskurð. Ellefu af 15 barkaþræddum sjúklingum voru 5 ára við greiningu. Hinir fjórir voru fullorðnir (43,46,48 og 65 ára að aldri). Sjúklingarnir tveir sem gengust undir barkaskurð voru 22 og 23 mánaða gamlir, meðhöndlaðir 1986 og 1987. Öll börn á rannsóknartímabilinu sem voru yngri en 10 ára (13) fengu meðhöndlaðan öndunarveg með ofannefndum hætti. Meðalaldur sjúklinga sem voru barkaþræddir/barkaskornir var 13 ár (staðalfrávik 22) ár en miðgildi 2 ára. Af full-orðnum sjúklingum með bráða barkabólgu voru 10% (4/41) barkaþræddir en enginn gekkst undir barkaskurð. Níu af 15 sjúklingum (60%) sem voru barkaþræddir reyndust hafa jákvæða ræktun fyrir Hib, hjá 1 ræktaðist Streptococcus gr.A og 3 höfðu neikvæðar ræktanir. Annar af tveimur sjúklingum sem gengust undir barkaskurð var jákvæður fyrir Hib en hinn með neikvæðar ræk- tanir. Af 13 sjúk-lingum með jákvæða ræktun fyrir Hib, reyndust 10 (77%) þurfa annaðhvort barkaþræðingu eða barkaskurð til að tryggja öryggi öndunarvega. Tuttugu og níu af 57 sjúklingum voru lagðir inn á gjörgæsludeild (51%). Aðrir sjúklingar voru Mynd 4. Fjöldi tilfella barkaloksbólgu eftir mánuði greiningar. lagðir inn á háls-, nef- og eyrnadeild, almenna lyflæknisdeild eða bamadeild. Fyrir upphaf bólusetningar gegn Hib lögðust 17/23 sjúklingum (74%) inn á gjörgæslu en eftir upphaf bólusetn- ingar voru samsvarandi tölur 12/34 (35%). Allir sjúklingar með bráða barkaloksbólgu sem voru yngri en 10 ára voru lagðir inn á gjörgæsludeild en 15/41 fullorðnum sjúklingum (37%). Ræktunarsvör Tuttugu og sex sjúklingar (46%) höfðu annaðhvort jákvæða ræktun úr hálsstroki eða blóðræktun. Al- gengasta bakterían sem ræktaðist var Haemophi- lus influenzae sem var orsakavaldur hjá 13 af 26 sjúklingum með jákvæða ræktun. Streptococci sp. var orsakavaldur í 35% tilvika og aðrar bakteríur í 15%. Fjörutíu sjúklingar höfðu bæði neikvæða hálsræktun og blóðræktun en upplýsingar vantaði fyrir 14 % sjúklinga. LÆKNAblaðið 2010/96 407

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.