Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 25

Læknablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 25
Brynhildur Tinna Birgisdóttir1 læknir Hilmir Ásgeirsson1 læknir Steinunn Arnardóttir1 læknir Jón Jóhannes Jónsson23 meinefnafræðingur Brynjar Viðarsson1'45 blóölæknir Lykilorð: slitrótt bráðaporfýría, meingerð, faraldsfræði, meðferð. 'Lyflækningasviði Landspítala, 2erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala, 3lífefna- og sameindalíffræðistofu læknadeildar HÍ, 4læknadeild HÍ, 5blóðlækningadeild Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Brynjar Viðarsson, blóðlækningadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími: 5431000 Bréfsími: 5436015 brynvida@landspitali.is s FRÆÐIGREINAR JÚKRATILFELLI Bráðir kviðverkir af völdum slitróttrar bráðaporfýríu - sjúkratilfelli og yfirlit Ágrip Lýst er bráðu porfýríukasti hjá konu sem hafði leitað endurtekið á bráðamóttöku vegna kviðverkja. Porfýríur orsakast af skertri ensím- virkni í myndunarferli hems og við ákveðið álag verður uppsöfnun á milliefnum í ferlinu vegna þessa. Einkenni geta verið kviðverkir, ógleði og uppköst, hægðabreytingar, hraður hjartsláttur og blóðþrýstingshækkun. Meðferðin felst í að fjarlægja mögulega orsakavalda, meðhöndla einkenni og gefa kolvetni eða hemín til að draga úr myndun milliefna. Sjúkratilfelli Miðaldra kona frá Austur-Evrópu leitaði á bráðamóttöku eftir að hafa verið með vaxandi kviðverki um neðanverðan kvið með leiðni aftur í bak ásamt slappleika, ógleði og lystarleysi í fjóra daga. Hún hafði nánast ekkert getað nærst síðustu dagana fyrir komu. Þetta var í þriðja skipti á þremur dögum sem konan leitaði á bráðamóttöku vegna svipaðra einkenna sem þá höfðu svarað verkjalyfjum. Líkamsskoðun og niðurstöður blóðrannsókna á þeim tíma voru ósértækar fyrir utan að grunur vaknaði um þvagfærasýkingu sem var meðhöndluð með mecillínami. Konan hafði áður haft háþrýsting og vanstarfsemi á skjaldkirtli en annars verið hraust. Skoðun leiddi í ljós að konan var meðtekin og slöpp. Hún var hitalaus, blóðþrýstingur var 174/105, púls 67 slög á mínútu og súrefnismettun 96% án súrefnis. Slímhúð í munni var þurr. Nokk- ur eymsli voru við þreifingu um neðanverðan kvið en ekki sleppieymsli. Kviður var mjúkur og garnahljóð eðlileg. Niðurstöður blóðrannsókna má sjá í töflu I. Ketónar voru í þvagi en annars var almenn þvagrannsókn ómarkverð. Yfirlitsmynd og síðan tölvusneiðmynd af kvið sýndu talsvert magainnihald og mikið loft í ristli en ekki annað óeðlilegt. Eftir töf vegna tungumálaerfiðleika kom í ljós að konan hafði verið greind með porfýríu fyrir um 20 árum í heimalandi sínu. Hún hafði þá verið með slappleika og kviðverki líkt og nú en verið einkennalaus síðan. Undanfarnar vikur hafði hún breytt yfir í svokallað blóðflokkamataræði sem var jafnframt mjög kolvetnasnautt. Asamt þessu hafði hún notað stólpípur reglulega, síðast fjórum dögum fyrir komu. Vegna gruns um porfýríukast var hún lögð inn og hafin meðferð með 5% glúkósulausn í dreypi. Við nánari þvagskoðun daginn eftir var þvag rauðbrúnleitt og jákvætt fyrir porfóbilinógeni (1+) og úró-/kópróporfýríni (3+) með eigind- legum útdráttarrannsóknum. Skipt var yfir í 10% glúkósalausn í æð ásamt næringu í æð (sambland af glúkósalausn, amínósýrulausn og fitufleyti, Strnctokabiven®) og orkudrykkjum (langkeðjuþríglýseríðar, Calogen®). Markmiðið var að hún fengi 300-400 grömm af kolvetnum á sólarhring en vegna ógleði og lystarleysis gat hún nær ekkert nærst um munn. Notast var við parasetamól og morfín til verkjastillingar og prómetazín (Phenergan®) við ógleði. Blóð- þrýstingur var hár fyrstu tvo sólarhringana og fór slagbilsþrýstingur í 185-200 mmHg en lækkaði eftir gjöf labetalóls. Á þriðja degi innlagnar féll natríumgildi í plasma (tafla I) en á sama tíma var natríumgildi í þvagi hátt, 133 mmól/1, og osmólalítet þvags eðlilegt, 480 mosm/kg (300- 900). Hún var þá þurr að sjá og við mælingu réttstöðuþrýstings féll hann úr 159/88 í 112/76 mmHg og púls jókst úr 69 í 85 slög á mínútu. Því var gefið ríkulega af saltvatni í æð en jafnframt haldið áfram að gefa 10% glúkósulausn til kolvetnagjafar. Lípasi í blóði hækkaði á þriðja degi en varð svo aftur eðlilegur (tafla I). Ómskoðun af lifur, gallvegum, brisi og nýrum sýndi væga fitulifur en var annars ómarkverð. Sjúklingur kvartaði ekki um vöðvamáttleysi en til mats á starfsemi öndunarvöðva var gert blásturspróf sem kom eðlilega út. Kviðverkirnir fóru minnkandi en vegna áframhaldandi mikils slappleika og lystarleysis var ákveðið á fjórða degi að meðhöndla með hemarginati (Normosang®), 3 mg/kg/dag í æð í fjóra daga. Eftir það fóru einkenni hratt batnandi og porfóbílínógen og úró-/kópróporfýrín í þvagi minnkuðu verulega. Sjúklingurinn út- skrifaðist níu dögum eftir innlögn við mun LÆKNAblaðið 2010/96 41 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.