Læknablaðið - 15.06.2010, Síða 41
U M R Æ Ð U R 0 G FRÉTTIR
HEIMILISLÆKNAR Á SELFOSSI
lág svo maður tekur vaktirnar til að hækka þau.
Það eru vaktirnar sem halda uppi laununum.
Það þarf því ekki bara viljastyrk til að draga úr
vaktavinnunni heldur að nokkru leyti ákveðna
breytingu á lífsstíl. Okkur hefur þó tekist það í
vetur og erum bara nokkuð ánægð núna."
Það er engu að síður Ijóst að þrátt fyrir fögur
fyrirheit um að minnka við sig vinnuna eru þau
lík flestum læknum að vinnan á meira og minna
hug þeirra allan. „Þetta er frábærlega skemmtilegt
starf," segja þau bæði og eru sammála um að
fjölbreytnin geri það hvað skemmtilegast.
„Starf á heilsugæslustöð utan höfuðborgar-
svæðisins getur verið mjög fjölbreytt og ef maður
kann vel við það er þetta draumastarfið. Hér
erum við yfirleitt fyrsti aðilinn sem kemur að
málum, hvort sem það er hefðbundið eftirlit á
stofu eða slys úti á þjóðvegi. Hér eru að sjálfsögðu
starfræktar allar þjónustudeildir hefðbundinnar
heilsugæslu og læknarnir skipta því á milli sín
eftir því sem þörf krefur. Hér eru einnig sjúkra- og
hjúkrunardeildir og þar göngum við vaktir sem
gerir starfið enn fjölbreyttara en ella."
Spurning um þjónustu
Þau segjast einnig njóta nálægðarinnar við fólkið
á svæðinu. „Mér finnst gaman að hitta fólkið við
leik og störf, þannig kynnist maður samfélaginu
betur og verður meiri þátttakandi í því en þar
sem fjöldinn er meiri og dreifðari," segir Arnar.
„Það er einnig auðveldara að fylgja sjúklingum
eftir að hafa kannski lagt þá inn. Heilsugæslan og
sjúkrahúsið hér á Selfossi vinna mjög vel saman
og hér er mjög góð heild og afar gott starfsfólk."
Heilbrigðisstofnun Suðurlands sinnir stóru
svæði, frá Hveragerði og Þorlákshöfn í vestri
og að Kirkjubæjarklaustri í austri. Heilsu-
gæslustöðvarnar eru alls átta talsins og skipta
svæðinu á milli sín en höfuðstöðvarnar eru
á Selfossi, eða öllu heldur Arborg, og þar er
rekin umfangsmikil heilsugæslu- og sjúkra-
hússstarfsemi. Á heilsugæslunni á Selfossi
eru starfandi átta sérfræðingar í heimilis-
lækningum og einn barnalæknir ásamt 10
hjúkrunarfræðingum, auk þriggja sálfræðinga
og annarra heilbrigðisstarfsmanna. í tengslum
við sjúkradeildir, skurðdeild, fæðingadeild,
kvensjúkdómadeild, lyf og handlækningadeild
eru starfandi allmargir sérfræðingar og má nefna
sérfræðinga í háls-, nef og eyrnalækningum,
augnlækningum, kvensjúkdómum, hjarta- og
lyflækningum og meltingarsjúkdómum. Fleiri
sérfræðingar eru með reglulegar móttökur
og sinna aðgerðum. Læknavakt er starfrækt
allan sólarhringinn og sinnir vaktlæknir á
Selfossi Árborgarsvæðinu, Hveragerði, Flóa og
Þorlákshöfn. Starfsemin er því fjölþætt og
umfangsmikil enda sinnir stofnunin fjölbreyttu
samfélagi bæði innan þéttbýlis og utan, auk
Hin nýja bygging
heilsugæslunnar á Selfossi.
L
LÆKNAblaðið 2010/96 429