Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 49

Læknablaðið - 15.06.2010, Qupperneq 49
U M R Æ Ð A U N G U R V í S 0 G FRÉTTIR INDAMAÐUR áfallastreituröskun. Hins vegar er þörf fyrir fleiri sérfræðinga á þessu sviði sem hjálpa fólki í gegnum bataferlið. Það er mikill og vaxandi áhugi á þessu efni. Til dæmis eru nú mörg spennandi rannsóknarverkefni í gangi hjá nemum sem ég handleiði við Háskóla íslands." Að sögn Berglindar getur áfallastreituröskun verið langtímaástand sem elur af sér vanlíðan með tilheyrandi einkennum. „Eftir því sem lengri tími líður án þess að aðstoð fáist til að virrna úr áfallinu er aukin hætta á að einstaklingurinn hætti smám saman að gera sér grein fyrir tengingunni. Orsökin er því oft gleymd en einkennin hafa stöðug áhrif á lífsgæði viðkomandi. Mikilvægt getur því verið að grafast fyrir um orsökina til að komast að rót vandans í stað þess að meðhöndla eingöngu einkennin. Algengt er að þolendur áfalla fái meðferð við sýnilegum einkennum eins og þunglyndi, kvíða, svefnleysi, magaverkjum án þess að unnið sé með rót vandans, áfallið sjálft. Þarna geta sálfræði og læknisfræði unnið saman og gera það vissulega. Við eigum reyndar talsvert í land með að geta veitt öllum sem þurfa sérhæfða áfallameðferð en engu að síður höfum við tekið stórt stökk fram á við undanfarin þrjú til fjögur ár. Það er mikill áhugi fyrir efninu og við höfum fengið hingað góða erlenda fyrirlesara. Margir hafa tekið þátt í námskeiðahaldi og aflað sér aukinnar þekkingar um efnið. I haust verður námskeið um meðferð við áfallastreituröskun meðal bama og unglinga í samstarfi við Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands og félag um hugræna atferlismeðferð. Það er alveg óhætt að segja að ýmislegt sé í gangi." Mjög gagnleg viðurkenning Hluti af starfi Berglindar er að taka þátt í starfi samráðshóps um áfallahjálp hjá Almannavömum sem einn af fulltrúum Landspítala. „Ef við lítum til dæmis á það sem er að gerast núna vegna gossins í Eyjafjallajökli og áfallanna sem dunið hafa á íbúum svæðisins sem verst er leikið af öskufallinu þá er stjóm þeirra mála í höndum heimamanna. Samráðshópur áfallahjálpar er hins vegar heimamönnum til stuðnings og þeir leita til okkar eftir ráðgjöf og aðstoð. Þetta samstarf hefur verið til mikillar fyrirmyndar og gefist mjög vel." Framtíðardraumurinn er að gera stóra faralds- fræðilega áfallarannsókn hér á landi og vonandi gefst tækifæri til þess. „Að vera útnefnd Ungur vísindamaður ársins af Landspítalanum er mikill heiður sem vonandi hjálpar til þegar sótt er um rannsóknarstyrki. Svona viðurkenning er mikil hvatning til áframhaldandi rannsóknavinnu. Mér finnst einnig mikilvægt að önnur grein en læknisfræði sé viðurkennd svona en Vísindaráð spítalans hefur fullan skilning á mikilvægi rannsókna á öllum sviðum heilbrigðisvísinda. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sálfræðingana sem margir eru mjög virkir í rannsóknum á spítalanum." Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur. LÆKNAblaðið 2010/96 437
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.