Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2010, Síða 52

Læknablaðið - 15.06.2010, Síða 52
UMRÆÐA O G HAGRÆÐING: F R É T T I R A F LÆKNADÖGUM lyfjafyrirmæla. Með slíkri markvissri teymisvinnu eru krabbameinslækningar í raun í fararbroddi skipulagðra vinnubragða á Landspítala. Við hagræðingu og sparnað á Landspítala er hvatt til þess að deildir breyti starfsemi í dag- og göngudeildarform. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki næst frekari hagræðing á dag- og göngudeild blóðsjúkdóma og krabbameinslækninga þar sem þetta hefur þegar verið framkvæmt. Flatur niðurskurður á þær deildir sem þegar hafa nýtt sér þetta úrræði til fullnustu myndi augljóslega vera mismunun. Eftirlit krabbameinssjúklinga er margþætt, þar er fylgst með aukaverkunum og langtíma fylgikvillum meðferðar, líkamlegum og andlegum. Eftirlitið felst ennfremur í að greina endurmein í tíma svo og önnur krabbamein. Eftirlitið er tímafrekt og á niðurskurðartímum eru uppi ýmsar hugmyndir um endurskipulagningu þess. Ein leið væri að flytja eftirlit sjúklinga í vaxandi mæli til heimilislækna sem gæti virst ódýrari kostur. Þetta hefur verið kartnað í Finnlandi og reyndist samfélagslegur kostnaður aukast í heild. Önnur leið er að nýta betur þekkingu og færni samstarfsaðila lækna, svo sem hjúkrunarfræðinga, við eftirlitið. Margt bendir til að þannig náist hagræðing, sérstaklega ef vinnan er unnin í teymi, því möguleikar eru á samlegðaráhrifum góðs fagfólks sjúklingum til hagsbóta. Önnur leið er að hafa heimilislækna í vinnu og samvinnu við krabbameinslækna innan Landspítala til að sinna eftirliti krabbameinssjúklinga, verið er að reyna slíka nálgun í Kanada. Kostnaður samfélagsins er mikill við lok lífs. Erlendar rannsóknir sýna að 60-70% af kostnaði við meðhöndlun sjúklinga fellur til á síðustu sex mánuðum lífsins. Opin og faglega umræða um tilgang meðferðar við lok lífs gætu stuðlað að vitundarvakningu innan læknastéttarinnar og meðal almennings um hver sé besta meðferðin þegar lækning er ekki lengur möguleg. Kostnaðartölur við lífslok geta gefið vísbendingu um þá stöðu sem læknirinn er í þegar örvænting gagnvart yfirvofandi endalokum lífsins hefur náð yfirtökunum. Við þessar aðstæður eru læknar og sjúklingar samherjar og tímabilið við endalok lífsins þarf að einkennast af virðingu, sátt og ró. Þannig má koma í veg fyrir að beitt sé tilgangslausri og dýrri meðferð við lok lífs. Ljóst er að hér er verið að ræða fordóma gagnvart dauðanum, skort á menntun, reynslu og færni lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna á sviði samskipta við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Með allt hér að framan í huga er ljóst að það ætti að vera læknum ljúft og skylt að beita sér fyrir markvissum vinnubrögðum innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem hagræðing kemur við sögu. Það er líka ljóst að fyrirmæli læknisins er í raun það sem veldur mestum kostnaði í heilbrigðisþjónustunni, svo sem ávísun á lyf og rannsóknir. Nærtækast er að læknar haldi vöku sinni með markvissari ávísun á lyf, með því að reyna að takmarka ofmeðhöndlun og óþarfa rannsóknir án þess að það dragi úr gæðum þjónustunnar. Heimildir 1. Berrino F, De Angelis R, Sant M, el al. Survival for eight major cancers and all cancers combined for European adults diagnosed in 1995-99: results of the EUROCARE-4 study. Lancet Oncology 2007; 8: 773-83. 2. Jönsson B, Wilking N. A global comparison regarding patient access to cancer drugs. Ann Onc 2007:18; 1-78. Viðbætur 15. janúar 2009. Comparator report on patient access to cancer drugs in Europe. 3. Minter RM, Spengler KK, Topping DP, Flug R, Copeland EM, Lind DS. Institutional validation of breast cancer treatment guidelines. J Surg Res 2001; 100:106-9. Læknar óskast til starfa Læknar óskast til starfa (í hlutastarf) aö hjúkrunarheimilinu Grund. Nánari upplýsingar fást hjá forstjóra, Guðrúnu Gísladóttur, í síma 530-6100 eða hjá yfirlæknum, Árna Tómasi Ragnarssyni og Sjöfn Kristjánsdóttur í sama síma. 440 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.